Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1966, Page 13

Samvinnan - 01.12.1966, Page 13
EINAR KARL SIGVALDASON: Skipið er komið Teflt var urn kaupfélags líf eða lát, leikstaðan benti á heimaskítsmát. Hnekkt var pó stórsókn með herkjum og gát, hafskip var komið að landi. Virtist sem héraðsins hamingjudís hefði pað leitt gegnum bylji og ís. Kaupmannsins sigur, sem virzt hafði vís, varð nú að hálfgildings strandi. Klakað var skipið, en komið af sœ, kviknuðu vonir í matsnauðum bœ. Ferðlúnir bœndur á fjörunnar snœ farmsins úr kœnunni bíða. Kular um vanga, pað krapar á sjó, kalandi hœla vill festa við skó. Fátt eitt peir mœla, en fagnandi pó frjálsir af vorsultarkvíða. Fönnin er troðin sem harðasta hlað, hár sýnist bakkinn— en hvað er um pað? Axla peir byrðarnar, eigra af stað álútir, pungir í spori. Úriga náttúran, áhlaupaslyng illviðraklökkunum raðar í kring. Samt er að hlýna um Þingeyjarping af pjóðlífsins bjartasta vori. íslandi var petta örlagastund, opnuðust pjóðinni vegir og sund. Átti pó sárfátt af aurum í mund alpýðan lífsgœðum rœnda. Heiði og dalur ein harðbarin fönn. Hnjótur ei fundinn varð sauðkindartönn. En hér var að sigra heilbrigð og sönn hugsjónin pingeyskra bœnda. Klæddir í vaðmál og kunnandi skil á kornbarnaveðri og hávetrarbyl, héldu peir lágreistra híbýla til hraktir á síðvetrarkvéldi. Öldum peir veittu og óbornum lið, opnuðu niðjunum varanlegt hlið, inn á hið pjóðholla samvinnusvið — samstarfs og bróðernis veldi. SAMVINNAN 13

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.