Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 52
15. ÁGÚST 2009 LAUGARDAGUR4 ● reykjavík jazz
ANDRI ÓLAFSSON TÓNLISTAR
MAÐUR
„Ég er spenntastur fyrir atriði
sem er ekki á dagskránni, í
það minnsta ekki nafngreint,
en það eru Dýrin í Hálsaskógi
sem spila á Kjarvalsstöðum,“
segir tónlistarmaðurinn Andri
Ólafsson. „Svo myndi ég kíkja
á Arve Henriksen sem spilar á
Nasa 29. ágúst og einnig væri
gaman að fara á smá djass-
madness í Norræna húsinu 16.
ágúst. Ég flýg hins vegar út til
Amsterdam til náms eftir mína
eigin tónleika þannig að ég
get því miður ekki séð margt.“
Andri leiðir Moses High-
tower og Asamasada-tríóið
á Rósenberg þann 16. ágúst
og einnig mun hann spila á
tónleikum á Kaffi Kúltúra þann
23. ágúst. - jma
BJÖRN THORODDSEN
TÓNLISTARMAÐUR
„Ég hlakka mikið til að sjá
Hilmar Jensson með franska
gítarleikaranum Marc Ducret
og svo verður gaman að sjá
Guðmund Pétursson gítarleik-
ara með sinni frábæru hljóm-
sveit,“ segir Björn Thoroddsen
gítarleikari um viðburði Jazz-
hátíðar. „Annars ætla ég að
reyna að sjá sem flest og vera
svona á flækingi.“
Björn spilar sjálfur dúett
með sænska gítarleikaranum
Ulf Wakenius á Nasa þann
21. ágúst, þar sem Hilmar
og fleiri koma einnig fram.
Trommuleikarinn Guðmundur
Steingrímsson, eða papa Jazz,
verður áttræður í haust og
munu Björn og félagar spila
honum til heiðurs. - jma
SAMÚEL SAMÚELSSON
TÓNLISTARMAÐUR
„Ég hlakka til að heyra í
sænska bandinu Music Music
Music sem spilar í Norræna
húsinu sunnudaginn 16.
ágúst,“ segir tónlistarmaður-
inn Samúel Samúelsson. „Ég
er líka mjög spenntur fyrir
norska trompetleikaranum
Arve Henriksen sem verður á
Nasa 29. ágúst. Annars er alltaf
skemmtilegast að vera bara
á röltinu og tékka á hinu og
þessu sem er að gerast.“ Sjálfur
mun Samúel leika á hátíðinni á
nokkrum tónleikum, með stór-
sveit sinni á Rósenberg þann
24. ágúst, með Jagúar þann
29. og með Tómasi R. Einars-
syni 28. ágúst. - jma
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ SJÁ?
Samkvæmt nýjustu tölum koma út fjórar
nýjar plötur sem beinlínis eru tímasettar til
að koma fyrir almenningseyru á Jazzhátíð
Reykjavíkur.
Blik Andrésar Þórs Gunnlaugssonar gít-
arleikara og Mæri píanistans Árna Heiðars
Karlssonar koma báðar út um þessar mund-
ir hjá útgáfufélaginu Dimmu, sem nú um
stundir skartar fjölbreyttustum útgáfulista
íslenskrar djasstónlistar. Margir djasslista-
menn hafa gengið til liðs við Dimmu undan-
farið og má nefna, auk þeirra Andrésar og
Árna, saxófónleikarann Sigurð Flosason sem
hefur nú tvær nýjar plötur tilbúnar til útgáfu
seinna á árinu; aðra með sönglögum í flutn-
ingi Egils Ólafssonar og Ragnheiðar Grön-
dal og hina með nokkrum laga sinna í stór-
sveitarbúningi Daniels Nölgaard í flutn-
ingi Nordbottens-stórsveitarinnar sænsku.
Ekki má gleyma Agnari Má Magnússyni
sem mun gefa út plötu með tónlistinni sem
hann hljóðritaði á tónleikum Jazzhátíðar
í fyrra ásamt þeim Bill Stewart og Ben
Street. Er þá aðeins fátt eitt talið af fyr-
irætluðum útgáfum Dimmu á næstunni.
Trommuleikarinn Þorvaldur Þór er líka
með nýja plötu og saxófónleikarinn Haukur
Gröndal heldur sömuleiðis útgáfutónleika
á þessari djasshátíð til að fagna útkomu
Balkanbrjálæðisins Narodna Muzika.
Nýjar plötur á Jazzhátíðinni
Andrés Þór
Gunnlaugsson
gítarleikari gefur
út plötuna Blik um
þessar mundir.