Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1966, Síða 38

Samvinnan - 01.12.1966, Síða 38
eína varðandi starfsemina. En ekki nóg með það; hverjum félagsmanni er með lagaákvæð- um tryggt að mega sjálfur beint og krókalaust koma á framfæri við aðalfund Full- trúaráðsins hvers konar er- indum og áhugamálum, er honum kann að liggja á hjarta í tryggingamálum. Þessi á- kvæði eru því beinlínis aukin lýðréttindi fyrir alla þá, sem vilja og geta notfært sér þau, og hvenær sem þeim sýnist. Sumir leggja auðvitað ekkert upp úr þessu frekar en öðr- um mannréttindum, en þeir ættu þó að fyrirfinnast, sem kæra sig um að vera virkir á- hrifamenn undir vissum kring- umstæðum og af ýmsum tilefn- um. Möguleikinn er sem sagt fyrir hendi. Hér skal nú þessu spjalli lok- ið. Eftirlátið er það háttvirt- um lesendum að dæma. hversu til hefir tekizt. Um einstök at- riði starfsins og óskamál ein- staklinganna kunna að vera skiptar skoðanir, en í heild og út af fyrirliggjandi staðreynd- um — hér nefndum og ónefnd- um— verður varla annað sagt en að vel hafi veríð að stað- ið og blessun fylgt. Verður ekki betur séð en að mikill hluti þjóðarinnar hafi fellt og sé alltaf að fella þann dóm, að Samvinnutryggingar verð- skuldi viðskipti. Og þessu er ekki tæpt á í orði, heldur er það staðfest ótvírætt í verki. Um það ber sívaxandi trygg- ingafjöldi og hækkanir ið- gjaldatekna glöggt vitni. Þann- ig koma betur og betur í ljós síaukin samskipti almennings og þess þjónustutækis, sem honum var lagt upp í hendur fyrir réttum 20 árum: SAM- VINNUTR Y GGIN GA. Megi svo verða um ókomin ár! „Við sérhvert spor skal græna kvisti græða, sem geymi spor til þess, er síðar fer.“ Baldvin Þ. Kristjánsson. ICA Framh. af bls. 10. er sú mynd nógu ógnvekjandi. Fyrst er þess að gæta, að fólks- fjölgun er ör og sívaxandi í hinum vanþróuðu ríkjum nær- fellt öllum. í landi einsog Ind- landi fjölgar íbúunum um hartnær eina milljón á mán- uði. Ef við tökum allan heim- inn, mun þurfa að fæða eitt þúsund milljónum fleiri íbúa að sextán árum liðnum. íbúa- fjöldi heimsins er nú um 3000 milljónir, en gert er ráð fyrir, að hann verði um 6000 millj- ónir um aldamót. Það er þessi gífurlega fólksfjölgun, sem mestu skiptir af því, sem áhrif hefur á matvælavándamái framtíðarinnar. Án þess ég sé þar með að brydda á málefni, sem frá viss- um trúar- og stjórnmálasjón- arhólum er litið á sem bann- orð eða a. m. k. sem mjög vafa- samt málefni, lít ég svo á, að segja verði eftirfarandi: Menn gera sér nú æ ljósari grein fyr- ir nauðsyn þess að koma á fjöl- skylduáætlunum um allan heim. Ríkisstjórnir og þjóðir í hinum vanþróuðu löndum átta sig nú betur á, að raunveru- lega er enginn kostur á að leysa vandamál efnahagsþró- unar nema takist að gerbreyta núverandi stefnu mannfjölg- unarinnar. Af þessari ástæðu er hrein nauðsyn á aðstoð frá Sameinuðu þjóðunum í náinni framtíð. En jafnvel þótt fjölskyldu- áætlunum verði komið á með alþjóða aðstoð, mun hinn mikli fjöldi fólks, sem nú er á mann- dómsárum í þróunarlöndunum, halda áfram næstu tvo manns- aldra að auka fólksfjölgunina. Og allt verður að gera á næst- unni, sem unnt er, til að auka matvælaframleiðslu og þá einkum í þróunarlöndunum. Önnur athugunarverð stað- reynd er eftirfarandi: Á síð- ustu árum hefur verið tilhneig- ing til minnkandi hagvaxtar í þróunarlöndum. Einkum á þetta við um matvælafram- leiðni. í Asíu, Afríku og Suður- Ameríku hefur heildarfram- leiðslan ekki haldið í horfinu við fólksfjölgunina og í mörg- um þróunarlöndum er fram- leiðslan minni á hvern einstak- ling en fyrir stríð. Án tvíhliða matvælaaðstoðar, einkum frá Bandaríkjum Norður-Ameríku og nokkurrar marghliða hjálp- ar, mundi nú ríkja svæðabund- in hungursneyð í löndum eins og Indlandi og Pakistan. Á þessu ári hefur ástandið verið sérlega alvarlegt vegna óhag- stæðra aðstæðna s. s. flóða. Enn verður að minnast á þriðja atriðið: Heildarupphæð sú, sem varið er til efnahags- aðstoðar við þróunarlöndin — jafnvel að meðtöldu einkafjár- magni — hefur smádregizt saman að undanförnu. Gizkað hefur verið á, að iðnvæddu löndin hafi veitt þróunarlönd- unum u. þ. b. 0,8% af heild- artekjum sínum árið 1961. Á árinu 1964 hefur hlutfallið lækkað niður í 0,6%, og óttazt er, að enn hafi orðið samdrátt- ur á árinu 1965. Á sama tíma hefur mannfjölgun orðið veru- lega meiri í vanþróuðum lönd- um en iðnvæddum. Þessari stefnu verður að breyta í það horf, að ekki renni minna en 1,5% af þjóðartekjum iðn- væddu landanna til þróunar- landanna til að gera þeim kleift að ná því stigi, að hag- þróun þeirra verði sjálfknúin. Á sama tíma eyða mörg iðn- væddu landanna og sum þró- unarlandanna 5—10% þjóðar- tekna til hermála. Venjulegu fólki er örðugt að sætta sig við þetta misræmi milli þess, sem eytt er í efnahagsaðstoð og tæknilega annars vegar og hervæðingu hins vegar (að ekki sé minnzt á alla þá fjármuni, sem fara í að koma lifandi mönnum til tunglsins!). En einsog þegar hefur verið drepið á, er mesta vandamálið varðandi matvæli. Allir al- þjóðahagfræðingar og aðrir sérfræðingar eru sammála um þetta atriði. Ég vil leyfa mér að vitna í einn hinn ágætasta í þeirra hópi, Raymond Ewell, próf. við Ríkisháskólann í New York: „Heimurinn stendur á barmi mestu hungursneyðar mann- kynssögunnar. Ekki sá heimur, sem við byggjum, — heldur hinn vanþróaði heimur, hin þrjú fátæku meginlönd, Asía, Afríka og Suður-Ameríka. Fólksfjölgun í þessum löndum er geysileg og fjarri fer, að matvælaframleiðsluaukn- ing hafi undan . . . Ef þessi þróun heldur áfram, er lík- legt, að hungursneyð verði á háu stigi í Indlandi, Pakistan og Kína skömmu eftir 1970, og fáum árum síðar munu Indó- nesía, íran, Tyrkland og Egyptaland fylgja í kjölfarið. Nokkur önnur lönd í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku eiga sömu kreppu yfir höfði sér um 1980. Slík hungursneyð yrði geysivíðtæk og hefði áhrif á hundruð milljóna manna. Ef þessi spá rætist, sem virðist mjög líklegt, verða þetta hörmulegustu hrakfarir í sögu mannkynsins." Matvæla- og landbúnaðar- stofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO, hefur beint athygli manna mjög að þessari yfir- vofandi hættu, einkum eftir að núverandi framkvæmdastjóri FAO, Dr. Sen tók við embætti. FAO hefur átt frumkvæði að ýmsum alþjóðlegum aðgerð- um, s. s. Herferð gegn hungri, Matvælaáætluninni og nú síð- ast áætlun um matvælafram- leiðslu og hráefni. Með henni er að því stefnt að koma af stað alþjóðaáætlun til að afla landbúnaðinum í þróunar- löndunum nægs áburðar, skor- dýraeiturs og annars, sem þörf er á og kynni að auka fram- leiðslugetu landbúnaðarins þar á skömmum tíma. Sé tillit tek- ið til þess, að kornbirgðir, sem hingað til hafa verið í skemm- um í Bandaríkjunum og nokkr- um öðrum löndum, ganga nú mjög hratt til þurrðar, sýnist ástæða til að gefa þessari á- ætlun mikinn gaum. Á ráðstefnu FAO síðastliðið haust kynnti dr. Sen í inn- gangserindi sínu svo kallaða Bráðabirgðaáætlun um land- búnaðarframleiðslu. Einsog önnur frumkvæði FAO allt frá stríðslokum, er þessi áætlun mjög lofsverð. Markmið henn- ar er að gefa heildarmynd af því, sem þarf að gera og benda á leiðir til að framkvæma það til að mæta hinni gífurlegu og sívaxandi þörf fyrir matvæli handa auknum fólksfjölda. Eina leiðin til að komast hjá algerri hungursneyð, sem sér- staklega kæmi þó niður á þró- unarlöndunum, er að sameina alþjóðlegt og þjóðabundið á- tak. Þetta er hið raunverulega markmið Bráðabirgðaáætlunar FAO. Fáist nægur fjárhags- stuðningur, verður áætlunin undirbúin og henni hrint í framkvæmd á árunum 1968— 1969. FAO ætlar þessu verkefni mikinn hlut á fjárhagsáætlun sinni árið 1966—1967. Þar eru 2V4 milljón dala ætluð til þessa. Engu að síður er þörf á 2y2 milljón til viðbótar til að ljúka framkvæmdum, og aðilar FAO hafa enga lausn fundið á öfl- un þessara peninga. Þetta merkir raunverulega, að fram- kvæmdastjóri FAO verður að leita til sjóða og einkaaðila um þetta fjármagn. Þetta gæti virzt broslegt, ef bakgrunnur 38 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.