Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 62
38 15. ágúst 2009 LAUGARDAGUR VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR RIT- HÖFUNDUR ER 56 ÁRA Í DAG. „Sá sem kveður vin sinn finnur fyrir endanleika lífsins.“ Vigdís er rithöfundur og eftir hana liggur fjöldi bóka, aðal- lega skáldsagna og ljóða- bóka, einnig ævisagan Bíbí. Kvikmynd hefur verið gerð eftir sögu Vigdísar, Kaldaljósi. Ofanrituð tilvitnun er sótt í bókina Grandaveg 7. Sýningin Franskir sjómenn við Íslandsstrendur hefur verið opnuð í húsakynnum Alliance Française við Tryggvagötu 8 í Reykjavík. Hún bregður ljósi á samskipti Íslendinga og frönsku skútusjómannanna sem stunduðu veiðar við Ísland á nítjándu öld og fram eftir þeirri tuttugustu. María Óskarsdóttir hefur um árabil safnað munnlegum og skriflegum heimildum um þessi samskipti eins og þau komu Íslendingum fyrir sjónir. Hún er potturinn og pannan á bak við sýninguna í Alliance Française sem samanstendur af ljósmyndum, sýningarspjöldum og munum sem fengnir voru í Minjasafninu á Hnjóti í Örlygshöfn. Einnig af frásögnum af því hvernig Íslendingar og frönsku sjómennirnir töluðu saman, hjálpuðust að, voru tortryggnir hver í annars garð og bundust loks vinaböndum sem eru orðin hluti af sameigin- legri sögu þjóðanna tveggja. María er mikill grúskari í eðli sínu og kveðst hafa aflað þessara gagna í um það bil tíu ár. „Ég kom í fyrsta sinn á Patreksfjörð árið 1992 og hafði aldrei fyrr heyrt um franska sjómenn. Eftir tvær ferðir á Bretagne-skagann í Frakklandi, þar sem ég var mikið spurð um íslenskar frásagnir af þeim, fór ég að glugga í gamlar bækur og stundum var eins og mér væri leiðbeint við að finna það efni sem ég leitaði að. Ég get ekki skýrt það út. Einu sinni var ég í heimsókn hjá fullorðn- um hjónum og fékk að líta í bókaskápinn þeirra. Þá var þar ein bók á hvolfi og ég greip hana fyrst. Þar var þessi fína saga af samskiptum við Fransmenn.“ Myndir á sýningunni kveðst María hafa fengið lánaðar frá Patreksfirði og Vestmannaeyjum. „Einnig fékk ég 92 mynd- ir hjá skipstjóra á skólaskipi sem kom hingað árið 2000,“ segir hún. „Hann fór að grúska á söfnum ytra og fann mynd- ir sem höfðu verið teknar á bilinu 1907 til 1910. Þær rúlla á skjá á sýningunni og textar við hverja og eina eru á frönsku og íslensku.“ María segir Fransmennina hafa keypt salt og svolítið af kjöti af Íslendingum en ekki síst prjónles eins og tvíþumla vettlinga og sokkaplögg. Þeir hafi borgað fyrir með hörðu kexi og rauðvíni sem þeir hefðu sparað sjálfir af sínum dag- lega skammti. Einn þáttur sýningarinnar fjallar um þjófnaði því María segir Íslendinga hafa stolið frá Frökkum og öfugt. Frásagnir eru líka af hrakningum og slysförum, til dæmis um það þegar átta skútur fórust við skaftfellska sanda í af- takaveðri laugardaginn fyrir páska árið 1901. „Þá voru ekki komnar vélar í skúturnar og sjómennirnir þurftu að treysta á seglin,“ segir María. En bætir þessi sýning miklu við það sem Elín Pálmadóttir og fleiri hafa skrifað um svipað efni? „Elín hefur unnið ótrúlega gott verk og ég hafði hana með í ráðum en á sýningunni er öðruvísi tekið á efninu. Meira er um einstakar sögur, bæði úr bókum og samtölum við gam- alt fólk, því ég rétt náði í það síðasta sem mundi eftir skútu- tímabilinu.“ Þess má geta að sýningin í Alliance Française stendur til 5. september og aðgangur er ókeypis og öllum heimill. gun@frettabladid.is MARÍA ÓSKARSDÓTTIR: SAFNAÐI GÖGNUM UM FRANSKA SJÓMENN Náði í skottið á skútuöldinni MARÍA ÓSKARSDÓTTIR „Stundum var eins og mér væri leiðbeint við að finna það efni sem ég leitaði að.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR timamot@frettabladid.is Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Elskulegur faðir okkar, sonur, bróðir, barnabarn og sambýlismaður, Snorri Valur Einarsson lést að heimili sínu laugardaginn 8. ágúst. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. ágúst kl. 15.00. Guðni Alexander Snorrason Guðmundur Galdur Snorrason Egilson Einar Guðmundsson Lúðvík Sveinn Einarsson Guðmundur Ragnar Einarsson Sigrún Magnúsdóttir Edda Ósk Gísladóttir og aðrir aðstandendur. Hjartkær móðir okkar, Guðrún Stefánsdóttir frá Heiðarvegi 20 í Vestmannaeyjum, ekkja Helga Benediktssonar, útvegsbónda, lést á hjúkrunarheimilinu Eir að morgni 13. ágúst. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigtryggur, Páll, Guðrún, Arnþór og Gísli. Ástkær eiginkona mín, Marta Bjarnadóttir er látin. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Magnús Guðjónsson og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Rannveig Edda Hálfdánardóttir Holtsflöt 6, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 7. ágúst. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 18. ágúst kl. 14.00. Kristján Emil Friðriksson Dórothea Kristjánsdóttir Madsen Jørgen Elsted Madsen Hálfdán Kristjánsson Ragnhildur Jónsdóttir Rannveig Kristjánsdóttir Kristján Emil Jónasson og ömmubörn. Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Hólmfríður Sigmunds Trönuhjalla 1, Kópavogi, er látin. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju mánu- daginn 17. ágúst kl. 13.00. Sigurður E. Kristjánsson Sesselja Sigurðardóttir Halldór E. Sigurþórsson Einar Sigurðsson Ólöf Halldórsdóttir Margrét Sigurðardóttir Jón Ágúst Gunnlaugsson Hreindís Elva Sigurðardóttir Brynjólfur Tryggvi Árnason Sigmundur Sigurðsson Ewa Noren Kristján Sigurðsson Margrét Þorvaldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar kærleiksríka eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Eygló Markúsdóttir Álfaskeiði 43, Hafnarfirði, áður bóndi á Ysta Bæli, Austur Eyjafjöllum, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 18. ágúst kl. 15.00. Sveinbjörn Ingimundarson Örn Sveinbjarnarson Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir Sigurður Ingi Sveinbjarnarson Markús Gunnar Sveinbjarnarson Selma Filippusdóttir Ingimundur Sveinbjarnarson Guðrún le Sage de Fontenay Hrafn Sveinbjarnarson Anna Dóra Pálsdóttir Ester Sveinbjarnardóttir Magnús Sigurðsson Helga Sif Sveinbjarnardóttir Haukur Örn Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför Björns Helgasonar Hæðargarði 24, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítala, Landakoti. Jóhanna Björg Hjaltadóttir Hrafnhildur Stefánsdóttir Margrét Ólöf Björnsdóttir Kristján Þór Haraldsson Helgi Björnsson Haukur Björnsson Annemarieke Gerlofs Ásta Björg Björnsdóttir Andrés Halldór Þórarinsson afa- og langafabörn. Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurjón Þorvaldsson verkstjóri, Miðtúni 42, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 2 fimmtudaginn 6. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðju- daginn 18. ágúst kl. 15.00. Ólafía Sigurðardóttir Bergmann Sigurður Bjartmar Sigurjónsson Sesselja Gísladóttir Gísli Geir Sigurjónsson Herborg Sjöfn Óskarsdóttir Þorvaldur B. Sigurjónsson Dagný Hildur Leifsdóttir Brynja Sigurjónsdóttir Kjartan Jónsson Freyja Sigurjónsdóttir Róbert Leadon Rúnar Sigurjónsson Anna Elín Óskarsdóttir afabörn og langafabörn. MOSAIK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.