Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 6
6 15. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
Sumarferð
Samfylkingarinnar
Bláskógabyggð, laugardaginn 29. ágúst
Öll fjölskyldan er velkomin í skemmtiferð Samfylkingar-
innar í Bláskógabyggð. Lagt af stað frá BSÍ kl. 10:00. Fyrsti
áfangastaðurinn er „í túninu heima“ í Kvosinni í Mosfellsdal.
Þaðan liggur leiðin á Þingvelli, Laugarvatn og í Aratungu.
Ýmislegt skemmtilegt verður í boði: Hestasýning í Frið-
heimum, sundferð, heimsókn á Torfastaði og í Miklaholt.
Deginum lýkur svo að vanda með glæsilegri grillveislu að
hætti jafnaðarmanna.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Miðar eru seldir á skristofu Samfylkingarinnar,
Hallveigarstíg 1, Reykjavík til 22. ágúst.
Tekið á móti pöntunum í síma 414 2200 og í netfanginu:
sumarferd@samfylking.is
Allir með!
Golfmót
Samfylkingarinnar
Vífilstaðavelli fimmtudaginn 27. ágúst
Leikið verður eftir Texas scramble fyrirkomulagi.
Skráning fyrir 26. ágúst á www.golf.is og í síma 414 2200
Nánari upplýsingar um sumarferðina og golfmótið
er að finna á heimasíðu Samfylkingarinnar:
www.samfylking.is
NEYTENDAMÁL Það er óraunhæft að
leggja af forverðmerkingar á kjöt-
vöru, segir Steinþór Skúlason, for-
stjóri Sláturfélags Suðurlands (SS).
„Það er gríðarleg samkeppni á
milli verslana eins og sjá má í aug-
lýsingum alla daga.“
Eins og Fréttablaðið hefur
fjallað um undanfarna daga telja
Neytendastofa, Alþýðusambandið
og talsmaður neytenda það ekki
standast samkeppnislög að for-
verðmerkja vöru. Samkeppnis-
eftirlitið rekur stjórnsýslumál til
að fá úr því skorið hvort svo sé.
Málin snúa að smásöluverslun-
um og hópi kjötframleiðenda og
birgja. Þeir sem sinna samkeppn-
ismálum eru almennt þeirrar skoð-
unar að leggja skuli niður forverð-
merkingar og það aðeins tæknilegt
atriði standi í veginum.
Kjötmarkaðurinn á Íslandi
er hins vegar of lítill til að gera
grundvallar-
breytingar á
dreifingu vör-
unnar og það
hefði aukinn
kostnað í för
með sér fyrir
neytendur,
segir Steinþór.
„Umræða um
forverðmerking-
ar á matvöru er
á villigötum. Þó
að leiðbeinandi verð sé gefið upp
útilokar það ekki verðsamkeppni.
Verslunin getur, ef hún vill, boðið
afslátt af þessari vöru eins og
hverri annarri.“
Margir sem Fréttablaðið hefur
rætt við segja að forverðmerkingar
viðgangist vegna þess að fram-
leiðendur ráði ekki yfir tækni
til að vigta og pakka vöru eftir
nákvæmri þyngd. Steinþór segir
þetta að nokkru leyti rétt. „Það er
hægt að breyta þessu en hér eru
litlir framleiðendur sem ráða ekki
við að kaupa dýrasta vélbúnað sem
gerir þetta mögulegt. Verði okkur
gert að breyta þessu af samkeppnis-
yfirvöldum óttast ég að framleið-
endum fækki, með neikvæðum
áhrifum á samkeppni.“
Gísli Tryggvason, talsmaður
neytenda, bendir á að hver og einn
kaupmaður gæti sagt framleið-
endum vöru að hann hygðist selja
á ákveðnu verði; sem síðan yrði
verðmerkt í samræmi við það. „Það
hlýtur að vera hægt að fá verð-
ið uppgefið frá smásalanum þó að
pakkningar, tækin og fjárfestingin
séu hjá framleiðandanum.“
Steinþór segir þetta fullkomlega
óraunhæft. „Við getum ekki boðið
verslunum að verðmerkja fyrir
hverja og eina. Þá yrðum við að
halda margfaldan lager, einn fyrir
hvern smásala með sér verðmerk-
ingu. Þetta er ekki framkvæman-
legt.“ svavar@frettabladid.is
Merkingar eðlilegar
á litlum markaði
Forstjóri SS segir umræðu um forverðmerkingar á villigötum. Samkeppni með
kjötvörur sé virk og aðeins með öðrum hætti en á annarri dagvöru. Annað
segja samkeppnisyfirvöld, sem vilja breytingar á merkingunum án tafar.
STEINÞÓR
SKÚLASON
LÖGREGLUMÁL Bankastjórn Seðla-
banka Íslands styrkti í janúar
starfsmannafélag lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu um 300
þúsund krónur. Með þessu vildu
bankastjórar þakka lögreglumönn-
um sem tókust á við mótmælend-
ur í anddyri bankans í mótmælum
fyrr í vetur.
„Ég lít ekki svo á að þarna hafi
menn verið að styrkja lögregluna,
heldur viljað koma á framfæri per-
sónulegu þakklæti til manna sem
stóðu þarna í eldlínunni,“ segir
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins.
Reglur gilda um móttöku lögreglu-
manna á gjöfum, en þetta fellur
ekki undir þær, að mati Stefáns,
þar sem gjöfin hafi verið til starfs-
mannafélagsins, ekki embættisins
eða lögreglumannanna sjálfra.
„Mér finnst það hið eðlilegasta
mál ef menn eru ánægðir með lög-
regluna, og ekkert óeðlilegt við
það ef menn vilja fylgja því eftir,“
segir Stefán. Ýmis fyrirtæki hafa
styrkt starfsmannafélagið í gegn-
um tíðina, til dæmis með matar-
eða sælgætisgjöfum fyrir fjöl-
skyldudaga, segir Stefán.
Ingimundur Friðriksson, einn
þáverandi seðlabankastjóra, hafði
milligöngu um gjöfina, en ákvörð-
un um hana var tekin af banka-
stjórn Seðlabankans, samkvæmt
upplýsingum frá bankanum. Aðrir
styrkir bankans hafi aðallega verið
til mannúðar- og líknarfélaga, auk
samtaka á listasviði. - bj
Styrkur Seðlabankans til starfsmannafélags lögreglu eðlilegur segir lögreglustjóri:
Lögreglan fékk 300 þúsund
MÓTMÆLI Lögreglumenn stóðu í
ströngu í anddyri Seðlabankans í bús-
áhaldabyltingunni í desember.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
DÓMSMÁL Borghildur Guðmunds-
dóttir, sem hefur verið gert að
fara til Bandaríkjanna með syni
sína tvo, heldur af stað með þá til
Bandaríkjanna í dag. Hún mun
eiga fund strax á mánudaginn með
lögfræðingi sem hún hefur fengið
þar í landi.
Borghildur var gift bandarískum
hermanni sem vill höfða forræðis-
mál á hendur henni í Bandaríkj-
unum. Héraðsdómur Reykjaness
úrskurðaði að hún hefði ekki mátt
fara með börnin
til Íslands án
leyfis fyrrver-
a nd i ma n ns
síns, þar sem
lögskilnaður
hafði ekki geng-
ið í gegn. Hún
skyldi því fara
utan innan sex
vikna, sem eru
liðnar á morgun. Hæstiréttur stað-
festi svo þann úrskurð.
Þar sem hún hefur hvorki
dvalar- né atvinnuleyfi í Banda-
ríkjunum mun hún aðeins geta
dvalist þar í þrjá mánuði. Líklegt
er hins vegar að forræðismál muni
taka lengri tíma en það, og þá er
viðbúið að hún þurfi að skilja syni
sína eftir hjá föður þeirra, sem
þeir hafa ekki hitt í hálft annað
ár. Hún segir yngri drenginn, sem
er á fimmta ári, hvorki muna eftir
föður sínum né tala ensku lengur.
- þeb
Borghildur Guðmundsdóttir var dæmd til að fara með syni sína til Bandaríkjanna:
Heldur til Bandaríkjanna í dag
BORGHILDUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
VÖRUÚRVAL Framleiðandi kjötvöru segir verslunina hafa það í hendi sér að bjóða
afslætti af forverðmerktri vöru. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL .
Vandamálið, sem leyst er með
forverðmerkingum, er að stykkin
(ostur, álegg, lærisneiðar) eru ekki
jafn þung. Ef horfið verður frá verð-
merkingu með þessum hætti kemur
þrennt til greina að mati Steinþórs
Skúlasonar, forstjóra SS.
■ Verslunin vigtar sjálf og verðmerk-
ir. Slíkt hefði í för með sér mikinn
kostnað og er í raun óraunhæft.
■ Verslunin hillumerkir verð á
tiltekinni vöru, til dæmis þúsund
krónur kílóið. Þar sem varan er
ekki öll af sömu þyngd verður
neytandinn að reikna í huganum
hvað varan kostar: þyngd sinnum
verð. Í þessu felst mikið óhag-
ræði.
■ Að flokka vöruna undir mörg
vörunúmer í þyngdarflokkum,
sem yrði mjög flókið fyrir neyt-
endur og myndi gera verðsam-
anburð erfiðan. Einnig myndi
kostnaður aukast við framleiðslu,
sem skilar sér í hærra verði.
■ Stærstu framleiðendurnir gætu
framleitt í breytilegri þyngd sem
myndi gera minni framleiðendum
erfitt eða ómögulegt að keppa á
markaði.
FORSENDUR FORVERÐMERKINGA
AUSTURRÍKI, AP Tvisvar í þessari
viku hafa ungir drengir lokað
sig inni í póstkassa í Austurríki.
Á fimmtudagskvöld kallaði
starfsfólk póstsins í þorpinu
Schwarzach í Vorarlberg-héraði
á slökkviliðsmenn til að bjarga
átta ára dreng út úr póstkassa,
en þangað hafði honum einhvern
veginn tekist að álpast. Lykill-
inn að kassanum fannst ekki hjá
póstinum.
Sams konar atvik átti sér stað
á mánudag í bænum Feldkirch,
sem er skammt frá Schwarzach,
þegar fjögurra ára snáða tókst
að loka sig inni í póstkassa.
- gb
Vandræði í Austurríki:
Drengjum náð
út úr póstkassa
Munt þú fylgjast með leikjum
kvennalandsliðsins á EM í Finn-
landi?
Já 54,7%
Nei 45,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætlar þú að fylgjast með enska
boltanum fyrstu sýningarhelg-
ina?
Segðu skoðun þína á Vísir.is
KJÖRKASSINN