Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 81
LAUGARDAGUR 15. ágúst 2009 57
FÓTBOLTI Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, viðurkennir í samtali
við Daily Mail að hafa á stundum
sagt ósatt í fjölmiðlum þegar leik-
menn hans hafa lent í vafasömum
atvikum á vellinum.
Wenger segist hafa notað þá
taktík að segjast ekki hafa séð
hlutina þegar hann hafi hreinlega
ekki getað varið sinn leikmann.
„Það er af því að maður er
að hugsa af hverju í fjandanum
leikmaðurinn hafi gert þetta. Þá
getur maður ekki útskýrt málið í
fjölmiðlum. Stundum hef ég séð
atvikin en sagt í viðtölum að ég
hafi ekki séð þau til að vernda
leikmanninn,“ sagði Wenger.
„Þjálfari er til þess að hjálpa.
Hann verður að hugsa að ef hann
hjálpar á réttan hátt munu leik-
menn bregðast vel við því sem
hann gerir.“ - hbg
Arsene Wenger:
Viðurkennir að
hafa sagt ósatt
ARSENE WENGER Segir ekki alltaf satt.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Birkir Sveinsson, móta-
stjóri KSÍ, staðfesti í gærkvöld að
leik KS/Leifturs og Hamars í 2.
deildinni hafi verið frestað vegna
veikinda leikmanna Hamars en
leikurinn átti að fara fram í dag.
„Það eru einhverjir leikmenn
greindir með svínaflensu hjá
Hamri en margir eru veikir og
ekki greining komin hjá þeim
öllum. Þetta virðist vera svipað
tilfelli og hjá Grindavík,“ segir
Birkir.
Birkir segir ekki fleiri tilfelli
hafa komið inn á borð til sín að
svo stöddu.
„Eins og staðan er núna hafa
ekki fleiri beiðnir borist okkur
en þessar tvær frá Grindavík og
Hamri en við erum við öllu búnir.
Mótanefndin hefur annars ákveð-
ið hvaða forsendur þurfi að liggja
á baki því að frestun leikja fáist
og það er ef verulegt skarð er
höggvið í leikmannahóp liðanna,“
segir Birkir.
Guðmundur Valgeir Ásgeirs-
son, formaður Hamars, staðfesti
við Fréttablaðið að níu byrjunar-
liðsmenn félagsins væru veik-
ir og þar af tveir þegar greind-
ir með svínaflensuna en nokkrir
aðrir bíða eftir niðurstöðum úr
rannsóknum. - óþ
Mótastjóri staðfestir frestun:
Svínaflensa hjá
Hamarsmönnum
MÓTASTJÓRI Birkir Sveinsson hjá móta-
nefnd KSÍ hefur í nógu að snúast þessa
dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL
HANDBOLTI Strákarnir í U-21 árs
landsliði Íslands í handbolta luku
keppni á HM í Egyptalandi í gær
með 39-38 sigri gegn Hollandi í
tvíframlengdum leik. Anton Rún-
arsson skoraði sigurmark Íslands
þegar nokkrar sekúndur voru eftir
af seinni framlengingunni.
Mörk Íslands skoruðu Ólafur
Gústafsson 10, Rúnar Kárason 10,
Ólafur Bjarki Ragnarsson 5, Orri
Freyr Gíslason 4, Ásbjörn Frið-
riksson 3, Þröstur Þráinsson 2,
Oddur Grétarsson 2, Anton Rún-
arsson 1, Andri Heimir Friðriks-
son 1 og Guðmundur Árni Ólafs-
son 1. Í markinu varði Sveinbjörn
Pétursson 12 bolta og Aron Rafn
Eðvarðsson 8.
„Það var mjög ljúft að enda þetta
með stæl fyrst við vorum að keppa
um þetta sæti. Við byrjuðum leik-
inn betur en svo var þetta bara
í járnum allan tímann og ég er
ánægður með spilamennsku liðs-
ins. Við renndum dálítið blint í sjó-
inn fyrir keppnina en það er búinn
að vera mikill stígandi í leik liðs-
ins. Varnarleikurinn hefur verið
okkar helsti styrkur í keppninni en
við lentum í vandræðum sóknar-
lega. Það hefur samt verið að slíp-
ast mikið,“ segir Heimir Ríkarðs-
son, þjálfari liðsins.
Með sigrinum varð Ísland í 13.
sæti og vann svokallaðan forseta-
bikar en tólf efstu liðin í riðlunum
fóru áfram í milliriðil. - óþ
U-21 árs landslið Íslands varð í 13. sæti á HM:
Endaði með stæl
ÖFLUGUR Rúnar Kárason átti góðan leik gegn Hollandi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI