Samvinnan - 01.06.1944, Síða 22
5.-6. HEFTI
Mannfjöldi á Þingvöllum 17. júní 1944
undir stjórn Jóns Halldórssonar, Sigurðar Þórðarsonar,
Halls Þorleifssonar og Róberts Abraham.
Þá flutti Benedikt Sveinsson fyrrv. forseti neðri
deildar Alþingis, ræðu en þjóðkórinn undir stjórn Páls
ísólfssonar söng ísl. ættjarðarljóð á eftir. Næst var
hópsýning 170 fimleikamanna, undir stjórn Vignis
Andréssonar, og var það svipmikil og glæsileg nýjung.
Að því loknu flutti Brynjólfur Jóhannesson verðlauna-
ljóð Huldu, og Jóhannes úr Kötlum verðlaunaljóð sitt.
Íslandsglíman, sem átti þá að hefjast samkv. dagskrá,
féll niður sökum rigningarinnar og þess, hve pallur-
inn var háll. Töldu dómararnir ekki verjandi að láta
glímuna fara fram við þau skilyrði. Þá féll einnig
niður sýning tveggja fimleikaflokka, er áttu að vera
síðar um kvöldið. Klukkan um hálf níu hófst dans
á fimleikapallinum og var dansað þar um hríð. Há-
tíðahöldunum á Þingvöllum lauk með veizlu í Valhöll,
er forseti sameinaðs Alþingis hélt fyrir þingið og gesti
þess. Laust fyrir kl. 11 fóru gestirnir til bæjarins.
Hátíðahöldin í Reykjavík
í Reykjavík hófust hátíðahöldin 18. júní kl. 1,30 með
geysilega fjölmennri skrúðgöngu. Bærinn var allur
fánum skreyttur, sérstaklega þær götur, sem skrúð-
fylkingin fór um, svo og einstakar byggingar, svo sem
Alþingishúsið, sem skreytt var með sortulyngi og þjóð-
hátíðarmerkinu. Landsímahúsið var skreytt með
skjaldarmerkjum sýslnanna og fjórðunganna auk mik-
ils fjölda fána og veifna. Þá var Reykjavíkurapótek
mikið prýtt flöggum, svo og stj órnarráðshúsið og
menntaskólinn. Flaggstengur höfðu verið settar með-
fram öllum þeim götum, sem skrúðfylkingin fór um
og blöktu þar fánar við hún alla leiðina.
Þátttakendur í skrúðfylkingunni söfnuðust saman
við háskólann og á íþróttavellinum. Röðuðu félög og
félagasambönd sér upp í fylkingar undir fána og sam-
einuðust svo í eina fylkingarheild á gatnamótum
Hringbrautar og Bjarkargötu. Fyrir fylkingunni, sem
fór af stað svo að segja á slaginu hálf tvö, fór lögregla
á mótorhjólum og á eftir þeim gekk fylking 24 lög-
154