Samvinnan - 01.08.1969, Side 2
Slysatrygging
Öllum er kunnugt um, aö al-
varleg slys hafa hent börn á
öllum aldri bæði i bæjum og
sveitum. Þess vegna er það
mikið öryggi, að þau séu
slysatryggð sérstaklega. Börn
yngri en 15 ára eru yfirleitt
tryggð fyrir útfararkostnaði
Kr. 20.000. — , en hægt er að
tryggja þau gegn varanlegri
örorku eftir því, sem hverj-
um hentar. Um dagpeninga-
greiðslur til barna vegna slysa
er ekki að ræða.
IÐGJALD fyrir slysatryggingu á börnum er mjög lágt eða
aðeins Kr. 20.- vegna dauða og Kr. 100.- á hver 100.000.-
vegna örorku. Dæmi um mismunandi tr.upphæð við örorku:
TR.UPPHÆÐ TR.UPPHÆÐ IÐGJALD
VIÐ DAUÐA VIÐ 100% ÖRORKU
Kr. 20.000.-— Kr. 100.000— Kr. 120,—
— 20.000,— — 200.000,— — 220,—
— 20.000,— — 300.000,— — 320.—
Framundan er mikill annatími
hjá börnum og viljum vér því
hvetja foreldra til að veita
börnum sínum þá vernd.sem
slysalrygging veilir. ARMÚLA 3 - SÍMI 38500
SAIVTVIIN NUTRYGGIINGAR
Greinarnar um flokksræði á
íslandi í síðasta hefti Samvinn-
unnar vöktu athygli og umræð-
ur manna á meðal, ekki sízt
meðal ungra manna, og voru
teknar til rækilegrar meðferðar í
einu blaði, „Nýju landi — Frjálsri
þjóð“. Hinsvegar hafa þær ekki
orðið tilefni bréfaskrifa til Sam-
vinnunnar, að undanskildu bréfi
Páls Kolka, sem hér er birt. Við-
brögð hans eru til vitnis um, hve
vænlegt muni vera að efna til
hispurslausra umræðna um „við-
kvæm mál“ við eldri kynslóðir
íslendinga. Öldurmennin eiga
greinilega litla samleið með yngri
kynslóðum um opinskáar um-
ræður og hlífðarlausa könnun á
íslenzkum veruleik, svo ömurleg-
ur sem hann er í mörgum grein-
um. Á hitt má benda öllum, sem
áhuga hafa og framtak til að
gagnrýna nefndar greinar eða
annað efni í ritinu, að það stend-
ur opið slíkum greinum og fagn-
ar þeim. Allt sem birt er í Sam-
vinnunni er vissulega á ábyrgð
ritstjórans, en hann telur það
ekki vera í sínum verkahring að
vinza úr þær skoðanir tiltekinna
höfunda, sem honum eða öðrum
kunna að þykja orka tvímælis,
felist ekki í þeim tilhæfulausar
eða vítaverðar aðdróttanir um
nafngreinda einstaklinga. Skoð-
anirnar, sem fram komu í skrif-
um þeirra Alfreðs Ásmundsson-
ar og Hjalta Kristgeirssonar, eru
þeirra sannfæringar og mega
gjarnan koma fram, enda hæg-
urinn hjá að hrekja þær, séu
þær jafnfráleitar og Kolka vill
vera láta. Að slíkum svargrein-
um væri mun meiri ávinningur
en almennt orðuðum fordæming-
um og fúkyrðum, sem ekki er
reynt að finna neinn stað.
Með því að bréfaskriftir les-
enda hafa verið með allra dræm-
asta móti uppá síðkastið, hvern-
ig sem á því stendur (ekki geta
allir verið svona ánægðir með
allt efni ritsins!), þá sneri rit-
stjórinn sér til ungra leiðtoga í
stjórnmálaflokkunum fjórum og
bað þá semja stuttar umsagnir
um flokksræðisgreinarnar. Brugð-
ust þeir vel við þeim tilmælum,
og eru umsagnir þeirra birtar hér
Áður
höröum
höndum -
meö
atrix
mjúkum
höndum
Einsog fyrr hefur verið frá skýrt, eiga þeir lesendur SAMVINNUNNAR,
sem gjarna vildu halda henni saman en leggja ekki I þann kostnað
að láta binda hana inn, kost á handhægum hylkjum með svörtum kili
og nafni og ártölum ritsins í gyiltu letri. Hvert hylki rúmar tvo árganga
SAMVINNUNNAR, og geta menn valið hvort heldur áletrunina 1968—1969
eða 1969—1970. Hylkin eru framleidd af Einari Sigurjónssyni, Óðinsgötu
12 (sími 16586), og eru til sölu ( Ritfangaverzlun Isafoldar, Bankastræti
8 í Reykjavík. Áskrifendur útá landi geta pantað þau hjá afgreiðslu
SAMVINNUNNAR eða beint frá framleiðanda, og er gert ráð fyrir að
þau greiðist gegn póstkröfu við móttöku, þareð SAMVINNAN hefur
engin afskipti af afgreiðslu þeirra.
á eftir. Höfundarnir eru: Baldur
Óskarsson formaður Sambands
ungra framsóknarmanna, Styrmir
Gunnarsson blaðamaður á Morg-
unblaðinu, Svavar Gestsson
blaðamaður á Þjóðviljanum og
Örlygur Geirsson formaður Sam-
bands ungra jafnaðarmanna.
•
í háværum umræðum að und-
anförnu um íslenzk vandamál,
lélegt stjórnkerfi og flokksræði,
hafa fáar eða engar raddir
heyrzt um að leggja beri niður
stjórnmálaflokka, enda blandast
fáum hugur um að þeir eru mjög
þýðingarmikil baráttutæki fólks
í lýðræðisþjóðfélagi.
Ofangreindar umræður hafa
orðið hvað mestar meðal ungs
Kramleiðentlur:
V'efarinn lif.
Últíma hf.
Álafoss
Teppi Iif.
Hagkvœm og gúð þjónusta
Ennfremur nælonteppi og
iinnur erlend teppi í
úrvali
nPMHlSlfl
Suðurlandshraut 10
Sími 83570
3