Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 4
4 15. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
ALVÖRU SÁLFRÆÐITRYLLIR
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
www.bjartur.is
Ný stjarna á himni
reyfarahöfunda
Þýðandi: Bjarni Jónsson
BEINT Í
3. SÆTI
METSÖLULISTA
EYMUNDSSON
D
Y
N
A
M
O
D
Y
N
A
M
O
M
R
E
Y
K
J
R
E
Y
K
JA
V
A
V
AA
ÍKÍ
STJÓRNMÁL Þráinn Bertelsson hyggst
segja sig úr þingflokki Borgara-
hreyfingarinnar eftir helgina.
Ástæðuna segir hann vera „róg-
burð“ sem Margrét Tryggva dóttir
sendi stjórnarmönnum í Borg-
arahreyfingunni. Upphaflega var
tölvupósturinn ætlaður Katrínu
Snæhólm Baldursdóttur varaþing-
manni. Í póstinum lýsir Margrét
yfir áhyggjum af andlegu ástandi
Þráins. Segir hún að mögulega sé
Þráinn þunglyndur og hún hafi rætt
við sálfræðing sem telji einkennin
benda til Alzheimer-sjúkdómsins.
„Ég fékk bréf frá Katrínu í gegn-
um hóppóstlista og ýtti bara á
„reply“. Uppgötvaði ég strax hvað
ég hafði gert og bað fólk að virða
trúnað,“ segir Margrét Tryggva-
dóttir um mistökin.
Margt hefur gengið á í hreyfing-
unni og skaðað hana að mati Mar-
grétar. Ofan á afsögn Þráins hætti
Herbert Sveinbjörnsson, formaður
hreyfingarinnar, í. Að auki hafa
nokkrir stjórnar menn yfirgefið
hana. Í gærkvöldi var tilkynnt
að Baldvin Jónsson tæki við for-
mennsku fram að aðalfundi sem
verður haldinn 12. til 13. septemb-
er.
„Það hefur verið mikil valdabar-
átta innan stjórnarinnar,“ segir
Margrét. „En við þrjú ætlum að
halda áfram. Vinnuframlag Þrá-
ins hefur ekki vegið 25 prósent þó
að vissulega myndi ég vilja að við
værum fjögur,“ segir Margrét en
Þráinn hefur ekki mætt á þing-
flokksfund hjá hreyfingunni síðan
kosið var um þingsályktunartillögu
um ESB.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir,
sem átti að fá tölvupóstinn, segir að
þetta hafi ekkert með sig að gera,
annað en að hún átti að vera við-
takandi tölvupóstsins. „Ég hef ekki
tekið þátt í neinum umræðum um
Þráin nema að við unnum saman í
kosningabaráttunni og það var frá-
bær samvinna,.“
Birgitta Jónsdóttir, þingkona
Borgarahreyfingarinnar, segir að
þingflokkurinn hafi reynt til þraut-
ar að sættast við Þráin. „Við áttum
góðan fund með sáttanefnd þar
sem hún bað félaga í stjórninni um
að vera ekki að skvetta olíu á eld-
inn,“ segir Birgitta. Telur hún hinn
eiginlega róg í þessu máli vera að
stjórnarmenn hafi lekið bréfaskrift-
unum.
„Eins og fólk sér á bréfasam-
skiptum Þráins og Margrétar má
segja að umhyggja hennar sé aðdá-
unarverð,“ segir Birgitta. Margrét
sendi Þráni afsökunarbréf en hann
svaraði henni á ósmekklegan hátt,
að mati Birgittu, sem segist engar
áhyggjur hafa af hreyfingunni.
vidir@frettabladid.is
Reyndu til þrautar
að sættast við Þráin
Þráinn Bertelsson mun segja sig úr þingflokki Borgarahreyfingarinnar eftir
tölvupóst. Í póstinum lýsir Margrét Tryggvadóttir áhyggjum af andlegu ástandi
Þráins. Baldvin Jónsson er nýr formaður stjórnar Borgarahreyfingarinnar.
Þráinn Bertelsson í tölvupósti
til stjórnarmanna Borgara-
hreyfingarinnar í gær: „Ég mun
eftir helgi segja mig úr þingflokki
Borgarahreyfingarinnar með form-
legri yfirlýsingu á Alþingi“.
Í sama tölvupósti Þráins: „Að vísu
er þessi tilraun ekki mjög sannfær-
andi, en það er ekki vegna þess að
bréfritara hafi vantað illviljann held-
ur aðeins andlegt atgervi – til að
mynda kann Margrét ekki einusinni
að stafsetja rétt nafnið á þeim skelfi-
lega sjúkdómi sem hún vill bera út
að herji á mig“.
Margrét til Þráins í gær: „Ég er
ekki vön að standa í deilum við
nokkurn mann og hef aldrei fyrr
upplifað það að einhver félagi minn
eða vinur hafi ekki viljað ræða
málin við mig.“
Þráinn til Margrétar í gær: „Enn-
fremur áskil ég mér allan rétt til
að lögsækja þig fyrir róginn fyrir
dómstólum.“
Herbert Sveinbjörnsson á heima-
síðu sinni í gær: „Það er erfitt að
horfa á barnið sitt verða að athlægi
og gera sig að fífli, horfa á það
breytast í það sem maður fyrirlítur.“
ÞEIRRA EIGIN ORÐ
ÞRÁINN
BERTELSSON
KATRÍN SNÆ HÓLM
BALDURSDÓTTIR
MARGRÉT
TRYGGVADÓTTIR
BIRGITTA
JÓNSDÓTTIR
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
20°
13°
21°
21°
24°
32°
29°
29°
29°
29°
30°
29°
27°
27°
30°
32°
22°
Á MORGUN
Hæg breytileg átt. Síð-
degisskúrir.
MÁNUDAGUR
Hæg breytileg átt. Síð-
degisskúrir vestan til.
HÆGUR UM
HELGINA
Ágætt veður verður
um mest allt land
um helgina. Horfur á
hægviðri og úrkomu-
litlu veðri en á hinn
bóginn má búast við
súldarfl ákum nyrðra,
einkum við ströndina
og síðdegisskúrum
suðvestan til og fyrir
austan. Öllu ákafari
eru skúrirnar sem
greina má á mánudag
á vestanverðu land-
inu. Hitinn er á bilinu
10-16 stig.
12
12
11
12
12
11
11
11
13
11
12
3
6
5
6
1
2
5
5
2
1
5
12
12
12 11
10 10 10
12
1112
16
16
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
LÖGREGLUMÁL Brasilíski lýtalæknir-
inn Hosmany Ramos, sem hand-
tekinn var á Keflavíkurflug-
velli með falskt vegabréf hinn 9.
ágúst, afplán-
ar nú þrjátíu
daga fangelsis-
dóm hér á
landi fyrir þær
sakir. Ramos
er eft irlýst-
ur í Brasilíu,
en hann fékk
heimfararleyfi
úr fangelsi yfir
jólahátíðina síð-
ustu og hefur ekki snúið aftur.
Þegar Ramos var handtekinn var
hann að koma frá Ósló og ætlaði
því næst til Kanada.
Hosmany er einn þekktasti
glæpa maður Brasilíu og hefur
meðal annars verið dæmdur fyrir
morð, mannrán, flugvélaþjófnað og
bifreiðasmygl. Fyrir brot sín hefur
hann hlotið yfir fimmtíu ára fang-
elsisdóm. Að sögn lögreglu á Suður-
nesjum var maðurinn handtekinn á
sunnudag þegar hann var að koma
frá Ósló og var á leið til Kanada.
Fréttastofa Vísis.is hefur eftir
Smára Sigurðssyni hjá Alþjóða-
deild ríkislögreglustjóra að mann-
inum verði að öllum líkindum vísað
úr landi eftir afplánunina og líkur
séu á því að hann verði sendur til
Brasilíu. Hosmany Ramos er fædd-
ur árið 1947. Hann var einn virt-
asti læknirinn á sínu sviði í Rio de
Janeiro á áttunda áratugnum og
var áberandi í skemmtanalífinu.
Honum hefur tvisvar sinnum tekist
að sleppa úr fangelsi frá því hann
var dæmdur árið 1981. - kg
Þekktur brasilískur glæpamaður afplánar dóm hér á landi:
Handtekinn með falskt vegabréf
LEIFSSTÖÐ Ramos var handtekinn í Leifs-
stöð 9. ágúst síðastliðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HOSMANY RAMOS
SAMGÖNGUMÁL Lengd flugbraut
á flugvellinum á Akureyri var
formlega tekin í notkun í gær.
Kristján Möller samgönguráð-
herra vígði brautina ásamt Arn-
grími Jóhannssyni flugstjóra.
Jafnframt því að flugbrautin
var lengd hefur ýmis aðflugsbún-
aður verið endurbættur og endur-
nýjaður. Framkvæmdirnar hófust
vorið 2008.
Flugbrautin var lengd um 460
metra og er nú 2.400 metrar
á lengd. Þá var eldri hluti
hennar styrktur og réttur af.
Endaöryggis svæði voru einnig
stækkuð, úr sextíu metrum í 150
metra við hvorn enda. Flugvöllur-
inn er því betur í stakk búinn að
þjóna millilandaflugi en áður. - þeb
Lengri flugbraut vígð í gær:
Akureyrarflug-
völlur lengdur
FLUGBRAUTIN VÍGÐ Arngrímur Jóhanns-
son flugstjóri og Kristján Möller sam-
gönguráðherra vígðu lengdu flugbraut-
ina í gær.
KABÚL, AP Hamid Karzai, forseti
Afganistans, hefur yfirburði á
aðra frambjóðendur í komandi
forsetakosningum í landinu,
samkvæmt nýrri skoðanakönnun
sem var gerð í síðasta mánuði.
Ætluðu 44 prósent aðspurðra
að kjósa Karzai í kosningunum
sem fara fram á fimmtudaginn.
Það eru þrettán prósentustigum
fleiri en í síðustu könnun sem
var framkvæmd í maí. Helsti
andstæðingur Karzais í kosning-
unum, Abdullah Abdullah, fékk
stuðning 26 prósenta aðspurðra
í könnuninni. Í þeirri síðustu
studdu hann aðeins sjö prósent
og því hefur fylgi hans aukist
til muna. Fari svo að efsti fram-
bjóðandinn í kosningunum
nái ekki fimmtíu prósentum
atkvæða verður kosið á ný á
milli þeirra tveggja efstu. - fb
Forsetakosningar í Afganistan:
Hamid Karzai
með yfirburði
HAMID KARZAI Forseti Afganistans er
líklegur til að halda áfram í embætti
sínu.
Braust inn á veitingastað
Brotist var inn á veitingastað í Vest-
mannaeyjum aðfaranótt föstudags.
Maður var handtekinn í nágrenni
staðarins skömmu eftir innbrotið,
grunaður um verknaðinn. Áfengi sem
stolið var á staðnum fannst einnig.
Innbrot hjá Póstinum
Innbrot var framið í dreifingarstöð
Íslandspósts við Stórhöfða í Reykja-
vík aðfaranótt föstudags. Rótað var í
skápum og skúffum en ekki er vitað
hvort þjófurinn hafði eitthvað á brott
með sér. Hann komst undan.
LÖGREGLUFRÉTTIR
EFNAHAGSMÁL Fjármögnun
Íslandsbanka og Nýja Kaupþings
af hálfu ríkisstjórnar Íslands
hefur verið tryggð, eftir því sem
kemur fram í tilkynningu frá
fjármálaráðuneytinu.
Í tilkynningunni segir að fjár-
mögnunin hafi verið samþykkt
á hluthafafundum í gær. Hún
sé í samræmi við fyrirætlanir
sem greint hafi verið frá hinn
20. júlí síðastliðinn og uppgjörs-
samninga ríkistjórnarinnar við
skilanefndir Glitnis og Kaup-
þings, sem nú er lögð lokahönd á.
Eigið fé Íslandsbanka verði 65
milljarðar króna og Nýja Kaup-
þings 72 milljarðar króna. - kg
Fjármálaráðuneytið:
Fjármögnun
banka tryggð
Bleytutíð hefur áhrif
Erfitt hefur verið að eiga við heyskap
í Eyjafirði vegna mikillar úrkomu
síðustu vikur. Flestir hafa þegar slegið
fyrsta sláttinn, en seinni sláttur hefur
tafist vegna veðursins. Þó munu
sumir líklega ná þremur sláttum, að
því er fram kemur á vikudagur.is.
EYJAFJÖRÐUR
GENGIÐ 14.08.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
233,4663
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,89 126,49
208,17 209,19
179,63 180,63
24,125 24,267
20,819 20,941
17,645 17,749
1,3241 1,3319
196,30 197,46
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR