Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1966, Blaðsíða 31

Samvinnan - 01.12.1966, Blaðsíða 31
að taka af borðmu, þar sem ferðamaður hafði snætt, það var víst Prager, umboðssali. Kalii hejuir bæði róm hans og föður síns inni í hliðarherberginu, þar sem menn sitja og reykja eftir matinn. Prager er vel kunnugur á Framnesi; þegar hann er búinn að fara til Hinriks á Ytra-Nesi og panta vörur, kemur hann hingað. Nú situr hann og segir pabba sögur. — Hvað er nú að Kallanum? spyr Mamma. Það örlar enn fyrir brosi á vanga hennar eftir sögu, sem Prager sagði meðan hann mataðist. Aður en Ambros kom inn. Kalli dregur hana með sér útí horn og spyr þannig, að brosið hverfur í einni svipan. — Er ljótt að þykja ekki vænt um pabba? Lísa getur ekki svarað þessu samstundis. — Hverjum þykir ekki vænt um hann? spyr hún og röddin titrar. — Mér, hvíslar hann. Þetta er ekki unnt að segja upp- hátt. — Hvað ertu að bulla, segir móðir hans skjálfrödduð. Hugsaðu um þetta til morguns, þá lítur þú örugglega öðru- vísi á. Kalli, heyrirðu það! Kalli hristir höfuðið. — Hversvegna er pabbi reiður við mig, þegar ég hef aldrei gert honum nokkuð? — Hugsaðu um þetta —. — Það eru bara Leifur og Víf, sem fá allt! hrópar Kalli og grípur framí fyrir móður sinni og gleymir, að hann verður að tala lágt, ef það á ekki að heyrast inní hliðar- herbergið. Móðir hans grípur hann og þrýstir andliti hans uppað sér, svo að hann getur ekki sagt fleira, ýtir honum þannig framað dyrum. Og Kalli sér ekki heldur, hvernig hún berst við sjálfa sig. Frammi á ganginum sleppir hún honum. -—- Maður má aldrei hrópa svona. — Já, en það er satt, mamma! — Pabbi gefur þér nú líka, Kalh. — Er þá ljótt að þykja ekki . . . — Uss, uss, þér þykir vænt um pabba. Þau horfast í augu, svo lítur mamma undan. — Seztu þarna, Kalli. Að innan er hrópað: — Lísa! Rödd Ambrosar. Líklega vantar í bolla Pragers. Hún flýtir sér inn, þegar hún hefur strokið Kalla blíðlega yfir hárið. En Kalli er ekki með sjálfum sér! Víf sneri baki við bonum áðan, og mamma vill ekki heldur svara; þessar einu mannverur, sem hann þorir að trúa fyrir vandamálum sínum, vilja ekkert af honum vita. Þegar máninn varð ferkantaður Framh. af bls. 22. — Já, sannarlega, sagði Janna. Við ráðum ekkert við þetta. Hvað eigum við að gera? Framhald i næsta blaði — Við verðum að fara til ömmu og afa. Þau búa svo nærri. — Stúlkurnar voru fljótar að ákveða sig. Það var hlýtt úti og þeim lá á, svo að þeim var alveg sama um yfirhafnirnar. Svo var nú reyndar enginn, sem gat skipt sér af þeim. Það var einsog þær hefðu alveg hætt að bera virðingu fyrir pabba eftir að hann varð að hænu, og mamma var miklu hættu- legri sem krókódíll en sem venjuleg mamma. En telp- unum datt heldur ekki í hug að hætta sér uppí barna- herbergið til að spyrja hana í hvað þær ættu að fara. Janna og Lísa hringdu dyrabj öllunni hjá afa og ömmu, sem bjuggu við næstu þvergötu á þriðju hæð. Þær voru lafmóðar eftir hlaupin og hlustuðu ó- þolinmóðar eftir fótataki innan við. Loksins kom afi til dyra. — Hvað sé ég, eru ekki ungfrúrnar komnar í heim- sókn, sagði hann fallegu hlýju röddinni sinni, þegar hann sá telpurnar. Það var gaman. Komið þið inn, komið þið inn! Janna og Lísa lofuðu afa varla að ljúka við setning- una áður en þær hófu frá- sögnina. — Þið verðið að koma heim og hjálpa okkur. Þar er allt á öðrum endan- um. Pabbi er orðinn að hænu, og hann er svo hlægi- legur. Og mamma er orðin að krókódíl, og hún er veru- lega hættuleg. Hún ætlaði meira að segja að éta pabba, þú skilur, hænuna. Og þið verðið að hjálpa okkur. Þetta er bara af því að mán- inn er orðinn ferkantaður. Orðin streymdu útúr telp- unum, og afi varð alvarleg- ur á svip. Nú eruð þið að gera grín að afa gamla. Þið eruð dálaglegar. — Við erum alls ekkert dálaglegar, sagði Janna. Það er bara einsog við segjum, og þið verðið að koma heim og hjálpa okkur. Afi horfði á þær og fór að hugsa um, hvort ekki hlyti að vera eitthvað að, hvað sem öðru liði. Telpurnar voru alvarlegar, þó það, sem þær segðu væri einsog hvert annað bull. Komdu, amma, hrópaði hann. Við skulum fara með Jönnu og liísu heim. Þær segjast þurfa hjálp. Amma kom trítlandi. Hvað er nú? Þið eruð vanar að bjarga ykkur sjálfar. Hvað getur verið að? Janna og Lísa fóru að segja frá aftur. Amma hristi höfuðið. Ég held þið séuð orðnar eitthvað skrítnar. Máninn ferkantaður, þakka ykkur bara fyrir. Ef mán- inn er ferkantaður, þá er ég örn. — Já, sama segi ég, sagði afi, en það gerði hann þó ekki, heldur sagði hann: Ef máninn er ferkantaður, þá er ég geit. Telpurnar höfðu engan tíma til að vara afa og ömmu við, en þær fundu á sér, að þetta gæti valdið erfiðleikum. Að allir i okkar ætt skuli þurfa að segja svona, þegar þeir trúa engu, hugsuðu þær með sér. Hópurinn lagði samt af stað. Afi leit upp í loftið til að gægjast á mánann, en hann gerði það gætilega svo að enginn sæi, því að hann vildi sannarlega ekki láta neinn halda, að hann tryði því, sem telpurnar segðu. En máninn hafði falið sig bak- við stórt ský, og það var engin leið að sjá, hvort eitt- hvað væri óvenjulegt við hann. Þegar þau voru komin heim til Jönnu og Lísu, og amma og afi sáu pabba í stofunni, fóru þau að skammast nærri því einsog mamma. — Hvað hafið þið gert, krakkaskammir, sögðu amma og afi. Hvað haldið þið að pabbi og mamma segi, þegar þau sjá, að þið hafið hleypt hænu inní dagstof- una? Janna og Lísa voru orðnar alveg uppgefnar á útskýringum, það trúði þeim þeim hvort eð var enginn. Komið þið inní barnaher- bergið, sögðu þær bara, og sjáið þið mömmu, en opnið þið dyrnar varlega, svo að hún sleppi ekki út. Amma og afi gengu að barnaherbergishurðinni. Afi opnaði uppá gátt og gægð- ist inn. En hann lokaði í snatri aftur, og var skelf- ingu lostinn. Veiztu, hvað er þarna inni, spurði hann ömmu. — Segðu ekki að það sé krókódíll, sagði amma. — Það er kródódíll, sagði afi og virtist ætla að fara að gráta. — Já, það er af því að máninn er ferkantaður, sögðu Janna og Lísa. Þið getið séð það sjálf. Þau voru komin aftur inní dag- stofuna. Máninn var kom- inn fram undan skýinu og SAMVINNAN 31

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.