Samvinnan - 01.11.1946, Qupperneq 7
9. HEPTI
SAMVINNAN
Samvinnugistihús.
Nokkuð hefur verið deilt um hvort kaupfélögin og
Sambandið eigi að sinna gistihúsa starfsemi. Kaup-
félagið á Akureyri hefur leyst það mál myndarlega
fyrir sitt hérað. Hótel Kea er góð bygging, haganlega
fyrirkomið, tiltölulega ódýr í stofnkostnaði og rekin
Weð smekkvísi og góðri stjórn. Þangað leita innlendir
og erlendir gestir, sem til Akureyrar koma og fá þar
beztu fyrirgreiðslu meðan húsrúm endist. Margir við-
urkenna, að vel sé fram úr þessu máli ráðið á Akur-
eyri, en fordæmið eigi ekki við annars staðar. Þetta
er villukenning. Það ætti að vera ein af fyrstu skyld-
um hvers kaupfélags, sem verzlar við sveitabyggð, að
hafa hæfileg gestaherbergi og matsölu handa þeim
hiönnum, sem eiga þangað erindi að jafnaði. í hverj-
um verzlunarstað eru það fyrst og fremst félagsmenn
kaupfélagsins, sem þangað koma. Það er jafn eðlilegt
a3 þeir geti í kaupstaðnum fengið keyptan mat og
leigt hvílurúm, eins og að fá vörur úr búðinni. Þessir
gististaðir verða að vera mjög misstórir, eftir gesta-
komu á hverjum stað. En alls staðar þurfa þessir gisti-
staðir að vera jafn hreinlegir og myndarlegir, eins og
góð heimili á félagssvæðinu. Þeir forráðamenn kaup-
félaga, sem láta það viðgangast, að félagsmenn þeirra
séu nokkurs konar útigangsklárar í kaupstöðunum,
syna lítinn metnað fyrir samherjum sínum og félags-
systrum. Þjóðin er nú með ári hverju að reisa sér betri
°g vistlegri heimili. Gistihúsin í verzlunarstaðnum
eru sameiginlegt viðbótarheimili kaupfélagsmanna,
sem eiga þangað sókn.
Samkomuhús og leikhús.
Eftir nokkra mánuði verður Þjóðleikhúsið í Reykja-
vík fullgert og hægt að taka það til notkunar. Það er
fuikil og fögur bygging, með 800 sætum og mjög prýði-
iegri aðstöðu til sjónleikja, kvikmyndasýninga, fyrir-
iestra og söngskemmtana. Leikhúsið hefur verið í
smíðum nálega í 20 ár, og er byggt fyrir tekjur af
skemmtanaskatti hvaðanæva af landinu. Skoðana-
munur er nú að koma upp um það hversu eigi að verja
skemmtanaskattinum, þegar leikhúsið er fullgert.
vilja forgöngumenn leiklistar í Reykjavík að sjóður-
inn gangi til að hafa á föstum launum tvennar tylftir
leikara, en aðrir vilja láta þennan sjóð ganga til að
reisa lítil leikhús og samkomuhús úti um allt land,
1 kaupstöðum, kauptúnum og sveitum. Ekki er unnt að
fullyrða fyrirfram hver muni verða niðurstaða þessa
máls. Ég vil vænta, þar til annað reynist, að sjóðnum
verði öllum varið til nýrra húsabygginga utan Reykja-
víkur, svo að með stuðningi af skemmtanaskatt-
Inum komist á tiltölulega fullkomið samkomuhúsa-
kerfi um iancj þannig að í þessum nýju sam-
komuhúsum megi koma við sjónleikjum, kvikmynda-
sýningum, fyrirlestrum og margháttuðum gleðisam-
komum. Nú er mikill hörgull á góðum samkomuhús-
um í landinu, og mörg þeirra, sem verður að nota, eru
ekki nægilega vel hirt eða vönduð að öllum útbún-
aði. Vantar nokkuð á að íslenzkir karlmenn hafi
nægilega sterka tilfinningu fyrir því, að samkomu-
húsið í byggðinni eða bænum er eins konar viðbót við
hin einstöku heimili. Kaupfélögin eiga að geta reist
sómasamlega gististaði fyrir sína félagsmenn, en með
skemmtanaskattinum og framlagi bæja og sveitarfé-
laga, íþróttamanna og æskulýðsins í landinu, ætti að
mega reisa viðunanleg samkomuhús þar sem þeirra
er þörf.
Kvikmyndir.
Engin skemmtun á betur við skap þjóðarinnar
heldur en kvikmyndasýningar, og er sama raun um
allan heim. Hér á landi hallar mjög á í þessu efni um
aðstöðu fólks í stærri kaupstöðum og í sveitum og
þorpum. Þar sem er allmikið fjölmenni á sama stað,
rísa mörg kvikmyndahús með breytilegum dagskrám.
í sveitum og smáþorpum hefur fram að þessu lítið eða
ekkert verið gert til að koma við skipulegum mynda-
sýningum. Samvinnufélögin eru til þess sett að bæta
kjör þeirra, sem erfiðasta hafa lífsbaráttuna. Hér
bíöur þeirra þýðingarmikið verkefni, að koma við
skipulegum kvikmyndarekstri fyrir fólk í sveitum og
sjóþorpum. Kaupstaðirnir eru eins og þeir heilbrigðu,
sem þurfa ekki læknis við. Sennilega færi bezt á því
að mynduð yrði kvikmyndadeild í hverju kaupfélagi
í dreifbýlinu, og að þær hefðu alla forsjón sína og
framkvæmd út á við í Sambandinu. Undir forystu
góðra kunnáttumanna væru valdar heppilegar kvik-
myndir innlendar og útlendar. Síðan væru þær látnar
ganga sveit úr sveit og kauptún úr kauptúni, eftir því
sem óskir væru um hverja mynd. Sennilegt er, að sums
staðar væri þörf fyrir eina myndasýningu á viku, en
annars staðar mættu liða tvær eða jafnvel þrjár vik-
ur á milli sýninga. En aðstaða dreifbýlisins er að
þessu leyti lík bæði um verzlunarmál og kvikmyndir.
Dreifbýlið freistar ekki einstaklinga til að starfrækja
þar búðir eða kvikmyndahús. Þess vegna eru allmörg
héruð á íslandi, þar sem kaupfélagið er eitt um hit-
una, og engar kvikmyndir sýndar. Samtakamáttur
fólksins ræður þar fram úr vandanum. Hitt hlýtur
jafnan að verða samvinnumönnum ógeðfellt að láta
ríkið einoka allar kvikmyndasýningar í landinu. Þá
hverfur sú tilbreytni, sem frelsið eitt getur veitt.
Bókaútgáfa og bókasöfn.
Sambandið á meirihlutann af stofnfé Edduprent-
smiðju í Reykjavík. Sú prentsmiðja er að stækka til
239