Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1966, Qupperneq 26

Samvinnan - 01.12.1966, Qupperneq 26
sýslu á fjórða tug 19. aldar. Gætu þessar heimildir allar bent til, að orðið hafi upp- runalega táknað belti skreytt silfri (eða öðrum málmum?), þ. e. stokkabelti, en merkingin færzt yfir á floslindana á ofanverðri 18. eða öndverðri 19. öld. Sigurður málari tilfærir reyndar líka vísu, þar sem getið er um mállinda. Er hún eignuð Jóni Sigurðssyni Dalaskáldi (f. 1685, d. 1720) og á að vera „kveðin á kvon- bæna ferð til baka“. Vísan er heldur torráðin: Skuli ei mýkjast málin vönd munu þær ekki elska hann, seint er nok að sjá um hönd ef setja þarf í mállindann. — Kannski berst okkur skýring á vísunni frá ein- hverjum fróðum lesanda Samvinnunnar. En svo við víkjum aftur að flosinu, var ekki talað um fleiri en eina gerð flosvefnaðar? — Tvær gerðir eru af ís- lenzku flosi, alflos og rósa- flos. Á alflos við það, þegar allt yfirborð efnisins er þak- ið flosi, en rósaflos er það, þegar aðeins er flosað munstur í vefinn, en grunn- urinn hafður auður. Nú er víst oftast talað um heilflos og hálfflos, en hin heitin munu vera eldri í málinu og eru, finnst mér, ólíkt skemmtilegri. — Af varð- veittum flosmunum safns- ins eru aðeins hempuborð- arnir með rósaflosi; sessurn- ar, lindarnir og fótabandið eru öll með alflosi. Eru hempuborðarnir alsvartir, en sessuborðin og böndin með marglitum munstrum á dökkum grunni. Þó er til eitt einlitt, svart sessuborð með alflosi. — Eins og þú sérð á sessuborðunum hérna, eru þau flest með einhvers konar rósamunstri. Um helmingur þeirra er með fangamarki eigandans, en aðeins eitt með ártali, því miður. — Úr því að þú minnist á munstrin, langar mig til að spyrja þig nánar um gömlu sjónabókina eða munstur- bókina, sem þú varst með uppi á skrifborðinu þínu. Hvaðan er hún upprunnin? — Hana gerði Gunnar Fil- ippusson, bróðir Rannveig- ar konu Bjarna riddara Sí- vertsen. Hefur hann skrif- að á titilblaðið: „Sauma Siöna Book Þessa aa Eg Sig- ridur Þorsteins Dotter Skrif- ada af Gunnare Philippus- syne Anno 1776.“ Ég veit engin deili á Sigríði Þor- steinsdóttur, en safninu barst bókin frá Vigfúsínu Vigfúsdóttur á ísafirði árið 1915. í henni eru mörg falleg munstur, og sumum fylgja fyrirsagnir um hvernig bezt hæfi að nota þau, eins og til dæmis: „Figura Riett Fyn til Alfloss a Byndi“, „Figura til Hempufloss“ og „Figura til Sessu Su besta i Þessare Bók“. Myndatextar: Efst t.h. Hempuborðar með rósa- flosi úr svörtu togi; breidd 10—12 cm, lengd 105, 109 og 81 cm (Þjms. 691, 3296 og 690b). Neðst t.h.: Sessa með alflasi, svarblá og mó- græn; stærð, 49x43 cm (Þjms. 8238). T. v. Bekkir úr gamalli sjónabók (Þjms. 6950) ætlaðir til hempufloss (1,2) og alfloss (3,4). E. E. G. dró upp. — Hafa þessi munstur verið gefin út? — Fáein munstur úr bók- inni eða þá önnur lik þeim kunna að hafa bi.rzt, en sem heild hefur bókin ekki verið gefin út ennþá. Gísli Gestsson safnvörður hefur hug á því að svo megi verða og hefur unnið að því. Væri gaman ef úr yrði, svo að munstrin kæmust öll fyrir almennings sjónir. * * * Þó að yfirleitt muni vera liðið talsvert á aðra öld, ef ekki meira, síðan hagleiks- konur sátu með floslárana á hnjánum og brugðu band- inu í munstrin á þeim grip- um sem varðveittir eru í safninu, þá halda litirnir ó- trúlega vel ferskleika sínum, og enn stirnir á þétt flosið. Við virðum fyrir okkur fall- Framh. á bls. 36. 26 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.