Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1944, Blaðsíða 36

Samvinnan - 01.06.1944, Blaðsíða 36
SAMVINNAN 5.-6. HEFTI an og ólmaðist eins og mannýgur tarfur, meðan Karólína bar henni hey og setti tvo snjóhnausa hjá henni. Svo talaði hún við hana í blíðum róm, og smám saman tók kvígan að spekjast, eins og hún skildi, að Karólína vildi sér vel. Hún var talsvert borginmannleg yfir þessari ný- fengnu eign sinni, er hún lokaði hlöðudyrpnum. Þeg- ar hún gekk fram fram hjá heystakknum, varð henni ósjálfrátt litið um öxl. Hjá hlöðuhorninu stóð glor- soltinn og grindhoraður úlfur. Hann titraði í nár- unum og hárið á herðakambinum stóð beint upp í loftið. Það skein í berar vígtennurnar. Svo rak hann út úr sér blóðrauða tunguna og sleikti út um. Hann lyfti annarri framlöppinni. Karólína stóð grafkyrr. Allt í einu sneri úlfurinn sér við og hvarf út í mugg- una. Karólína gekk föstum skrefum gegnum snjókófið, heim að kofanum. Hún fann, að hræðslan mundi yfir- buga sig, ef hún greikkaði sporið. En þegar hún kom ofan í gilbrekkuna, datt henni í hug, að úlfurinn kynni að stökkva á sig ofan af gilbarminum. Þá tók hún undir sig stökk, hljóp heim og skellti kofahurð- inni í lás á eftir sér. Það skipti engum togum. Um leið og hún skautst inn úr dyrunum, rak úlfurinn upp grimdarlegt ýlfur á þekjunni yfir höfði hennar. Annar tók þegar undir niðri í gilinu. Um kvöldið stóðu þeir urrandi við dyrnar og klór- uðu í hurðina. Þeir höfðu komizt í kjötið við kofa- vegginn. Karólína lét ljósið lifa og sat alla nóttina og hafði gætur á pappírsskjánum. Skjárinn var þrengri en svo, að úlfur gæti auðveldlega smogið um hann. En hún var reiðubúin að skjóta, ef löpp eða trýni kæmi þar í ljós. Nú hafði hún öxina hjá sér í kofanum og var ákveðin í að nota hana til að höggva borðið og bekkina heldur í eldinn en hætta sér út. En hún gat treynt heyið í tvo daga, og þá þóttist hún sjá af birtunni, sem lagði í gegnum snjóinn á ljór- anum, að sólin væri tekin að skína. Hún tók skammbyssuna og opnaði dyrnar með mestu varúð. Eldsneytislaus gat hún ekki verið til lengdar, svo á nokkuð varð að hætta. Hún sá engar úlfaslóðir hjá kofanum, og kvígan var heil á húfi í hlöðunni. Eftir það fór hún aldrei út fyrir dyr, án þess að hafa byssuna með sér. Nú hafði hún sífellt í huga aðvörun Karls. Hann hafði skrifað, að það gætu komið úlfar og — útlagar. Þegar hún skaraði í eldinn, hafði hún hugfast, að reyk- urinn gæti séðst úr margra mílna fjarlægð í björtu veðri og sagt til kofans. Þegar leið á veturinn, ruglaðist hún algerlega í tímatalinu. Það var liðið fram í febrúar, þótt hún vissi það ekki. Langur bjartviðris- og kuldakafli var senn á enda, og nýtt hríðarkast var að skella á. Karólína hafði dregið að sér mikið af heyvöndlum, þvegið upp matarílátin og var nú að greiða sér, áður en hún færi í rúmið. Hún hlustaði á veðurgnýinn, sem buldi og æddi með ægilegum hvin á kofaþekjunni. Allt í einu varð henni litið upp, og hún sá reykpípuna svigna til og bresta. Hún varð sem steini lostin af skelfingu. Svo heyrði hún, að maður kallaði. Það var maður á kofaþekjunni! í moldviðrinu hafði hann rekist á reykpípuna. Enginn heiðarlegur maður gæti hafa hætt sér langt frá heimkynni sínu í slíku veðri. Þetta gat enginn verið nema útilegumaður, sem væri að villast í hríðinni. Hann hafði rekist á pípuna að austanverðu og hlaut því að stefna í gilið. Eftir fáein skref hlaut hann að steypast fram af barminum ofan í snjódyngjuna niðri í gilinu. Þar mundi hann verða til, og bein hans mundu ekki finnast, fyrr en snjóinn leysti. Hún hugs- aði með sér: „Ég hreyfi mig ekki. Þetta kemur mér ekki við. Ég hleypi honum ekki inn. Ég verð að hugsa um barnið.“ En ósjálfrátt stökk hún að reykpípunni og kallaði: „Leggstu niður! Skríddu! Gilbarmurinn fram undan! Haltu til hægri! Þar er kaðall! Heyrirðu það?“ Hún heyrði óglöggt til hans gegnum veðurgnýinn. „Það er gata“, kallaði hún. Gata, niður eftir — á vinstri hönd.“ Hún heyrði ekki, hvort hann svaraði. Hún þreif byssuna og miðaði á dyrnar, gekk aftur á bak inn fyrir borðið og beið þar, reiðubúin að skjóta. Hún iðraðist nú þess, er hún hafði gert, og fann jafnframt, að hún hefði ekki getað látið það ógert. Allt í einu svipti stormurinn upp hurðinni. Snjór þyrlaðist inn um gættina og maðurinn kom í ljósmál. Hann var hár og hrikalegur, í loðúlpu, allur fann- barinn. Það rifaði aðeins í augun undir klömbruðum augnabrúnum. Andartak leið, áður en hún dró kennsl á hann og hljóp með feginsópi í klökugan faðm hans. „Hvernig — hvernig í ósköpunum ertu kominn hingað?“ stundi hún upp eftir stundarkorn. Hún trúði ennþá ekki, að þetta væri annað en draumur. Hún fór höndum um snjóugan loðfeldinn hátt og lágt til að fullvissa sig um, að þetta væri Karl og enginn annar. „He-he-hefurðu fengið nokkuð að borða?“ kjökr- aði hún. „Alveg sama um mat,“ sagði hann hressilega. Svo fór hann að erta hana ofurlítið. „Það er eins og ég hafi komið þér óvænt. Sagði ég ekki, að ég kæmi eins fljótt og ég gæti?“ Svo ávítaði hann hana í alvöru: „Karólína," sagði hann. Guð einn veit, hvernig mér varð innan brjósts, þegar þeir sögðu mér í kauptúninu, að Svensonshjón- in væru farin og þú værir hér alein.“ Þeir höfðu líka reynt að aftra honum frá að fara út í hríðina, en það héldu honum engin bönd. Hann var kominn langleiðis, þegar versta veðrið skall á. „Þegar ég rakst á reykpípuna, var ég orðinn villtur, og gat ekki gert mér grein fyrir, hvað þetta hafði verið og gat ekki fundið það aftur. Ég var einmitt að leita að því, þegar ég heyrði til þín, engillinn minn.“ Svo tók hann hana í faðm sér og spurningar og svör ráku hvað annað. „Ég hef eignazt 40 dali,“ sagði hann hróðugur. „Roslyn er bezti maður í þessu landi. Ég bjóst ekki við að fá grænan eyri, en —“ „En, hvernig ertu í fætinum, Karl?“ 168

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.