Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1944, Qupperneq 6

Samvinnan - 01.06.1944, Qupperneq 6
SAMVINNAN 5.-6. HEFTI þroskaaldri eftir 1918, en þekkti lítið eða ekki hina hörðu baráttu fyrri kynslóða. Margt af þessu fólki hafði dvalið í Danmörku og notið þar hlunninda án þess að kynnast hinu sanna viðhorfi Dana, sem var ó- breytt undir niðri, þó að minna bæri á yfirþjóðar- hugsunarhættinum heldur en meðan danska þjóðin taldi sér trú um, að hún ætti landið. Þessi skoðana- munur kom glögglega fram 1940—41, þegar byrjað var að sækja fast á um skilnaðinn. Sumarið 1939, nokkrum vikum áður en heimsstríðið skall á, sendu Danir hingað til lands sinn langsnjall- asta stjórnmálamann, Th. Stauning forsætisráðherra. Talið var, að ráðherrann væri í sumarleyfi, en það var yfirskin eitt. Enn hefur enginn maður í þvílíkri stöðu tekið sér hér sumarhvíld frá að stjórna löndum og ríkjum, þó að það verði vafalaust síðar mjög algengt. Stauning kom til að kanna hugi íslendinga og til að rannsaka, hvort Danir þyrftu að búast við skilnaðar- kröfum frá hendi þjóðarinnar. Stauning var vel til þessa starfs fallinn. Hann var mikilhæfur maður og hafði yfirleitt haft góð kynni af íslendingum. Auk þess taldi hann sig beinan flokksbróður Alþýðuflokks- manna og hafði við þá mikil skipti. Auk þess leitaðist hann við að kanna hugi annarra manna, en hafði þó ekki tök á að hitta að máli, svo að heitið gæti, bændur eða framleiðendur og verkamenn utan Reykjavíkur. Skömmu áður en hann sté á skip óskaði hann eftir samtali við mig um skilnaðarhorfurnar. Sagði ég við hann hið sama og ég hafði sagt í ótal blaðagreinum, að Danir og íslendingar yrðu að skilja. Pólitískt nauð- ungarsamband hefði ætíð gefizt illa, og léti það lak- asta í báðum þjóðunum ná mestum þroska. Benti ég honum á, að Danir færu allra þjóða bezt með sitt eig- ið land, en hefðu allra þjóða minnsta gæfu til að stýra öðrum þjóðum. Því meiri völd, sem Danir hefðu haft á íslandi, því ver hefði íslenzku þjóðinni vegnað, en framfarir og menning aukizt í landinu eftir því sem þjóðin hefði haft meiri sjálfstjórn. Um konung tók ég fram, að sízt myndi hann binda þjóðirnar saman. Að vísu hefði hann verið óaðfinnanlegur þingræðiskon- ungur. En hann væri danskur maður, mjög samgró- inn sinni eigin þjóð, en fullkomlega útlendingur á íslandi. Það, sem ég sagði sem mína skoðun, var áreiðanlega líka skoðun alls þorra íslendinga þeirra, sem ekki voru bundnir hagsmuna eða kynningarböndum við Dan- mörku og danska menn. En Stauning hafði yfirleitt umgengizt þetta fólk. Og það mun hafa sagt honum hérumbil það sem hann vildi óska sér, að íslendingar væru yfirleitt með sambandinu, og að það væru ekki nema einstaka sérvitringar og öfgamenn, sem létu sér koma til hugar, að íslendingar fengju fullt frelsi. Þeg- ar kom til Danmerkur, var Stauning ekki myrkur í máli, og sagði blaðamönnum Dana, en þeir aftur dönsku þjóðinni, að það væri ekki nema einn maður á íslandi, sem vildi „fullt frelsi þjóðinni til handa.“ Af þessu má glögglega sjá, að Stauning taldi, að íslend- ingar hefðu ekki fullt frelsi, ef unnt væri að hindra skilnað, það er afnám konungsdóms á íslandi. Þetta var réttur skilningur. í Danmörku, og út um allan hinn menntaða heim, var ísland jafnan talið hjá- lenda Danmerkur, meðan konungur Danmerkur var æðsti valdsmaður íslenzku þjóðarinnar. Skömmu eftir að Stauning kom heim, hófu Þjóð- verjar heimsófriðinn og næsta vor, 1940, hertóku þeir Danmörku. Þegar sú fregn barst til íslands, var aug- ljóst, að um margra ára skeið gæti konungur Dana ekki gegnt störfum vegna íslendinga, og stjórn Dana ekki annast utanríkismál og strandgæzlu fyrir íslend- inga. Afréð Alþingi þá, að íslenzka þjóðin skyldi taka allt stjórnarvaldið í sínar hendur. Ríkisstjórnin tók að sér, að svo stöddu, að fara með vald konungs, en nokkrir íslenzkir menn voru settir til að gæta utan- ríkismálanna erlendis. Strandgæzlan hvarf nú alger- lega í hendur íslendinga. Þessir atburðir sýndu ljóslega, að þegar mest á reyndi, eins og í Napoleonsstyrjöldinni og tveim heimsstríðum síðari tíma, gátu dönsk stjórnarvöld á engan hátt gegnt forustustörfum um íslenzk mál. Þessi staðreynd gaf skilnaðarhugsjóninni byr undir báða vængi. Einum mánuði eftir að Þjóðverjar her- tóku Danmörku, komu Bretar í sömu erindum til Reykjavíkur. Hétu þeir að hverfa úr landi með allt sitt að stríðinu loknu og rýra í engu frelsi og sjálf- stæði íslendinga. Var máli Breta vel tekið eftir at- vikum. Floti þeirra hafði öldum saman haldið sjó- ræningjum frá varnarlausum ströndum íslands, og í heimsstyrjöldum, þegar samböndin slitnuðu við Norð- urlönd, höfðu Bretar reynst íslendingum góður ná- búi. Fór enn á sömu leið í þetta sinn. Næsta haust, 1940, þótti mér einsætt að reyna á, hvort Stauning hefði raunverulega haft sannar spurnir af frelsisvilja íslendinga. Ritaði ég þá um vet- urinn hvatningargreinir í Tímann um þjóðveldismál- ið. Taldi ég, að styrjöldin hefði rofið stjórnlagaböndin milli íslands og Danmerkur. Væri þjóðinni hollast að halda þá sem fyrst þjóðfund á Þingvöllum, og ráð- stafa þar konungsvaldinu í hendur íslenzkum forseta. Gerði ég ekki ráð fyrir, að þjóðfundurinn gæti gert annað og meira en að skipuleggja hið æðsta vald sem nú var, ef svo mátti segja, heimilislaust í landinu. Ég hélt ennfremur fram, að ísland stæði stórum betur að vígi á væntanlegum friðarfundi, ef það hefði komið 138

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.