Samvinnan - 01.06.1944, Síða 39
5.-6. HEPTI
SAMVINNAN
vart hvers konar undirróðri og upplausnarstarfsemi
frá hendi þess stjórnmálaflokks, og annarra, sem tek-
ið hafa upp illvígan áróður gegn samvinnufélögunum."
Rökstudd dagskrá um að vísa þessari tillögu frá,
sem borin var fiam af Þóroddi Guðmundssyni, ísleifi
Högnasyni, Sigf. Sigurhjartarsyni, Magnúsi Kjart-
anssyni og Ottó Jörgensen, var felld með 53:10 atkv.
Samvinnan.
Jónas Jónsson gerði grein fyrir útgáfu Samvinn-
unnar, og er hún nú gefin út í 7500 eintökum og var
sem kunnugt er, stækkuð allmikið um síðustu áramót.
ísleifur Högnason, Þóroddur Guðmundsson, Sigfús
Sigurhjartarson og Ottó Jörgensen báru fram svo-
fellda tillögu:
„Aðalfundur S.Í.S. 1944, telur að ýmsar greinar,
eftir Jónas Jónsson, er birzt hafa í tímaritinu Sam-
vinnan, séu til þess fallnar að rýra samheldni innan
samvinnnuhreyfingarinnar þannig, að hún hljóti tjón
af, og beinir til Sambandsstjórnar að koma í veg fyrir,
að tímaritið verði framvegis notað til stjórnmálaá-
róðurs, en lögð megináherzla á sérmál samvinnu-
manna.“
Eftir allmiklar umræður var tillögu þessari vísað
frá með svofeldri dagskrá frá Einari Árnasyni, samþ.
með 45:8 atkvæðum.
,Með því að greinar þær í Samvinnunni, sem bent
er til í tillögunni, eru varnir gegn árásum á S.Í.S. og
samvinnufélögin, sér fundurinn ekki ástæðu til að
gera um þær ályktun og tekur fyrir næsta mál á dag-
skrá.“
Styrkur til danskra flóttamanna.
Svohljóðandi tillaga frá Gunnari Gunnarssyni og
Einari Árnason var samþykkt í einu hljóði:
„Fundurinn heimilar stjórn S.Í.S. að veita til stuðn-
ings dönskum flóttamönnum og bágstöddu fólki í
Danmörku 20 þúsund krónur.“
Stj órnarkosning.
Síðasta daginn, laugardaginn 24. júní, fór fram
stjórnarkosnig. Tveir menn áttu að ganga úr stjórn-
inni, þeir Björn Kristjánsson, kaupfélagsstj. á Kópa-
skeri og Jón ívarsson, framkvstjóri Grænmetisverzl-
unar ríkisins. Björn Kristjánsson var endurkosinn
með 57 atkvæðum, en í stað Jóns var Eysteinn Jónsson,
framkvæmdastjóri í Reykjavík kosinn með 52 atkvæð-
um. Jón ívarsson fékk 29 atkvæði og nokkrir aðrir
færri. Varaformaður var endurkosinn, Vilhjálmur Þór,
atvinnumálaráðherra. í varastjórn voru kosnir: Sltúli
Guðmundsson, Hvammstanga, Bjarni Bjarnason,
Laugarvatni og Þórhallur Sigtryggsson, Húsavík. Um
hádegi þann dag var aðalfundarstörfum lokið og fundi
slitið.
Hátíðahöldin að Hrafnagili í tilefni af 100 ára afmæli
samvinnufélaganna í heiminum.
Eftir hádegi á laugardaginn þann 24. júní hófst
hátíð að Hrafnagili í Eyjafirði í tilefni af 100 ára af-
mæli samvinnufélaganna í heiminum, en á þessu ári
eru réttt 100 ár síðan fyrsta félagið var stofnaðí
Rockdale á Englandi. Fyrir hátíðahöldunum stóðu
Kaupfélag Eyfirðinga og Sambandið í sameiningu.
Upp úr hádeginu fór fólkið að streyma að Hrafna-
gili, þótt veður væri ekki gott, norðaustan stormur
og kuldi, svo að það fennti ofan í miðjar hlíðar. En
hátíðahöldin fóru fram eigi að síður, því að þau gátu
farið fram inni. Á Hrafnagili eru geysimiklar her-
búðir, sem ætlaðar höfðu verið fyrir sjúkrahús fyrir
ameríska hermenn en aldrei verið notaðar, og nú höfðu
Eyfirðingar keypt allar herbúðirnar. Ræðuhöldin
og söngurinn fór fram í einni herbúðinni, sem rúmaði
nálægt 1000 manns. Þeir, sem ekki komust þar, voru í
næstu búð, er var jafnstór og var hún einnig fullskipuð.
í þriðju búðinni var síðan sýnd kvikmynd og í þeirri
fjórðu var veizla haldin fyrir fulltrúa Sambandsfund-
ar og aðra gesti. Vegna þess, hve þetta voru góð og
rúmmikil húsakynni, gat hátíðin farið fram þrátt
fyrir hið slæma veður og fóru þau hið bezta fram.
Allir, sem á hátíðina komu, fengu ókeypis aðgang að
samkomunni og kvikmyndasýningunum.
Hátíðin hófst með því að formaður Sambandsins,
Einar Árnason, bauð gesti velkomna með stuttri ræðu
og lýsti tilefni samkomunnar. Þar næst talaði Her-
mann Jónasson, fyrrv. forsætisráðherra og mælti fyrir
minni íslands. Jónas Jónsson, alþingism. hélt ræðu
fyrir minni samvinnustefnunnar, Vilhjálmur Þór, at-
vinnumálaráðherra flutti stutt ávarp, Richard
Beck flutti kveðjur Vestur-íslendinga og ræddi um
hug þeirra til íslands, Gunnar Gunnarsson, skáld á
Skriðuklaustri hélt stutta ræðu og ræddi um Eyja-
fjörð, fegurð hans og framfarir í héraðinu. Hólmgeir
Þorsteinss., bóndi á Hrafnagili flutti minni Eyjafjarð-
ar og Ingimar Eydal, ritstj. mælti fyrir minni elzta
kaupfélagsins á landinu, Kaupfélags Þingeyinga. Loks
flutti Bernharð Stefánsson, alþingismaður stutta ræðu.
í milli ræðanna söng Karlakórinn Geysir undir stjórn
Ingimundar Árnasonar, við mikinn fögnuð áheyr-
enda.
Heillaóskaskeyti bárust samkomunni frá Lands-
banka íslands, Magnúsi Sigurðssyni, bankastjóra og
Sjóvátryggingafélagi íslands.
Að þessum hátíðahöldum loknum var öllum fulltrú-
um og gestum boðið til veizlu og voru þar nokkrar
171