Samvinnan - 01.12.1966, Síða 36
aðsmiðstöð, sem Selfoss varð
og samvinnuleiðtogans Egils
Thorarensens og samherja
hans, sem gerðu Kaupfélag
Árnesinga að þeirri merki-
legu sjálfshjálp fólksins í
Árnessýslu, sem raun ber
vitni.
Páll H. Jónsson
„Fígúra rétt
Framh. af bls. 26.
egu flossessurnar enn um
stund, en staðnæmumst síð-
an þar sem hanga saman á
vegg fjögur sessuborð með
öðru séríslenzku einkenni.
Þau eru saumuð með augn-
saumi eða augnasaumi, eins
og Elsa tjáir mér, að saum-
urinn hafi heitið áður fyrr.
— Var ekki augnsaumur
notaður öðruvísi á íslandi
en í öðrum löndum?
— Svo er víst. Hér var
hann notaður til þess að
fylla út heil klæði — safn-
ið á bæði sessur og ábreið-
ur, sem þannig eru saumað-
ar — en erlendis sést hann
varla nema í stökum
munstrum, oftast fanga-
mörkum, held ég að mér sé
óhætt að segja. Þó eru einn-
ig til íslenzkar ábreiður, þar
sem fléttusaumur og augn-
saumur skiptast á. Þar að
auki finnst hér sérkennilegt
og fágætt afbrigði augn-
saumsins, sem ég hef leyft
mér að nefna tigulaugn-
saum til aðgreiningar frá
þeim venjulega. Liggja aug-
un öll á ská í honum, en
eftir þræði í venjulegum
augnsaumi, svo sem vitað er.
Helzti gripurinn með þess-
ari saumgerð og raunar sá
eini, sem eingöngu er unn-
inn á þennan hátt svo ég
viti, er sessa frá lokum 18.
aldar. Hana saumaði Herdís
Ingjaldsdóttir á Mýri í
Bárðardal, en afkomandi
hennar, Kristján Kristjáns-
son á Akureyri, gaf safn-
inu sessuna árið 1938. Sess-
an er saumuð í gisinn ein-
skeftudúk úr tvinnuðu togi,
svonefndan tvist. Er dúk-
urinn misþráðóttur og togn-
ar því heldur meira úr
munstrinu á annan veginn
en hinn. Er saumurinn all-
ur unninn með marglitu ís-
lenzku ullarbandi. Mismun-
inn á augnsaumi og „tigul-
augnsaumi“ má glöggt sjá
með því að bera sessu Her-
dísar saman við augnsaums-
sessuna, sem hangir næst
henni. Meiri aðgæzlu þarf til
að sjá, að á sessunni með
áttablaðarósinni fallegu,
sem hangir hér fyrir neðan,
er bekkur með tigulaugn-
saumi á brúnunum.
— Eru augnsaumaðir
munir ekki fremur fágæt-
ir?
— Heldur er það nú, enda
saumgerðin fram úr hófi
seinleg. Alls mun safnið
eiga fimm sessur og þrjár
ábreiður, sem eingöngu eru
unnin á þennan hátt, og
auk þess peningapyngju,
sem er augnsaumuð öðrum
megin, en skatteruð hin-
um megin. Pyngjan er frá
1869 og var eign séra Lárus-
ar Benediktssonar í Selár-
dal, föður Ólafs prófessors
I.árussonar. — í Victoria og
Albert safninu í London er
íslenzk ábreiða saumuð með
fléttusaumi og tigulaugn-
saumi. Hana gerði Þorbjörg
Magnúsdóttir, kona Páls
Vídalíns lögmanns. Þar er
líka augnsaumsábreiða, og
um aðra veit ég í Þjóðminja-
safni Dana, en hún er heldur
illa farin. Má vel vera að
augnsaumaðir munir ís-
lenzkir séu víðar til í erlend-
um söfnum. Þá er ekki úti-
lokað, að einhvers staðar
leynist í einkaeign hér eða
erlendis gamlir íslenzkir
munir með þessum saum-
gerðum, og væri gaman að
frétta af þeim, ef til eru.
Enn er mikið ókannað af
fróðleik um hannyrðir, heit-
um á saumi og vefnaði og
vinnuaðferðum, sem leyn-
ist í skjölum, svo sem skipta-
gerðum og vísitazíum. Mikla
vinnu verður oft að leggja
í að ganga úr skugga um
hvaða gerð saums og vefn-
aðar hvert heiti á við, því
að stundum virðast þau
skráð nokkuð af handahófi,
og þar sem karlmenn munu
yfirleitt hafa skráð þær lýs-
ingar sem til eru, má segja,
að ekki sé nema eðlilegt, að
ónákvæmt sé með heitin
farið.
* * *
Samvinnan þakkar Elsu
kærlega viðtalið. Mynd hins
liðna skýrist við margt, sem
sjá má í Þjóðminjasafni ís-
lands, einnig það, sem skap-
aði blæbrigði í hýbýlaprýði
og klæðaburði.
Samvinnutryggingar
Framh. af bls. 7.
vinnutrygginga í að efna til
nýrrar samstöðu tiltekinna fé-
lagsmanna sinna í einstökum
héruðum víðsvegar út um
landið. Hér er átt við tilkomu
„Klúbbanna ÖRUGGUR AKST-
UR“, sem byrjað var að stofna
í nóvember á síðastliðnu ári og
ennþá eru í deiglunni. Gert
er ráð fyrir, að þessir klúbb-
ar verði samtals um hálfur
þriðji tugur um það lýkur, en
15 þeirra eru þegar fleygir og
færir. Búist er við, að stofnun
allra klúbbanna verði lokið á
yfirstandandi ári. Það er von
og trú þeirra, sem staðið hafa
að myndun þessara nýju um-
ferðaröryggissamtaka, að af
þeirri viðleitni megi spretta
frjótt slysavarnastarf í hverju
byggðarlagi landsins. Slík
bjartsýni byggist ekki sízt á
þeirri staðreynd, að helztu
klúbbfélagar eru menn, sem á
undanförnum árum hafa hlot-
ið viðurkenningu Samvinnu-
trygginga fyrir farsælt fram-
ferði í umferðinni um lengri
tíma, og undantekningalítið
mega álítast úrval ökumanna.
Enginn vafi er á því, að allt
þetta samanlagt, sem nú hefir
verið nefnt í sambandi við af-
skipti Samvinnutrygginga af
fræðslu- og öryggimálum, hefir
átt merkan þátt í að vekja
landsmenn til heilbrigðrar um-
hugsunar og athafna varð-
andi mikilvæg þjóðfélagsmál,
sem hætt er við að ella hefðu
verið vanrækt til mikils meins
og skaða.
FORYSTA UM FJÖLBREYTNI
OG NÝJUNGAR 1 TRYGG-
INGAMÁLUM.
Þegar Samvinnutryggingar
tóku til starfa, átti fólk ekki
margra kosta völ í veikri og
fálmandi tryggingaviðleitni
sinni. Varla var öðru til að
dreifa á hinum frjálsa vett-
vangi þessara mála en bruna-
tryggingum á innbúi og ein-
hverjum sjó- og flutninga-
tryggingum, fyrir utan líf-
tryggingar. Nú er öldin önnur.
Að mestu fyrir forgöngu Sam-
vinnutrygginga, hafa menn nú
mikið og fjölþætt val á trygg-
ingasviðinu og geta fellt marg-
háttaða framboðna trygginga-
vernd eftir því, sem hægt er,
að persónulegri tryggingaþörf
sinni. Er hér um eða yfir 30
valsmöguleika að ræða. Allt
eru þetta meira og minna þarf-
ar og nauðsynlegar tryggingar,
þótt einstakar henti eðlilega
betur einum en öðrum. En ég
get ekki stillt mig um að nefna
þær, sem hvað mestum vin-
sældum hafa átt að fagna og
Samvinnutryggingar hlotið al-
mennasta viðurkenningu fyrir.
Þar skipar „Heimilistrygging-
in“, upprunalega og síðan end-
urbætt, fortakslaust fyrsta
sæti! Hún felur í sér marg-
þætta tryggingavernd fjöl-
skyldunnar fyrir tiltölulega
lítið iðgjald, og er nú á góðri
leið með að útrýma hinni góðu,
gömlu „Innbústryggingu", sem
náði aðeins til eldsvoða. Þá
hefir frjálsum ábyrgðartrygg-
ingum í mörgum myndum ver-
ið vel tekið, og er skemmst að
minnast „Bændatrygginganna"
svokölluðu, sem Samvinnu-
tryggingar útbjuggu og vörp-
uðu að gefnum tilefnum svo
skæru ljósi á, að margur „bú-
stólpi“ beinlínis hrökk við og
sá sína sæng útbreidda og gerði
viðeigandi verndarráðstafan-
ir með því að kaupa sér og
sínum þessar tryggingar, auk
þess, sem útsendir trygginga-
menn hafa þar greitt fyrir.
Enn ber að nefna ÖF-trygg-
inguna, sem er mjög merkilegt
nýmæli, og er í því fólkin, að
bæði ökumaður og farþegar
eru sérstaklega tryggðir —
fyrst algerlega ókeypis hjá
Samvinnutryggingum, en fram-
vegis gegn sáralitlu iðgjaldi.
Leggur margur mikið upp úr
þessari þörfu tryggingarvernd
og er þakklátur fyrir tilkomu
hennar.
FJÁRHAGSÁVINNINGUR AF
STARFSEMI SAMVINNU-
TRYGGINGA.
Þá er komið að því, sem
flestir munu telja kjarna
málsins; hinni eiginlegu trygg-
ingastarfsemi Samvinnutrygg-
inga og gagnsemi hennar með
tilliti til pyngjunnar. Er hér
sem víðar um tvískiptingu að
ræða á milli beins og óbeins
hagnaðar, og vandséð, sýnist
mér í þessu tilfelli, hvor mik-
ilvægari er.
Svo vikið sé fyrr að því, sem
ekki er hægt að gefa upp nein-
ar tölur um, en hefir eigi að
síður haft stórfellda fjárhags
þýðingu — og ekki aðeins fyr-
ir félagsmenn Samvinnutrygg-
inga, heldur alla þá, sem not-
færa sér frjálsar tryggingar
36 SAMVINNAN