Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1944, Blaðsíða 7

Samvinnan - 01.06.1944, Blaðsíða 7
5.-6. HEFTI SAMVINNAN föstu skipulagi á stjórn sína, meðan stóð á ófriði ,sem háður var af bandamönnum í því skyni að tryggja frelsi þjóðanna. Hitt var talið óráðlegt, að ísland lægi á borði friðarfundarins eins og óráðstöfuð eign. Máli þessu var mjög vel tekið af samvinnufólki landsins, en dauflega af flestum öðrum. Risu þá nokkrir nafnkenndir menn til andmæla, og voru sumir þeirra framarlega úr kunningjahóþi Staunings. Beittu þeir því mest fyrir sig, að sendiherra Breta hefði bor- ið frá stjórn sinni þá ósk til íslendinga, að fylgja sem bezt fyrirmælum sambandslaganna. í persónulegum samtölum við sendiherra Breta, benti ég honum á, að hans þjóð, sem bæri af öllum öðrum þjóðum um kon- ungshollustu, hefði sett Játvarð VIII. frá völdum, af því að sú breyting var talin hentug brezka heims- veldinu. Ekki gat sendiherra mótmælt þessari stað- reynd, en hann hafði flutt orðsendingu sína, og ríkis- stjórn og margir fleiri menn töldu sig vilja taka tillit til hennar. Nú gerðust þau tíðindi, að Bjarni Benediktsson, helzti stjórnlagafræðingur landsins, ritaði grein í Andvara um málið og komst að þeirri niðurstöðu, að sáttmálinn væri samkvæmt alþjóðalögum niðurfall- inn sökum vanefnda af hálfu Dana. Varð grein Bjarna til að styrkja skilnaðarhuginn í borgaralega flokkn- um. Kommúnistar létu ekki til sín heyra, og Alþýðu- flokkurinn ekki heldur. Hafði sá flokkur þá fyrir skömmu misst tvo af skeleggustu skilnaðarmönnum á Alþingi, þá Jón Baldvinsson og Héðin Valdimarsson. Varð það manntjón um stund til verulegs tjóns fyrir skilnaðarhugsj ónina. Áróður minn, 1940—41, fyrir þjóðfundi, var fyrst og fremst miðaður við að vekja umræður og áhuga fyrir skilnaði íslands og Danmerkur. Ef unt væri að vekja þjóðlegan áhuga fyrir málinu, og framkvæma þjóð- veldismyndunina, taldi ég að sá atburður yrði til að lyfta einstaklingum upp úr dvala „ástandsins“, líka í stjórnarfars- og fjármálaefnum. Englendingar höfðu að vísu ráðið frá skilnaði eins og þá stóð á. En ef þjóð- in öll hefði sameinazt um framkvæmd þjóðveldis- stofnunar, hlutu þær þjóðir, sem fórnuðu öllu til að tryggja sitt pólitíska sjálfstæði, og Bretar voru þar fremstir í flokki, að meta þá drengilegu staðreynd, að lítil þjóð, sem lengi hafði búið við kúgun, vildi nú setjast á bekk með frjálsum ríkjum. Framsóknarmenn héldu flokksþing í Reykjavík á útmánuðum 1941. Skilnaðarmálið var þar efst á baugi. Sýnilegt var, að hugmyndin um þjóðfund og algerðan skilnað þá þegar, hafði ekki nóg fylgi. Verkamanna- stéttin sýndi engin merki um skilnaðarlöngun, og meirihluti þingmanna í tveim stærstu flokkunum voru andvígir skilnaði eins og málum var þá komið. Engu að síður varð áhugi skilnaðarmanna í Fram- sóknarflokknum þýðingarmikill fyrir síðari meðferð málsins, því að flokksþingið skoraði á þingmenn flokksins að beita sér fyrir að fullkominn skilnaður íslánds og Danmerkur yrði kominn á eftir þrjú ár, og fyr ef ófriðnum yrði áður lokið. Ennfremur var bent á, að slaka í engu til um vanefndaréttinn. Nokkrir þingmenn Sjálfstæðismanna myndu hafa verið fúsir að framkvæma skilnað þá þegar, en utanþings var þung alda í flokknum gegn skilnaði, frá fólki, sem hafði sterk tengsl við Danmörku fjárhagslega, and- lega og þegnsamlega. Niðurstaðan varð þó sú, að Al- þingi gekk í einu hljóði 17. maí 1941 inn á kjarnann í skilnaðartillögunum, og hefur þeirri leiðsögu ver- ið fylgt nákvæmlega síðan. Alþingi kaus Svein Björns- son, fyrrverandi sendiherra í Kaupmannahöfn, sem ríkisstjóra til eins árs. Ekki var það val byggt á því, að Sveinn Björnsson hefði verið skeleggastur maður í sjálfstæðisbaráttunni, heldur á sérstakri aðstöðu hans. Þegar Danmörk hafði verið hernumin vorið 1940, var sýnilegt, að sú aðstaða mundi gefa skilnaðarhug íslendinga byr undir báða vængi. Mér var ljóst, bæði af skoðanakönnun Staunings, og á annan hátt, að mikið vantaði á eindrægni um skyndilega myndun þjóðveldis á íslandi. Þar var hættan einna mest, ef leiðtogar flokkanna færu að hyggja á persónuleg metnaðarskilyrði, í sambandi við þjóðveldismyndun- ina. Metnaður af því tagi hefur hindrað myndun þing- ræðisstjórnar frá haustinu 1942 til vordaga 1944, þegar þessi grein er samin. Ég vildi reyna að bægja frá þessari hættu, með því að leiða athygli þjóðarinnar, ef til forsetavals kæmi, að tveimur kunnum íslend- ingum, sem ekki höfðu tekið þátt í innanlandsbaráttu undangenginna ára. Annað var Vestur-íslendingur- inn Vilhjálmur Stefánsson, sem frægur var af norð- nrferðum sínum og ágætum fræðiritum. Hitt var Sveinn Björnsson, sem starfað hafði erlendis fyrir þjóðina alla nálega tuttugu ár og stundað hlutleysi. Með því að benda á þessa menn í sambandi við hina nýju stöðu forseta, var málið sveigt inn á grundvöll, sem var heppilegur fyrir hagstæða lausn. Borgarar landsins sáu þá, að áhugi þingmanna fyrir skilnaði var' ekki bundinn við persónulegar metnaðarvonir. Þessum tillögum var vel tekið og þótti rétt stefnt. En þar sem kosningu ríkisstjóra bar mjög brátt að eftir 17. maí 1941, og Vilhjálmur Stefánsson í fjarlægð, og ekki kunnur persónulega nema fáum þingmönnum, þá varð nokkuð almennt samkomulag í þinginu að kjósa Svein Björnsson til að fara með vald konungs um eins árs skeið. Hefur sú tillaga að velja mann í þetta sæti, utan við dægurþras stjórnmálanna, gefizt vel. Að vísu höfðu skoðanir hins nýja ríkisstjóra um varanleika 139

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.