Samvinnan - 01.12.1966, Page 8
Oft eru íslendingar á það minntir, að þeir eru þátttak-
endur í margs konar alþjóðlegu samstarfi. Kemur sú þátt-
taka fram bæði í ræðu og riti, með ferðum ráðherra eða
sendinefnda á ráðstefnur og á margan annan hátt.
Ein eru þau alþjóðasamtök, sem íslendingar eru aðilar
aö, sem ekki er mjög oft um talað, en nægilega oft þó til
þess að öllum hugsandi mönnum á að vera það ljóst. Þessi
samtök eru Alþjóðasamvinnusambandið, International
Cooperative Alliance, ICA.
Alþjóðasamvinnusambandið var stofnað í Lundúnum ár-
ið 1895, og árið 1927 samþykkti aðalfundur Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga að sækja um inngöngu í sam-
bandið og var það auðsótt mál. Þing Alþjóðasamvinnu-
sambandsins eru haldin þriðja hvert ár, en á milli þinga er
málefnum þess stjórnað af fjölmennri miðstjórn, og kýs
hún forseta Sambandsins til þriggja ára í senn. Auk mið-
stjórnar eru starfandi á vegum Sambandsins margar nefnd-
ir, sem fjalla um hin ýmsu sérmál innan samvinnusam-
takanna. Miðstjórnin heldur fundi árlega, og árið 1952 var
fundur hennar haldinn hér á íslandi, í Hátíðasal Háskól-
ans. Var það gert að tilefni hálfrar aldar afmælis Sambands
ísl. samvinnufélaga. Það ár höfðu samvinnufélög í Al-
þjóðasamvinnusambandinu innan vébanda sinna 105
milljónir félagsmanna í 32 þjóðlöndum.
Árið 1963 var þing Alþjóðasamvinnusambandsins haldið
í Bournemouth á Englandi. Þá var félagsmannatalan 174,4
milljónir í 53 löndum. Nú í haust var svo þingið haldið i
Vínarborg, og nú eru 214,3 milljónir manna í 58 löndum
félagsmenn í samvinnufélögum, er að Samvinnusamband-
inu standa.
Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS á sæti í miðstjórn I.C.A.
og sótti þing þess í Vínarborg. Samvinnan hefur áður flutt
fréttir af undirbúningi þessa þings og þykir því vel við
eiga að spyrja forstjórann frétta þaðan.
— Hvenær var þing Samvinnusambandsins núna, og hvað
eru þingin búin að vera mörg alls?
— Þingið stóð að þessu sinni dagana 5.—8. sept. og var
hið 23. í röðinni. En dagana næst á undan höfðu verið
haldnar ráðstefnur um ýmis sérmál og á þeim áttu sæti
fulltrúar frá mörgum þjóðum og einnig frá ýmsum alþjóð-
legum stofnunum. Á þessum ráðstefnum var aðallega fjall-
að um landbúnaöarmál og tryggingamál og þá var einnig
ráðstefna um afstöðu kvenna til samvinnufélaganna, rétt-
indi þeirra og skyldur og ýmis þau mál, sem meira snerta
konur en karla í nútímaþjóðfélögum. Það var einróma álit
þeirrar ráðstefnu, að æskilegt væri að konur tækju sem
allra mestan þátt í starfsemi samvinnufélaganna. Hinn 5.
september var svo sjálft þingið sett. Setningarræðu flutti
dr. Mauritz Bonow, sem er forseti Alþjóðasamvinnusam-
bandsins og er frá Svíþjóð. Gaf hann yfirlit um störf
ICA síðustu þrjú ár, eða frá því að þingið í Bournemouth
var haldið og ræddi einnig um meginverkefni Samvinnu-
sambandsins, sem nú lægju fyrir.
Frh. á bls. 33.
Að neðan sjást nokkrir fulltrúar á þinginu. Fremst á myndinni er Erlendur Einarsson,
forstjóri SÍS, og í röðinni aftan við má m. a. kenna Lars Lundin, frkv.stj. NAF.
8 SAMVINNAN