Samvinnan - 01.12.1966, Page 5
stjóra, þegar þeir 1. nóvem-
ber 1930 stofnuðu Kaupfélag
Árnesinga. Egill Thoraren-
sen seldi hinu nýja félagi
verzlun sína og fasteignir á
Selfossi við Ölfusárbrú, og 2.
janúar 1931 opnaði félagið
sölubúð í húsnæði því er áð-
ur hafði verið eign verzlun-
ar Egils.
Egill Thorarensen var síð-
an kaupfélagsstjóri og sam-
vinnuleiðtogi Árnesinga í 30
ár, eða þar til hann andað-
ist 15. janúar 1961.
Stofnfundur Kaupfélags
Árnesinga var haldinn að
Selfossi við Ölfusárbrú. Á
fundinum mættu 27 menn.
Fundarstjóri var Ágúst
Helgason, bóndi í Birtinga-
holti. Enginn efi er á því, að
félagsstofnunin hefur verið
vel undirbúin, þótt ekkert sé
um það bókað, því á fundin-
um var að fullu gengið frá
stofnun félagsins, lög þess
rædd og samþykkt og kosin
stjórn. Kosningu hlutu Ágúst
Helgason, Gísli Jónsson,
bóndi á Stóru-Reykjum og
Þorvaldur Ólafsson, bóndi í
Arnarbæli. Stjórnin skipti
sjálf með sér verkum og var
Ágúst Helgason formaður.
Hann hafði áður verið braut-
ryðjandi í samvinnumálum,
bæði hvað snerti Sláturfélag
Suðurlands, smjörbúin og
síðan stofnun mjólkurbú-
anna og komið mjög við sögu
stórmála héraðsins annarra,
sem og þeir aðrir stjórnar-
menn.
Vöxtur og viðgangur Kaup-
félags Árnesinga á næstu
áratugum varð allt að því
með ævintýralegum hætti.
Hins vegar lágu til hans vel
skýranlegar ástæður, þegar
að er gáð. Kaupfélagsstjór-
inn var afburðamaður og
hafði að baki sér ágæta
stjórnarnefndarmenn og
liðskost í byggðum héraðs-
ins. Sveitirnar eru kostarík-
ar og heimili kaupfélagsins
á Selfossi óvenju vel stað-
sett, fyrst ekki var um að
ræða hafnaraðstöðu frá
náttúrunnar hendi.
Árið 1931 voru félagsmenn
117. Árið 1941 voru þeir orðn-
ir 692, 1951 1726 og árið 1965
1750. Félagssvæðið er í stór-
um dráttum héröðin á milli
Hellisheiðar og Henglafjalla
í vestri og Þjórsár í austri,
allt til efstu bæja í uppsveit-
um og niður til brimóttrar
strandar. Nokkrir félags-
menn eru austan Þjórsár.
Þróunarsaga félagsins verð-
ur ekki rakin hér í smáatr-
iðum, enda er þetta ekki
minningargrein. En á þrjá-
tíu árum byggði félagið upp
þjónustu fyrir félagssvæðið
á næstum öllum sviðum, sem
hægt var að koma félags-
legri starfsemi við á. Verzl-
unar- og skrifstofuhús fé-
lagsins á Selfossi sem byggt
var upp úr 1940, var á sínum
tíma eitt myndarlegasta
verzlunarhús á landinu. Þar
er nú kjörbúð — ein af
þremur f yrstu kj örbúðum
landsins, sem allar voru
opnaðar nokkurn vegin sam-
tímis — vefnaðarvörubúð,
bókabúð, búsáhaldaverzlun
o. fl. Og í því húsi er tekið
á móti óteljandi pöntunum
á alls konar vörum frá
hundruðum heimila á fé-
lagssvæðinu og þær af-
greiddar með flutningabif-
reiðum. Þar er einnig mikil
birgðageymsla. Á efri hæð
eru svo skrifstofur, og í risi
meðal annars stór fundar-
salur. Þá hefur Kaupfélag
Árnesinga útibú á Eyrar-
bakka, Stokkseyri, Þorláks-
höfn, Hveragerði og Laugar-
vatni. Kjörbúðarvagn ekur
um héraðið til þjónustu,
eftir því sem við verður
komið. Auk þessa, sem nú
var talið, rekur kaupfélagið
brauðgerð, kjötvinnslu og
kjötbúð, verzlun með
varahluti í bifreiðar og
landbúnaðarvélar, fiskbúð,
selur benzín og olí-
ur, rekur lyfjabúð — aðra
af tveimur samvinnulyfja-
búðum, sem reknar eru a. m.
k. á Norðurlöndum, eftir því
sem Samvinnan veit bezt,
hin er á Akureyri — þvotta-
hús, þar sem húsmæður geta
komið og þvegið þvott sinn
í stórvirkum vélum og ferða-
skrifstofu. Enn eru þó ótald-
ar hinar geysimiklu
smiðjur kaupfélagsins. Þar
er um að ræða trésmiðjur í
nýju, mjög fullkomnu hús-
næði, þar sem fer fram alls
konar nýsmíði, svo sem
frægt er um allt land. Þá
eru járnsmiðjur af öllum
mögulegum gerðum, þar sem
smíðað er allt frá hestajárn-
um upp í stálhús á stórar
fólksflutningabifreiðar, auk
viðgerða á vélum og bifreið-
um, að nokkru leyti í sam-
vinnu við Mjólkurbú Flóa-
manna. Útibú frá því verk-
stæði er á Stokkseyri.
Smiðjunum tilheyra bíla-
sprautun, hjólbarðaviðgerð-
ir, rafmagnsverkstæði, sem
framkvæmir viðgerðir og sér
Óskar Jónsson frá Vík, félags-
málafulltrúi Kaupfélags Árnes-
inga.
um raflagnir, og margt er ó-
talið enn.
Ekki gerðust þessar fram-
kvæmdir allar í einu, þótt
uppbygging félagsins yrði
með ótrúlega skjótum hætti.
Egill Thorarensen og liðs-
kostur hans vissi, að verið
var að undirbúa langa fram-
tíð. Þess vegna tryggði kaup-
félagsstjórinn lóðir og land-
rými á Selfossi, sem nægja
myndu til mikilla fram-
kvæmda nýrra kynslóða. En
það nægði honum ekki, held-
ur lét hann kaupfélagið
kaupa tvær jarðir í nágrenni
við Selfoss, Laugardæli og
Þormóðskot og hefja þar til-
raunir með' fyrirmyndarbú-
skap. Og enn meira bjó und-
ir. í Laugardælum var jarð-
hiti eins og mjög víða á fé-
lagssvæði Kaupfélags Árnes-
inga. Félagið lét leiða heitt
vatn þaðan til Selfoss og
lagði hitaveitu um þorpið,
eftir að borað hafði verið á
Laugardælum og vatnið auk-
ið að miklum mun. Hita-
veituna á það og rekur enn.
Þótt vegarsamband færi
ört batnandi til aðalinn-
flutningshafnar landsins í
Reykjavík, þótti Agli Thor-
arensen ekki framtíðarúr-
lausn í þeim efnum, nema
höfn kæmi austan Fjalls.
Hann lét kaupfélagið kaupa
jörðina Þorlákshöfn, þar
sem bezt aðstaða þótti til
hugsanlegrar hafnargerðar
og hefja framkvæmdir þar
við hafnargerð og útgerð.
Kaupfélagið er því móðir og
faðir þeirra stórbrotnu fram-
kvæmda sem þar hafa þeg-
Framh. á bls. 35.
Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum árum, og á henni má sjá ta!ið
frá vinstri: Guðmund Böðvarsson þáv. fulltrúa kaupfélagsstjóra, Egil
Thorarensen, þáv. kaupfélagsstjóra og Grím Thorarensen, siðar kaup-
félagsstjóra.
SAMVINNAN 5