Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 8
8 15. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
1 Hvað er talið að margir
hafi mætt á samstöðufund
InDefence-hópsins á Austurvelli?
2 Hvað heitir ný brú í
Ísafjarðar djúpi?
3 Hvaða hljómsveit ætlar að
spila á þaki Ölstofunnar á
Menningarnótt?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 62
TAÍVAN, AP Um fimm hundruð
manns hafa farist í flóðum og
aurskriðum eftir að fellibylurinn
Morakot gekk yfir Taívan í síð-
ustu viku. Heimili um sjö þúsund
manns hafa eyðilagst auk þess
sem landbúnaður í Taívan hefur
farið illa út úr hamförunum fjár-
hagslega. Ma Ying-jeou, forseti
landsins, segir þetta mesta skað-
ann sem þjóðin hefur orðið fyrir í
fimmtíu ár.
Á fundi um þjóðaröryggismál
óskaði hann eftir því að björg-
unarstarf gengi hraðar fyrir sig.
Rúmlega tuttugu þúsund her-
menn munu aðstoða almenning
við endurreisnarstarfið. - fb
Flóð og aurskriður í Taívan:
Fimm hundruð
hafa látið lífið
EINUM BJARGAÐ Flugmaður heldur á
íbúa úr þorpinu Meilan þar sem mikil
flóð hafa orðið vegna fellibyljarins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GRÆNHÖFÐAEYJAR, AP „Þetta hefur
verið yfirþyrmandi,“ segir Hillary
Clinton, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, um ellefu daga Afríku-
ferð sína. Ferðalaginu lauk hún á
Grænhöfðaeyjum í gær, eftir að
hafa lagt leið sína til Kenía, Suður-
Afríku, Angóla, Austur-Kongó,
Nígeríu og Líberíu.
„Mér þykir yndislegt að koma til
Afríku,“ sagði hún á Grænhöfða-
eyjum í gær, og bætti því við að
eftir ferðina væri hún enn ákveðn-
ari í að láta til sín taka þar í fram-
tíðinni.
Hún segist hafa fært Afríku-
ríkjum boðskap frá stjórn Baracks
Obama forseta um „strangan kær-
leiksaga“.
Með Afríkuferðinni hefur Clin-
ton aftur stigið inn í sviðsljós-
ið sem utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, en hún hafði mánuðum
saman látið lítið á sér bera og jafn-
vel fallið í skuggann af bæði Bar-
ack Obama forseta og Joe Biden
varaforseta, sem hafa látið til sín
taka í utanríkismálum á ferðum
sínum erlendis.
Á ferð sinni um Afríkuríki hefur
Clinton lagt sérstaka áherslu á
stöðu kvenna, matvælaöryggi og
þróunarmál. Í Austur-Kongó hitti
hún að máli konur sem hafa mátt
þola hópnauðganir og aðrar mis-
þyrmingar, og skýrði þeim frá því
að Bandaríkin muni veita fé til að
berjast gegn slíku.
„Það er nánast ómögulegt að
lýsa þjáningum þeirra,“ sagði hún
eftir að hafa rætt við konurnar.
Repúblikanar í Bandaríkjunum
brugðust hins vegar ókvæða við
þegar hún í Nígeríu líkti nýlegum
kosningum, sem óvissa ríkir um
vegna ásakana um víðtækt kosn-
ingasvindl, við forsetakosning-
arnar í Bandaríkjunum árið 2000,
þegar George W. Bush vann sigur
á Al Gore með umdeildum hætti.
„Lýðræðið hjá okkur er enn
í þróun,“ sagði hún. „Í forseta-
kosningunum hjá okkur árið 2000
réðust úrslitin í einu ríki þar sem
bróðir eins forsetaframbjóðand-
ans var ríkisstjóri. Þannig að við
höfum líka okkar eigin vandamál
að glíma við.“
Einna mesta athygli bandarískra
fjölmiðla vöktu þó hörð viðbrögð
hennar við spurningu nemanda
nokkurs í Kongó, en nemandinn
spurði hana um afstöðu „herra
Clintons“ til þess að Kínverjar
veiti Kongó lán: „Viltu að ég
segi þér hvað manninum mínum
finnst?“ spurði hún á móti, forviða:
„Maðurinn minn er ekki utanríkis-
ráðherra, heldur ég.“
gudsteinn@frettabladid.is
Hillary ætlar að láta
til sín taka í Afríku
Hillary Clinton segir ellefu daga Afríkuferð sína hafa verið yfirþyrmandi, en
hún sé enn ákveðnari en áður í að láta til sín taka þar í framtíðinni. Hún segist
hafa fært Afríkuríkjum boðskap frá Obama um „strangan kærleiksaga“.
MEÐAL KVENNA Í AUSTUR-KONGÓ Þvert á ráðleggingar aðstoðarmanna sinna hélt
Hillary Clinton til hinnar stríðshrjáðu borgar Goma í austanverðu landinu, þar sem
hún hitti fórnarlömb nauðgara. NORDICPHOTOS/AFP
ATVINNA „Atvinnulífið bíður enn –
en þolinmæði þess er algerlega á
þrotum,“ segir í fréttatilkynningu
frá Samtökum verslunar og þjón-
ustu (SVÞ) sem send var í gær.
Eitt ár er liðið frá bankahrun-
inu og hafa landsmenn beðið eftir
aðgerðum af hendi stjórnvalda
sem geti skapað forsendur fyrir
endurreisn atvinnulífsins, segir
Andrés Magnússon, framkvæmda-
stjóri SVÞ. Öll orka stjórnmála-
manna í sumar hefur hins vegar
farið í umfjöllun um Icesave, að
mati Andrésar, sem þó segist ekki
vilja gera lítið úr því stóra máli.
„Stjórnmálamenn verða hins
vegar að geta hugsað um fleira
en eitt í einu. Það skortir á að svo
hafi verið,“ segir Andrés. Engar
líkur eru á vaxtalækkun, þar
sem gengi krónunnar hefur ekki
styrkst eins og vænst var, að mati
Andrésar.
„Eins og staðan er í dag eru
engar líkur á að gengi krónunn-
ar styrkist og erum við föst í hjól-
fari sem engin leið er að kom-
ast upp úr nema stjórnvöld grípi
til aðgerða,“ segir Andrés. Telur
hann tíma aðgerða runninn upp.
„Ætla stjórnvöld að grípa til
aðgerða sem stuðlað geta að styrk-
ingu krónunnar og þar með lækk-
un vaxta? Þetta er sú lykilspurn-
ing sem allir bíða eftir svari við.
Afkoma heimila og fyrirtækja
snýst nú um þessa tvo þætti,“
segir Andrés. - vsp
Samtök verslunar og þjónustu gagnrýna stjórnvöld fyrir aðgerðaleysi:
Þolinmæði atvinnulífsins á þrotum
ANDRÉS MAGNÚSSON Hann telur
afkomu heimila og fyrirtækja snúast um
styrkingu krónunnar og lækkunar vaxta.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÖRYGGISMÁL Neyðarverðir hjá
Neyðarlínunni afgreiddu 192.149
erindi á árinu 2008 en þau voru
tæplega 189 þúsund árið 2007.
Langoftast var óskað eftir aðstoð
lögreglu en erindi vegna sjúkra-
flutninga voru 30.596 og 5.304 ósk-
uðu eftir aðstoð slökkviliðs. Hring-
ingum vegna náttúru og veðurs
fjölgaði verulega og má að miklu
leyti rekja það til jarðskjálftans á
Suðurlandi í lok maí. Hins vegar
fækkaði útköllum vegna leitar og
björgunar mjög milli ára.
Heildarfjöldi mála hjá 112 á
árinu 2008 var 270.843 og bárust
því nær áttatíu þúsund erindi sem
ekki teljast til neyðartilvika. - shá
Neyðarlínan 112:
Fengu 270
þúsund símtöl
Brimbrjótur í Bolungarvík
Framkvæmdir eru nú í gangi við brim-
brjótinn í Bolungarvíkurhöfn. Verkið
felst í rúmlega þrjú þúsund fermetra
þekjusteypu og lögnum og mun
athafnasvæði við höfnina því stækka
talsvert. Búist er við því að verkinu
ljúki um miðjan október.
BOLUNGARVÍK
KJARAMÁL Kjarasamningur SFR
– stéttarfélags í almannaþjón-
ustu og ríkisins var samþykkt-
ur í gær.
Greidd voru atkvæði um
samninginn og lauk atkvæða-
greiðslunni á hádegi í gær. Tæp-
lega 6.400 manns voru á kjör-
skrá en átján prósent greiddu
atkvæði. Greiddu 54 prósent
atkvæði með samningnum en 39
prósent á móti. Tæp sjö prósent
skiluðu auðu.
Kjarasamningurinn var undir-
ritaður 3. júlí síðastliðinn og
hefur síðan þá verið kynntur
félagsmönnum á fundum. - þeb
Stéttarfélag í almannaþjónustu:
SFR samþykkti
kjarasamning
Við erum ekkert að
sykurhúða vandamálin.
Við forðumst þau ekki.
HILLARY CLINTON
UTANRÍKISRÁÐHERRA BANDARÍKJANNA
RÍKISFJÁRMÁL Lækka á laun ríkis-
starfsmanna, sem hafa hærri
laun en 400 þúsund krónur á
mánuði, um þrjú til tíu prósent.
Einnig á að taka fyrir dagpen-
inga ríkis-
starfsmanna á
ferðum innan-
lands. Þetta
eru tvær af
þeim tillögum
sem Steingrím-
ur J. Sigfús-
son fjármála-
ráðherra lagði
fram á ríkis-
stjórnarfundi í
gær. Með þess-
um aðgerðum verður reynt að
lækka kostnað við rekstur rík-
isins.
Aðrar tillögur voru meðal ann-
ars að öllum aksturssamningum
verði sagt upp og settar verði
viðmiðunarreglur um greiðslur
fyrir störf í nefndum, stjórnum
og ráðum. Stefnt verður að lækk-
un risnukostnaðar um fimmtán
prósent frá því í fyrra. - vsp
Lagt til að meðallaun lækki:
Vilja lækka
kostnað ríkisins
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
VEISTU SVARIÐ?