Samvinnan - 01.12.1966, Qupperneq 21
Súkkulaði
Flórsykurbráð
Kirsuber og súkkat
Sáldið hveiti og lyftiduft.
Blandað sykri, súkkulaðibitum
og rúsínum saman við, myljið
smjörlíkið í og vætið með
þeyttu eggi og mjólk. Búið til
pappírsmót, aflangan þríhyrn-
Ávaxtahlaup.
ing. Smyrjið pappírinn og legg-
ið hann á plötu, látið deigið
þar á og bakið við um 200°
í 20—30 mín. Þegar kakan er
köld, er hún skreytt með flór-
sykurbráð, kirsuberjum og
súkkati eða sælgæti; í mjórri
endanum er síðan komið fyrir
litlu kerti.
Appelsínuterta.
2 egg
75 gr. sykur
50 g. kartöflumjöl
1 msk. hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. kalt vatn
Þeytið egg og sykur vel sam-
an, blandið hveiti, lyftidufti og
vatni saman við. Bakið deig-
ið í tveim vel smurðum tertu-
mótum.
Kremið:
2 egg, 100 g. sykur,
5 bl. matarlím,
safi úr 2 appelsínum og
1 sítrónu, 2 dl. rjómi.
Sjá aðferð við kremið í
drottningarábætinum.
Leggið botnana saman með
helmingnum af kreminu og
smyrjið hinum helmingnum
ofan á kökuna. Skreytið með
þeyttum rjóma, appelsínu-
sneiðum, berjum og brúnuð-
um möndlusykri (núgga) eða
rifnu súkkulaði.
Kúrenukökur.
375 g. hveiti
250 g. kókosmjöl
1 tsk. hjartarsalt
125 g. kúrenur eða rúsínur
375 g sykur
250 g. smjörlíki
2 egg
Sjá aðferð við rúsínukökur.
Deigið er hnoðað í sívalar
lengjur á sama hátt og spesí-
ur, kælt og skorið í sneiðar sem
eru bakaðar við um 225° hita.
Eggjahvítukökur.
250 g. hveiti
100 g. smjörlíki
100 g. sykur
14 tsk. hjartarsalt
2 eggjarauður
1 msk. rjómi eða mjólk
Hveiti og hjartarsalt er sáld-
að saman, smjörlíkið skorið í
með hníf, sykrinum blandað
saman við og vætt í með eggja-
rauðu og rjóma. Hnoðað og
flatt þunnt út. Mótað í litlar
ferkantaðar kökur, sem er rað-
að á smurða plötu. Aprikósu-
sulta eða önnur góð sulta er
sett á miðju hverrar köku.
2 eggjahvítur eru þeyttar, 100
g. af flórsykri (sálduðum) og
100 g. af söxuðum möndlum
eða kókosmjöli blandað sam-
an við og %—1 tsk. sett á miðju
hverrar köku. Bakaðar strax
við um 225° hita.
Frh. á bls. 34.
Handavinna
fyrir
yngstu
lesendurna
Jólaengill.
Þessa einföldu, fallegu
jólamynd er auðvelt að
stækka eftir rúðustrikuðum
pappír og nota á ýmsa vegu.
Ef myndin er höfð á jóla-
veggteppi, renning eða dúk,
er hún klippt úr pappír, lér-
eftsefni eða filti, eftir því úr
hverju undirlagið er.
Myndina má einnig hafa
sem gluggaskreytingu. Þá er
munstrið klippt tvöfalt,
þannig að það er eins báð-
um megin, og límt hæfilega
hátt á rúðuna. Fallegt er að
klippa misstórar stjörnur og
setja víðsvegar kring um
myndina.
Jólasveinar úr könglum.
Eru búnir til úr tveim mis-
stórum könglum, sá minni er
hafður fyrir höfuð og límd-
ur við þann stærri, sem síð-
an er festur á tölu, svo að
jólasveinninn haldi jafn-
vægi og standi eðlilega. Búið
síðan til topphúfu úr rauð-
um pappír eða taui og and-
lit úr pappír og garni. Einnig
er fallegt að búa til hand-
leggi, fætur og eitthvað af
fötum á jólasveinana.
SAMVINNAN 21