Samvinnan - 01.06.1944, Side 21
5.-6. HEFTI
SAMVINNAN
úrrhellisrigning og hvassviðri á austan og svartur
illviðrisbakki á lofti. Virkilega illhryssingslegt veður,
eins og það getur verst verið um þetta leyti árs. Enda
urðum við holdvotir meðan við vorum þarna á
Lögbergi að ganga frá síðasta undirbúningsatriðinu.
Sama hvassviðrið og rigningin hélzt alla leiðina til
Reykjavíkur um nóttina. Mér varð því ekki svefnsamt
það sem eftir var næturinnar, er ég þóttist sjá fram
á, að sama veðrið héldist og myndi eyðileggja að
meira eða minna leyti hátíðleik og glæsileik þessarar
merkilegu athafnar. Þá var og ljóst, að miklir erfið-
leikar myndu verða á fólksflutningunum, því að vitað
var, að gamli vegurinn myndi verða ófær, ef mikið
rigndi. Enda kom það á daginn, og skapaði það mikla
örðugleika, sem von var, og rættist betur úr þeim, en
á horfðist.
Klukkan á mínútunni níu um morguninn 17 júní
hófust hátíðahöldin með því, að ríkisstjóri, ríkisstjórn,
alþingismenn og erlendir sendiherrar og örfáir aðrir
gestir, gengu fylktu liði úr Alþingishúsinu að styttu
Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Forseti sameinaðs
Alþingis, Gísli Sveinsson, sýslumaður flutti þar stutt
ávarp, þar sem hann minntist Jóns Sigurðssonar og
gildi verka hans í frelsisbaráttu íslendinga, og lagði
síðan veglegan krans að fótstalli styttunnar. Að því
loknu lék Lúðrasveit Reykjavíkur þjóðsönginn.
Að þessari athöfn lokinn fóru þingmenn og gestir
af stað til Þingvalla. Nú var bílastraumurinn þéttur,
og þegar kom upp fyrir Svanastaði við Leirvogsvatn,
var alveg þétt röð af bílum alla leiðina til Þingvalla.
Hátíðin á Þingvöllum hófst með því að ríkisstjóri,
biskup íslands, ríkisstjórn og alþingismenn gengu
fylktu liði eftir Almannagjá á Lögberg, en fyrir fylk-
ingunni gekk glæsilegur fánaberi. Þegar fylkingin
átti eftir ófarna um 200 metra á Lögberg, gaf lúður-
þeytari komu þeirra til kynna á Lögbergi og Lúðra-
sveitin hóf að leika „Öxar við ána“ og var það leikið
þar til þingmenn voru komnir á þingpall. Þá setti
forsætisráðherra, dr. Björn Þórðarson, hátíðina með
stuttri ræðu. Síðan hófst guðsþjónusta, sálmur sung-
inn, biskupinn yfir íslandi, Sigurgeir Sigurðsson, flutti
ávarp og bæn og síðan var sálmur sunginn. Kl. 1,55
var þingfundur settur. Forseti sameinaðs Alþingis
lýsti yfir gildistöku stjórnarskrár lýðveldisins og um
leið og hann hafði gert það hófst klukknahringing
á Þingvöllum og um land allt og lýðveldisfáninn var
dreginn að hún á Lögbergi. Þegar kirkjuklukkunum
hafði verið hringt í tvær mínútur var einnar mínútu
þögn og umferðastöðvun um land allt. Að því loknu
var þjóðsöngurinn sunginn. Er síðustu tónar þjóð-
söngsins hljóðnuðu, flutti forseti sameinaðs Alþingis
ræðu, þar næst fór fram kjör forseta íslands. Var
kosið á seðlum. Úrslit urðu þau, að Sveinn Björnsson,
ríkisstjóri fékk 30 atkvæði, Jón Sigurðsson skrifstofu-
stjóri Alþingis 5 en 15 seðlar voru auðir. Tveir þing-
menn voru fjarverandi vegna veikinda. Er Alþingis-
forseti lýsti kjörinu laust upp miklum fagnaðarópum
meðal mannfjöldans. Gekk þá hinn nýkjörni forseti
fram í ræðustólinn á þingpallinum og flutti stutt á-
varp, og var honum fagnað mjög af mannfjöldanum,
sem hyllti hann ákaft. Því næst var þingi slitið og
sungið „ísland ögrum skorið.“
Þar næst töluðu þeir fulltrúar erlendra ríkja, sem
falið hafði verið af ríkisstjómum sínum að flytja
árnaðaróskir við þetta tækifæri. Þessir fulltrúar komu
fram og fluttu kveðjur og árnaðaróskir: Fulltrúi
Bandaríkjanna, Stóra-Bretlands, Noregs, Svíþjóðar
og Frakklands. Forseti íslands þakkaði hverjum full-
trúa með fáum orðum og mannfjöldinn hyllti þá með
lófataki. Um leið og utanríkisráðherra kynnti hvern
fulltrúa, var fáni þeirrar þjóðar, er hann mætti fyrir,
dreginn að hún á þingpalli og þjóðsöngur þeirra leik-
inn að loknu ávarpi þeirra. Fulltr. Noregs og Svíþjóðar
mæltu á íslenzku. Að endingu var þjóðsöngurinn sung-
inn og leikinn. Þá var athöfninni á Lögbergi lokið
og forseti, þingmenn, ríkisstjórn og gestir gengu af
Lögbergi gegnum Almannagjá og inn á Velli.
Á völlunum hafði verið reistur mikill fimleika-
pallur. Á þeim palli fóru skemmtiatriðin fram.
Þegar klukkan var hálf-fimm var múgur og marg-
menni saman komið í Fangbrekkunni fyrir ofan pall-
inn og allt í kringum hann. Því miður gat dagskráin
ekki hafizt á mínútunni hálf-fimm sökum þess að
leiðslur útvarpsins höfðu skemmst í rigningunni. Von
bráðar komust þær í lag og dagskráin gat hafizt. En
meða beðið var eftir viðgerðinni lék lúðrasveitin nokk-
ur lög og mannfjöldinn í brekkunni tók undir, undir
stjórn Páls ísólfssonar.
Formaður hátðanefndar flutti fyrst stutt ávarp, en
þar næst flutti fulltrúi Vestur-íslendinga, prófessor
Richard Beck, ávarp og kveðju frá Vestur-íslending-
um.Að því loknu lék lúðrasveitin „Þótt þú langförull
legðir.“ Er þessu var lokið, komu þeir forsætisráð-
herra Björn Þórðarson og utanríkisráðherra Vilhjálm-
ur Þór, fram á pallinn að hljóðnemanum og las for-
sætisráðherra upp kveðjuskeyti frá Kristjáni X. kon-
ungi, þar sem hann árnaði íslenzku þjóðinni heilla.
Laust þá mannfjöldinn upp miklu fagnaðarópi og
lúðrasveitin lék danska konungssönginn. Þá flutti ut-
anríkisráðherra kveðju færeyska lögþingsins.Var þeirri
kveðju vel fagnað af mannfjöldanum. Að þessu loknu
hélt dagskráin áfram með því, að þjóðhátíðakór Sam-
bands ísl. karlakóra söng mörg íslenzk ættjarðarlög
153