Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1966, Qupperneq 47

Samvinnan - 01.12.1966, Qupperneq 47
þín? spurði þessi engilstúlka forvitin. — Hann Stebbi? Hann er mágur minn. — Nú, áttu svona flottan mág? Ég hélt hann væri ráð- herra, eða eitthvað svoleiðis. — Það getur svo sem verið. Ég veit ekkert hverjir eru ráð- herrar núna. Hann Hannes var einu sinni ráðherra. — Hvaða Hannes? spurði engilstúlkan. — Hann Hannes Hafstein! Heldurðu að þú kannist ekki við hann? sagði gamla konan hneyksluð. — Er hann ekki dauður? spurði engilstúlkan tóm í svipn- um. Svo vék hún sér að pilta- gullinu og spurði hvort það vantaði ekki bekken. Hún hafði engan áhuga á dauðum ráð- herrum.--------- JÓI KOM UM kvöldið. Hann var móður. Hafði víst flýtt sér venju fremur. — Ertu eitthvað verri, Rönkutetur? spurði hann úr dyrunum. Hún neitaði því, þurfti bara að tala við hann. Hann settist og blés mæðinni. — Undarlegt, að spítalar skuli alltaf standa í bratta. — Þetta er nú ekki mikill bratti, fullyrti gamla konan. Hann þrætti ekki um það, en þurrkaði af sér svita. — Var það eitthvað sérstakt, sem þú vildir mér, Ranka? — Já. Mig langar að tala við sýslumanninn. Heldurðu ekki að hann geti komið hingað til mín á morgun? — Ætli það ekki. Hefir eitt- hvað komið fyrir, Ranka? Hún þagði um stund. — Ertu eitthvað verri? ánýjaði Jói. — Nei. En ég er búin að ákveða hvernig ég ætla að hafa það, bæði með íbúðina og erfðaskrána. Og ég ætla að fela sýslumanni það. Það getur orð- ið snöggt um mig. Og ég vil hafa þetta á hreinu sem fyrst. — Já, sagði Jói, hátíðlegur eins og við jarðarför. — Ég ætla að segja þér þetta strax, Jói, svo mér gangi betur að átta mig á því og muna það, þegar ég tala við sýslumanninn. — Þú ræður því, sagði Jói. — Randí kom í dag. — — Randí? — Já, hún Ragnhildur nafna mín, dóttir hans Sigga míns. Hún er húsnæðislaus og kom- in langt á leið. Kærastinn hennar er enn við nám og þau eiga ekkert. — Nú, svoleiðis, sagði Jói. — Hann heitir Stefán, sagði gamla konan hugsandi. — Þekkirðu hann? spurði Jói. — Nei, ég gleymdi að spyrja hana hvaða manna hann væri. En ég ætla að taka lán út á íbúðina og hjálpa þeim til að innrétta hana, svo þau geti búið þar með nýja manninn. Heldurðu ekki að það sé hægt? — Það hlýtur að vera. — íbúðir eru til að búa í þeim, Jói. Er það ekki. — Er það ekki auðvitað, sagði Jói. — Þau eiga að leggja það fram, sem þau geta, í innrétt- inguna, upp í húsaleigu. Og búa þar eins lengi og þau þurfa. Mig minnir að hún segði, að hann ætli að verða hag- fræðingur, svo hann þarf sjálfsagt engu að kvíða. Og þegar íbúðin er orðin þeim óþörf, á að selja hana, ef ég verð þá farin. Annars ráð- stafa ég henni sjálf, til bráða- birgða. — Já, sagði Jói, og draup af honum hátíðleikinn. — Eftir minn dag á að selja hana og andvirðið að skiptast í tvo jafna hluta. Annar á að ganga til sjúkrahússins hérna, einkum til að tryggja því, að góðar og elskulegar stúlkur, sem hjúkra gömlu fólki, eins og okkur kerlingunum hérna, fái svo góð laun að þær vilji vera hér. Og geti verið fallegar, blómlegar og kátar, eins og þessar. — Þetta er fallega hugsað af þér, Ranka, sagði Jói hrærð- ur. — Þetta er ósköp fátækur spítali. En hvað ætlarðu svo að gera með hitt? Gamla konan hló. — Hitt. Það á að ganga aftur til þessa skítablaðs, sem þú nefndir svo, sem stofnaði til þessa happ- drættis. Með því skilyrði þó, að það leggi niður happdrætti það árið, að minnsta kosti. — Ranka, sagði Jói eftir stundarþögn. — Hefirðu verið eitthvað lasnari þessa síðustu daga? Ertu góð yfir höfðinu, — ég meina, — ertu alveg eins og þú átt að þér? — Af hverju spyrðu? Ég var á fótum þangað til rétt fyrir kvöldmatinn. Ég kem bráðum heim. Læknirinn fullyrðir það sjálfur. — En, — Ranka, — hvernig dettur þér í hug að fara að arf- leiða þetta blað? Ég er ekki að segja að þeir séu kannski neitt mikið verri en hinir, langt í frá. En þú hefir ekki einu sinni kosið með þeim, það er ég viss um. Mér fyndist miklu nær að þú gæfir þá spítalanum allt eftir þinn dag, ef þú vilt ekki láta skyldfólk þitt erfa þig. Ég segi þér satt, Ranka, að — — Þú skilur þetta ekki, Jói. Skrattinn verður að hafa sitt. Ég nota ekki einn eyri af þessu til minna þarfa. Ég á nóg fyrir jarðarförinni minni og ellistyrkurinn hrekk- ur mér til framfæris. Þetta eru vondir peningar, Jói, ég hef ekki unnið fyrir þeim, ég vil þá ekki. Og ég þori ekki að gefa þessum góða spítala, nema helminginn af þeim, það ætti að vera óhætt. Þeir hafa ekki fært mér neitt gott. Ég hef hugsað um þá, og hugsað Ijótt um fólkið mitt. Meir að segja þig, Jói. Ég hef aldrei á ævi minni hugsað svona um fólk. Og ég hef átt bágt með svefn. — — Já, það kannast ég við, Ranka! hrópaði Jói og var nú alveg eins og hann átti að sér. Því svona var það líka þegar ég fékk minn vinning. Svei mér þá! Ég ætlaði aldrei að geta fest svefn á kvöldin. Og svo dreymdi mig þann djöfuldóm. — Og svo var hann næstum því búinn að gera útaf við ykkur Bía. — — Já, hundskrattinn. Eða, ja, kannski þú hafir rétt fyrir þér, Rönkutetur? Veiztu hvað? Ég hitti mann á götunni, hérna um daginn, ákaflega einkenni- legan mann. Ég sá undir eins að hann var eitthvað sérstæð- ur. Og hann horfir svo undar- lega á mig, víkur sér svo að mér og segir: En hvað þetta er fallegur hundur, sem fylgir þér! SAMVINNAN 47

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.