Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1944, Blaðsíða 31

Samvinnan - 01.06.1944, Blaðsíða 31
5.-6. HEFTI SAMVINNAN lýsingu á vikrinum, því að undantekningarlítið virð- ast menn vera í þeirri trú, að enginn munur sé á vikri að öðru leyti en því, að hann sé til bæði fínn og grófur. Á rúmu ári, sem liðið er síðan Vikurfélagið h.f. byrjaði framleiðslu á vikurholsteinum ± hinum nýju og fullkomnu vélum sínum, hafa rúm 70 íbúðarhús, auk fjölda annarra bygginga, verið byggð úr honum. Mest af þessum íbúðarhúsum hefur verið byggt í vet- ur og sumar, en nokkur voru tilbúin í haust, svo að búið var í þeim í vetur. Flest voru þau hituð upp með rafmagni, sem í vetur var af skornum skammti í Reykjavík og Hafnarfirði, eins og kunnugt er. Mér er kunnugt um, að hús þessi hafa öll reynzt hlý og rakalaus. Á steininn hefur verið múrhúðað utan og innan, en því miður ekki alls staðar notað þéttiefni í múrhúðunina. Aldrei eru útveggir íbúðarhúsa of vel einangraðir. Er því tvímælalaust mjög hagkvæmt að fara að ráð- um Þóris Baldvinssonar og múrhúða hvorki vikur- né steypusteinaveggi að innan, heldur klæða þá með áferðargóðum veggplötum. Er það jafnframt beint sparnaðaratriði, þar sem veggplöturnar eru að jafn- aði helmingi ódýrari en múrhúðun. Ég hef kynnt mér eftir föngum vikuriðnað til hús- bygginga, opinberar rannsóknir, sem gerðar hafa ver- ið á því byggingarefni, og umsagnir merkra bygg- ingarfræðinga um það, á Norðurlöndum, Þýzkalandi og í Ameríku, og get með hliðsjón af reynslu minni hér óhikað mælt með vikrinum sem ákjósanlegu bygg- ingarefni og sérstaklega hentugu fyrir íslenzka stað- hætti. Það má ekki fremur gagnvart vikurhúsum en steypusteinahúsinu í Fljótshliðinni, láta það villa' sér sýn og dæma vikurinn sem byggingarefni eftir því, þótt veggirnir kynnu að vera til að byrja með eitthvað votir innan á einstaka húsi, því að þá hafa þeir verið hlaðnir upp úr steininum blautum, eða væta kann að hafa komizt inn í veggina vegna þess, að ekki hefur verið múrhúðað utan fyrr en seint og síðarmeir. Vikurholsteinar eins og þeir, sem meðfylgj andi mynd sýnir, eru tvímælalaust af þeirri gerð, sem vel hentar hér. Skilveggirnir, með svo stuttu millibili, gera þá trausta og endarnir mynda hol, þegar tveir steinar eru lagðir saman. Hægt er að fá hentugar handsnún- ar vélar til að steypa í þannig steina. Komið gæti til mála, að menn, sem eru vel í sveit settir með að ná í vikur, fengju sér slíkar vélar og steyptu steina fyrir sig og nágrannana. Þá er til sú leið, sem líklega er heppilegri, að byggðalög, sem langt ættu um aðdrætti, hefðu á skipulagðan hátt félagsskap um kaup á hol- steinum til bygginga, og gæti með því munað nokkru á verði í flutningskostnaði og fleiru. Vildi Vikurfélag- ið h.f., ef því væri að skipta, létta eftir getu undir Dómar Ritstjórar Morgunblaðsins, Þjóðviljans og Alþýðublaðsins dæmdir til refsingar fyrir á- rásir og illmæli í garð Sambands ísl. samvinnu- félaga. Ummæli þeirra dæmd dauð og ómerk. Hinn 5. nóv. haustið 1943 hófu Þjóðviljinn og Morg- unblaðið samtímis hatrammar árásir á S. í. S. og for- stöðumenn þess fyrir eyðingu á saltketi, sem af ó- viðráðanlegum ástæðum hafði ekki verið hægt að flytja út í tæka tíð og því orðið óhæft til manneldis. Daginn eftir bættist Alþýðublaðið í hópinn og sparaði sig hvergi, er það sá hversu rösklega var róið frammá. Sigurður Kristinsson höfðaði þá mál f. h. Sambands íslenzkra samvinnufélaga gegn blöðum þessum til þess að fá úr því skorið með dómi, hve haldgóð rök blöðin hefðu fyrir ádeilu sinni og stóryrðum. Voru stefnur á hendur ábyrgðarmönnum nefndra blaða gefnar út hinn 14. des. s.l., og flutti Sveinbjörn Jóns- son hrmflm. málið fyrir samvinnufélögin. Hinn 8. maí s.l. kvað Árni Tryggvason, settur borg- ardómari, upp dóm í málum þessum. Urðu málalok þau, að hinar um stefndu ásakanir og aðdróttanir voru dæmdar dauðar og ómerkar, en ritstjórar blað- anna dæmdir til refsingar: Sigfús Sigurhjartarson í 800 kr. sekt í ríkissjóð ella sæti hann 30 daga varðhaldi, Stefán Pétursson í 600 kr. sekt í ríkissjóð eða 24 daga varðhald og Valtýr Stefánsson í 300 kr. sekt eða 15 daga varðhald. Enn fremur eru þeir dæmdir til að greiða S. í. S. málskostnað. * Málsskjölin bera það með sér, að hinir stefndu hafa með slíkum viðskiptum. Höfuðkosturinn við það yrði þó sá, að um jafnsteypta, trausta og góða vélunna vöru yrði að ræða. Vikurfélagið h.f. framleiðir hol- steinana í mjög fullkomnum vélum með svokallaðri hristiaðferð, sem eykur mjög styrkleika steinanna frá vanalegri þjöppunaraðferð. Verksmiðja Vikurfélags- ins h.f. og vinnufyrirkomulag allt til öryggis því, að varan verði jöfn og góð, er það fullkomnasta í sinni röð, sem þekkist í Evrópu. Vikurinn er gott byggingarefni, það er ekkert efa- mál. En það er með hann eins og flest önnur efni, að vandvirkni og réttar vinnuaðferðir eru skilyrði fyrir því, að hinir góðu eiginleikar hans komi að full- um notum. 163

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.