Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 53
Music Project Museum, er einmitt
helgað hinni gnægtafullu rokk-
sögu Seattle. Safnið er til húsa við
við hina víðfrægu Geimnál (Space
Needle) í vægast sagt óvenjulegri
byggingu. Tvær kenningar eru
uppi um hverju EMP-bygging-
in eigi að líkjast: önnur er sú að
hún eigi að minna á hljóðbylgj-
ur. Hin er sú að arkitektinn hafi
látið brjóta fyrir sig gítar, eins
og óbeislaðir rokkarar eiga til að
gera, og hannað bygginguna með
hliðsjón af því.
Flugsagan í hávegum höfð
Paul Allen, annar stofnandi Micro-
soft, lét reisa safnið, en hann er
afar umsvifamikill í borginni,
rétt eins og Bill Gates, hinn stofn-
andi Microsoft, sem er ásamt Boe-
ing-flugvélaverksmiðjunni stærsti
vinnuveitandi í borginni. Af öðrum
söfnum má einmitt nefna hið afar
glæsilega Boeing-flugvélasafn.
Flugáhugamönnum entist varla
dagurinn þar. Sögu flugsins er
miðlað á afar nútímalegan og
aðgengilegan máta. Þar má meðal
annars finna mikið úrval af flug-
vélakosti fyrri og seinni heims-
styrjaldar, auk þess sem hægt
er að ganga um borð í Concorde-
þotu, í forsetaflugvél sem Kenne-
dy, Nixon og fleiri flugu í.
Ungt fólk og hátt menntastig
Fleiri fyrirtæki eiga höfuðstöðvar
í Seattle, þar á meðal netverslunin
Amazon og kaffihúsakeðjan Star-
bucks. Fyrirtæki í tækni og upplýs-
ingageiranum hafa laðað ógrynni
af ungu, menntuðu fólki til borg-
arinnar. Fyrir vikið er meðalaldur
borgarbúa lágur, ekki nema um 35
ár, og menntunarstigið hátt miðað
við aðrar bandarískar borgir. Að
sama skapi eru börn fá í borginni;
af um 600 þúsund íbúum eru ekki
nema um 70 þúsund börn. Hagsæld
er því tiltölulega mikil, sem birt-
ist meðal annars í því að fasteigna-
verð er óvíða hærra í Bandaríkj-
unum. Borgin glímir þó vissulega
við sín félagslegu vandamál og er
heimilisleysi eitt það mest áber-
andi.
Seattle er ein mikilvægasta hafn-
arborg Bandaríkjanna. Helsta inn-
flutningsvaran er, merkilegt nokk,
íþróttavarningur og útivistafatn-
aður, sér í lagi skór. Fyrirtæki á
borð Adidas og North Face eru með
bækistöðvar í borginni. Varning-
urinn er hannaður þar, framleidd-
ur í útlöndum, fluttur til Seattle og
dreift þaðan um öll Bandaríkin.
Pike Place og söguslóðir
Sjávarútvegur er líka mikilvæg
atvinnugrein í borginni sem og
ferðaþjónusta. Besta dæmið þar
sem þessar tvær greinar renna
saman er sjálfsagt Pike Place,
markaðstorg þar sem meðal ann-
ars má finna nýdregið sjávarfang
beint úr Kyrrahafi, grænmet-
is- og ávaxtamarkaði, auk hins
hefðbundna ferðamannaglingurs.
Markaðurinn er einn vinsælasti
ferðamannastaðurinn í borginni.
Ráðlegra er að fara þangað frekar
á virkum degi en um helgar, þegar
mannfjöldinn er hvað mestur.
Hinum megin við götuna má sjá
allra fyrsta Starbucks-kaffihúsið
í Bandaríkjunum, sem var opnað
snemma á áttunda áratugnum. Þeir
sem eru áfjáðir í að drekka kaffi á
„sögulegum stað“ láta það eflaust
ekki aftra sér þótt þeir geti þurft
að bíða í alllangri röð eftir kara-
mellufrappocino. Þeir sem vilja
bara kaffisopann sem fyrst þurfa
ekki að örvænta. Í Seattle eru um
400 Starbucks-kaffihús og þarf
ekki að leita langt yfir skammt til
að finna annað.
Lenín í Freemont
Af öðrum stöðum sem ferðalangar
í Seattle ættu að gera sér far um að
sjá er hús Edith Mace field, sem stóð
fast á sínu gagnvart stórvertaka,
sem brá þá á það ráð að reisa risa-
vaxna líkamsræktarstöð umhverf-
is húsið hennar. Í leiðinni væri vert
að gera sér ferð upp í gamla hippa-
hverfið Free mont, þar sem finna
má fimm metra háa bronsstyttu af
Vladimir Lenín. Vinalegir heima-
menn segja þér góðfúslega söguna
af því hvernig faðir Sovétríkjanna
rataði í „land hinna frjálsu“.
Grunge-kultúrinn Seattle er þekkt fyrir
rokk og ról og unglingakúltúr en þess má
geta að hljónsveitarinar Nirvana, Pearl Jam
og Fleet Foxes voru og eru ættaðar héðan.
ICELANDAIR mun fljúga til Seattle fjórum sinnum í viku í vetur.
Íbúafjöldi þar er um 600.000 í borginni sjálfri og tæpar 3,3 milljónir á
borgarsvæðinu öllu. Borgin er frægust fyrir nábýli sitt við stórbrotna
náttúru sem er innan seilingar, vötn, firði, víkur, eyjar og vogar. Í
austri rísa svo fjöllin þar sem önnur og hrikafögur veröld opnast
ferðamönnum með ótal möguleikum til útivistar, til dæmis göngu-
ferða og tjaldútilegu á sumrin og skíðaferða á veturna.
FRÁ SEATTLE er stutt að fara með ferju norður til Vancouver í Kan-
ada og eins er tilvalið að bregða sér suður til Portland í Oregon sem
kölluð hefur verið „grænasta borgin“ í Bandaríkjunum. Fyrir þá sem
langar til að aka um vesturströnd Bandaríkjanna er svo tilvalið að
fljúga til Seattle og taka stefnuna þaðan suður til San Fransisco og
jafnvel allt suður til Los Angeles.
HLIÐ AÐ VESTURSTRÖND
BANDARÍKJANNA
Haust 2009
Þú vilt spara í vetur.
Við bjóðum sex leiðir!
með ánægju
Sala á flugsætum fyrir næsta vetur er í fullum gangi. Tryggðu þér
ódýrara flug til London, Kaupmannahafnar, Berlínar, Varsjár,
Friedrichshafen eða Alicante og lyftu þér upp í vetur!
Kynntu þér kostina og bókaðu flug á www.icelandexpress.is
Finndu ódýrasta flugfarið
á www.icelandexpress.is
12.900 kr.
Verð frá:
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Um er að
ræða valdar dagsetningar og takmarkað sætaframboð.
25 - 50%
Börn:
Börn, 11 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum, fá helmingsafslátt af verði
fyrir skatta og aðrar greiðslur á völdum
áfangastöðum.
London
9 x í viku
Køben
7 x í viku