Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 10
10 15. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
RÍKISFJÁRMÁL Ríkisútgjöld jukust
um 31 prósent á tímabilinu janúar
til júní á þessu ári miðað við árið
í fyrra. Nema gjöldin 259 millj-
örðum og hækka um 61 milljarð.
Tekjur ríkissjóðs drógust á sama
tíma saman um tæp tíu prósent.
Áætlun fjárlaga
gerði ráð fyrir
að innheimtar
tekjur yrðu 219
milljarðar króna
en þær voru 205
milljarðar þegar
uppi var stað-
ið. Þetta kemur
fram í tilkynn-
ingu fjármála-
ráðuneytisins í
fyrradag.
Indriði H.
Þorláksson,
aðstoðarmaður
fjármálaráð-
herra, segir að
þó þetta sé ekki
í samræmi við
fjárlög sé þetta
í takt við það
sem menn sáu
fram á. „Þarna
eru ekki farnar að hafa áhrif þær
tekjuaukandi aðgerðir sem farið
var í á miðju ári eins og hækkun
á áfengis- og tóbaksgjaldi, bensíni
og olíu og skattar á háar tekjur og
fjármagnstekjur,“ segir Indriði.
Athygli vekur að tekjur vegna
fjármagnstekjuskatts aukast um
níu prósent. Er það eðlilegt? „Já,
þetta er ekkert undarlegt því fjár-
magnstekjur eru lagðar á brúttó
vaxtatekjur að meðtöldum verð-
bótum. Þegar verðbólga er mikil
þá hækkar skattstofninn,“ segir
Indriði.
Heildarskatttekjur námu um
178 milljörðum króna og drógust
saman um fjórtán prósent frá því
árið 2008. Töluvert minni tekjur
voru af sköttum á vörum og þjón-
ustu, en þær tekjur drógust saman
um tuttugu prósent. Innheimta
tekjuskatts einstaklinga dróst
saman um sex prósent, en tekju-
skattur fyrirtækja og lögaðila um
37 prósent. Tekjur vegna eigna-
skatts dragast saman um fjörutíu
prósent.
Aukning er á tekjum vegna
áfengis- og tóbaksgjalds um ellefu
prósent en skattar á áfengi hækk-
uðu um 12,5 prósent um síðustu
áramót. Hækkaði áfengi aftur um
fimmtán prósent 1. júní, og telst
því ekki inn í þessar tölur.
Tryggvi Þór Herbertsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segir
þessar tölur endurspegla hversu
alvarlegt ástandið í ríkisfjármál-
unum sé. Ríkisstjórnin tekur of
létt á ríkisfjármálunum og hún
hefur ekki komið fram með raun-
hæfar lausnir um hvernig taka eigi
á málunum, að mati Tryggva.
En hver er leiðin, á að hækka
skatta frekar? „Það er tvíbent því
aukin skattheimta dregur úr fjár-
festingum og eyðslu sem þýðir að
það dregst saman hvað heimilin
eyða miklu,“ segir Tryggvi.
Tekjur vegna virðisaukaskatts
drógust saman um 22 prósent.
„Það þarf að endurheimta skatt-
grunnana, ekki pína þá niður
endalaust, því það sem það gerir
er að draga máttinn úr atvinnu-
lífinu. Þá verður meira atvinnu-
leysi sem aftur dregur úr neyslu,“
segir Tryggvi og játar því að þetta
sé eins konar vítahringur.
vidir@frettabladid.is
Ríkisútgjöld aukast á sama
tíma og tekjurnar minnka
Ríkisútgjöld jukust og tekjur drógust saman á fyrri hluta árs. Indriði H. Þorláksson segir þetta í takt við
það sem menn sáu fram á. Þingmaður segir ríkisstjórnina ekki hafa komið með raunhæfar lausnir um
hvernig taka eigi á ríkisfjármálunum. Tekjur vegna fjármagnstekjuskatts jukust um níu prósent milli ára.
ÁFENGI Skattar á áfengi hækkuðu um 12,5 prósent um áramótin og aftur um fimmtán
prósent 1. júní. Tekjur jukust vegna skattsins um ellefu prósent frá janúar til júní.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
INDRIÐI H.
ÞORLÁKSSON
TRYGGVI ÞÓR
HERBERTSSON
MENNTAMÁL Framhaldsskólarn-
ir fá 48 milljóna aukafjárveitingu
til þess að hægt
verði að veita
öllum nemend-
um yngri en
átján ára skóla-
vist í framhalds-
skólum. Þetta
var samþykkt
á fundi ríkis-
stjórnarinnar í
gær.
Óvenjulega
mikil aðsókn er í framhaldsskóla
þetta haustið. Rúmlega hundrað
nemendur undir átján ára aldri
hafa ekki fengið inngöngu í fram-
haldsskóla. Menntamálaráðuneytið
hefur nú leitað til nokkurra fram-
haldsskóla og Námsflokka Reykja-
víkur um að veita þessum ungling-
um skólavist. - þeb
Aukafjárveiting vegna fjölda:
48 milljónir til
framhaldsskóla
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
www.gardheimar.is
allt í garðinn á einum stað!
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300
helgarafsláttur
25%
DÝRADAGAR um helgina
Dýrahjálp Íslands verður með ættleiðingardag laugardaginn 15.ágúst af Weber grillum
helgarafsláttur
15%
Lengdu sumarið
og lýstu upp gróðurinn!
Hittir þú gæludýrið
þitt í Garðheimum?
Ný sending
af fallegum
pottaplöntum!
LENÍN OG STALÍN Í MOSKVU Lifandi
eftirmynd Stalíns fær sér franskar
meðan annar sem líkist Lenín situr á
stól. Þessir félagar vinna sér inn aur
með því að stilla sér upp í miðborg
Moskvu til myndatöku með ferða-
mönnum.
NORDICPHOTOS/AFP