Samvinnan - 01.06.1944, Qupperneq 37
5.-6. HEFTI
SAMVINNAN
Aðalfundur S. I. S.
Vörusala S. í. S. rúml. 97,8 millj. kr. Vörusala kaup-
félaganna rúml. 139,5 millj. króna.
Aðalfundur Sambands íslenzkra samvinnufélaga var
settur í samkomuhúsinu „Skjaldborg1'' á Akureyri
fimmtudaginn 22. júní kl. 9,45. Mættir voru auk
stjórnar, framkvæmdarstjórnar og endurskoðenda 77
fulltrúar af 83, sem rétt höfðu til fundarsetu.
Formaður S. í. S., Einar Árnason, fyrrv. alþingis-
maður, setti fundinn og bauð fulltrúana velkomna.
Á fundinum mætti, auk fulltrúanna, stjórn S. í. S.
þeir Einar Árnason, fyrrv. alþingismaður og bóndi á
Eyrarlandi, Björn Kristjánsson, kaupfélagsstjóri, Jón
ívarsson fyrrv. kaupfélagsstjóri, Sigurður Jónsson á
Arnarvatni, Þórður Pálmason, kaupfélagsstj. og Þor-
steinn Jónsson, kupfélagsstjóri, Vilhjálmur Þór, at-
vinnumálaráðherra og ennfremur framkvæmdastjórar
Sambandsins, þeir Sigurður Kristinsson, Aðalsteinn
Kristinsson, Jón Árnason og Árni G. Eylands, fram-
kvæmdastjóri Gefjunar, Jónas Þór, Jónas Jónsson,
skólastjóri, Guðl. Rósinkranz, yfirkennari, endurskoð-
endur S.Í.S., þeir Jón Guðmundsson, skrifstofustjóri
og Tryggvi Ólafsson, verzlunarmaður og eftirlitsmenn
S. í. S., Benedikt Jónsson og Ingimar Ingimarsson.
Fundarstjóri var kosinn Jörundur Brynjólfsson, al-
þingismaður, og hann tilnefndi Þórarinn Kr. Eldjám,
bónda á Tjörn, sem varafundarstjóra, og var það sam-
þykkt í einu hljóði.
Skýrsla formanns.
Formaður S.Í.S., Einar Árnason^ rakti í stuttum
dráttum störf Sambandsstjórnar síðastliðið ár.
Reynt hafði verið að fá rýmkuð innflutningsleyfin
á vörum fyrir S.Í.S., en ekki borið árangur. Athugun
hafði farið fram um ullarþvottastöðvar. Sömuleiðis
„Sæmilegur, ég verð að vísu að hlífa mér dálítið
eins og þú getur reyndar skilið, því að ég sit með
þig á hinu hnénu. En ég gat samt gengið þetta þrauta-
lítið. Og í vor, þegar ég fer að plægja, verð ég orðinn
ágætur.“
„Og þú varðst að ganga. Aumingja Karl.“
„Hvað hélztu að ég mundi gera, þegar ég vissi af
þér hér einmana?"
Það skiptir í raun og sannleika engu máli, hvað
þau sögðu. Þau voru bæði saman að nýju, áttu þak
yfir höfuðið og land til að erja. — Og hvað gerir þá,
þótt hríðin bylji á kofaþakinu og kaldir stormar æði
um veglausa og lífvana sléttuna.
hafði verið athugaðir möguleikar á því að fá skatta-
ákvæðunum um samvinnufélög breytt, en mál þetta
dagað uppi á Alþingi. Safnast höfðu 60 þús. kr. í sjóð
til samvinnumanna í hernumdu löndunum. Stækkun
vörúgeymsluhúss S.Í.S. hafði verið lokið á árinu og
sérstök deild stofnuð um síðustu áramót, er annast
sölu landbúnaðarvéla og hvers konar verkfæra. Árni
G. Eylands var ráðinn til að veita þeirri deild forstöðu.
Skýrsla forstjórans.
í Sambandinu voru í ársbyrjun 1944 50 félög með
21457 félagsmönnum og hafði þeim fjölgað um 1268
menn. Á fundinum gengu tvö félög í Sambandið,
Kaupfélagið „Dagsbrún“ í Ólafsvík og Sláturfélagið
„Örlygur“, Gjögrum við Patreksfjörð. Eru því sam-
bandsfélögin nú 52.
Vörusala Sís árið 1943 var samtals kr. 97.892.000,00
og hafði hækkað um kr. 28.400.000,00. Sala aðkeyptra
vara hækkaði um 10,5 milljónir og sala innlendra vara
um 16,3 milljónir. Sala fyrirtækja Sís hækkaði um
kr. 2.128.000,00. Hækkun sölu aðkeyptra vara stafar
að miklu leyti af hækkuðu vöruverði, en hækkun á
sölu innlendra vara er aðallega vegna þess, að ull
félaganna frá 1941 og 1942 var seld á árinu. —
Samb.stofnsjóður var í árslok 1943 kr. 4.330.000,00,
en sameignarsjóðir, eða skuldlaus eign Sambandsins
kr. 3.458.000,00. Innieignir Sambandsfélaganna hjá S.
í. S. námu 30,8 milljónum króna, en þar af eru yfir
10 milljónir kr. greiðsla frá Sambandinu til félaganna
upp í innlendar vörur, sem óseldar voru um áramót.
Skuldir félaganna við S. í. S. voru 866.000 kr. og höfðu
lækkað um 720.000 kr. á árinu.
Stofnsjóðir félagsmanna í Sambandsfélögunum
námu 7,2 millj. kr. í lok ársins, en sameignarsjóðir
12,8 milljónum kr.
Sambandsfélögin seldu aðkeyptar vörur og iðnaðar-
vörur, sem þau framleiddu sjálf, fyrir kr. 83.101.269,48
og innlendar afurðir fyrir kr. 56.494.310,31. Öll vöru-
sala Sambandsfélaganna nam því árið sem leið kr.
139.595.579,79, og er það kr. 26.495.686,12 meira en árið
1942.
Starfsmenn Sambandsins voru 399 í árslok, en
starfsmenn allra Sambandsfélaganna 913.
Tekjuafgangur.
Tekjuafgangur Sambandsins á síðastliðnu ári var
kr. 1.839.924,03, og var samþykkt á aðalfundi að ráð-
stafa honum þannig:
1. Til stofnsjóðs ......... 1.368.993,15
2. Til verksmiðjustofnsjóðs ........... 138.730,62
3. Til varasjóðs ........... 316.012,84
4. Til næsta árs yfirfærist ............ 16.178,42
ENDIR
Kr. 1.839.924,03