Samvinnan - 01.06.1944, Page 30
SAMVINNAN
5.-6. HEFTI
blautleskjuðu, sem svarar til um 5% af magni þess
sements, sem notað er, er áríðandi að blanda bæði
í múrhúðunarhræruna og hræru þá, sem steinarnir
eru límdir saman með, þegar hlaðið er úr þeim.
Þar sem hitaeinangrun slíkra útveggja byggist að
mestu leyti á mómylsnutróðinu, sem er lífrænt efni,
mjög móttækilegt fyrir raka og blotnar þá upp og
sjatnar, er augljóst, að áríðandi er að múrhúðin sé
gerð vel vatnsheld. Sá möguleiki er ennfremur fyrir
hendi, að tróðið frjósi, komizt vatn í það, og þrýsti
á veggina og valdi sprungum í þeim, því ekki er heppi-
legt að hafa þverbindinga þétta, þar eð þeir eru beinn
kuldaleiðari gegnum veggina.
Það getur varla talizt eins hættulegt, þótt vatn
komist inn í veggi, sem hlaðnir eru úr góðum vikur-
holsteini. Vikurinn drekkur ekki í sig vatn nema að
vissu marki. Þótt vatn liggi á honum, helzt samt
um helmingur af hinum örsmáu loftsellum hans þurr-
ar. Heldur því slíkur vikurveggur, þótt eins mikið vatn
komist í hann og vikurinn getur í sig drukkið, samt
sem áður um helming hins raunverulega einangrunar-
gildis síns.
Til þess á ekki að þurfa að koma, ef rétt er að farið,
að vatn berist gegnum múrhúðina inni í vikurveggi,
sem hlaðnir eru úr holsteinum, sem Vikurfélagið h.f.
framleiðir. Yfirborð steinanna er sterkt, stórkornótt
og hrjúft, og hefur sérstaklega haldgóða múrfestu.
Hættan er því mjög lítil á, að múrhúð á þeim springi,
sé hún gerð á réttan hátt. Og eins er það með steypu-
steinaveggi af líkri gerð og Klemenz Kristjánsson
lýsir, að það hefur ekki annan kostnað í för með sér en
sem þéttiefninu nemur að gera þá vatnsþétta, og eru
þau hús þá vafalaust, hvað útveggina áhrærir, hlý
og rakalaus íbúðarhús.
Heimili, sem þurfa að koma upp byggingum og hafa
aðstöðu til að steypa steina, gætu með því sparað sér
mikinn byggingarkostnað frá því að steypa í móta-
uppslátt. Að líkindum á það eftir að færast í vöxt
hér eins og víða erlendis, að hús séu hlaðin, ýmist
úr vikurholsteinum eða steypusteinum. Ekki er það
þó alls staðar, sem heimili geta án tilfinnanlegra
beinna útgjalda skapað sér aðstöðu til að steypa
steinana, svo að tryggt sé og vel fari. Töluvert hús-
rúm þarf til að vinna í og til geymslu á steypuefni,
sementi, sandi og möl. Ef steypt er að vetrar-
lagi, verður að geyma steypuefnið innan veggja, þar
sem það getur ekki frosið, eða að sjá verður um á
annan hátt, að ekki fyrirfinnist frost eða snjór í því,
þegar það er notað. Þá eru og útgjöld vegna steypu-
móta og ef til vill svo tölu/erðu nemi til aðdrátta á
steypuefni o. fl. í byrjun þarf vel að athuga, hve mikil
bein útgjöld það myndi hafa í för með sér, að steypa,
steinana og koma upp byggingunum úr þeim.
Ef til vill gæti þá komið í ljós, að það reyndist hag-
kvæmara að kaupa vikurholstein, ef góð aðstaða er
með heimflutning, t. d. bílvegur heimundir byggingar-
staðinn. Vikurholsteinn Vikurfélagsins h.f. kostar kr.
4,00 og hálfir steinar kr. 2,00. Stærð steinanna er:
Lengd 45 cm, hæð 20 cm og þykkt 25 cm. Um 10,5 steina
þarf til að klæða fermetra í vegg. Ég hef fyrir mér
nýbyggt hús úr vikurholsteinum, og er stærð þess 70'
fermetrar. í húsið fóru alls 650 steinar og í öll skilrúm
37 fermetrar vikurplötur á kr. 25 fermetrinn, eða sam-
tals fyrir 3525,00 í húsið. Sé holsteinninn nokkurn
veginn þurr, taka stórir bílar að jafnaði 250—300 steina
í ferð. Mjög fljótlegt er að hlaða úr holsteinunum„
Múrari í Reykjavík hefur hlaðið úr honum undan-
farið nokkur einbýlishús úti á landi og lokið við að
hlaða hvert hús, útveggi og öll skilrúm, á þrem dögum.
Því miður er okkur það hulið, hve vel vikurhús þola.
jarðskjálfta. Væri vissulega mikilsvert að geta gert
rannsóknir á því sviði. En vafalaust er slíkt mótstöðu-
þol þeirra ekki nærri því eins mikið og í járnbentum
steinsteypuhúsum með steypulofti. Hins vegar hefur
reynslan sýnt, að það, sem hefur nokkurt sveigjuþoh
stendur betur í jarðskjálftum en hitt, sem er sveigju-
laust eins og steinsteyptir veggir og steinaveggir eru
að mestu leyti. Vikurveggir hafa nokkra sveigju og er
ekki fjarri lagi að álykta, að hús, hlaðin úr góðum
og vel steyptum vikurholsteini, standist mun betur
jarðskjálfta, en tvöfalt hlaðnir 10 cm steypusteina-
veggir.
Þá hefur komið grein í Samvinnunni, 3. hefti þ. árs,
eftir Þóri Baldvinsson, húsameistara, forstöðumann
teiknistofu landbúnaðarins, með fyrisögninni: „Steyp-
ið steina — byggið góða bæi.“ Er þar að finna ásamt
fleiru, glöggar og góðar leiðbeiningar fyrir þá, sem
vilja steypa steina og byggja úr þeir. Lýsir hann þar
steypumótum, hentugustu og öruggustu aðferðuni við
að steypa steinana, blanda steypuefninu og við að
byggja úr þeim. Um vikurinn segir Þórir Baldvinsson:
„Til þess að vikurhús geti lánast, er það fyrsta skil-
yrðið, að vikurinn, sem notaður er í steinana, sé nægi-
lega traustur, en vikur er mjög misjafnt efni af nátt-
úrunnar hálfu. Ef vikurinn er mjög smágjör, verður
að nota meira sement, svo að steypan verði nægilega
sterk. Aukið sement rýrir hins vegar einangrunar-
efni steinsins og er því betra að vikurinn sé ekki mjög
smár. Traust vikursteypa tekur vel við múrhúðun og
heldur henni fastri, en nauðsynlegt er að blanda
rakavarnarefni í alla múrhúðun......“
Það er ánægjulegt að lesa svona glögga og rétta
162