Samvinnan - 01.08.1969, Blaðsíða 54

Samvinnan - 01.08.1969, Blaðsíða 54
Gestur Pálsscm og Regína Þóröardóttir í hlut- verkum sínum í „Sú gamla kemur í heimsókn". Arndis Björnsdóttir í hlutverki Kerlingarinnar í „Gullna hliöinu“ 1951—52. Enn voru höggvin stór skörð í raðir íslenzkra leikara með fráfalli Arndísar Björnsdóttur og Gests Pálssonar, sem bæði voru í fremstu röð stéttarinnar. Arndís Björnsdóttir lézt 19. maí, 74 ára að aldri. Hún átti að baki nær hálfrar aldar þjónustu við leiklistina, kom fyrst fram á sviði árið 1918, en þremur árum síðar hóf hún að starfa hjá Leikfélagi Reykjavíkur og lék þar að staðaldri framtil 1950, þegar hún var ráðin að Þjóðleikhúsinu. Þar starfaði hún í 15 ár eða þartil hún varð að hætta af heilsufarssökum. Var hún elzt, reyndust og virtust allra íslenzkra leikkvenna, enda hafði hún skilað miklu dagsverki. Of langt mál yrði að rekja hér hin mörgu og sundurleitu hlutverk Arn- dísar, en minnisstæðast þeirra allra er hlutverk Kerlingarinnar i „Gullna hliðinu", sem hún lék bæði í Iðnó og Þjóðleikhúsinu og í leikferðum til Danmerkur, Finnlands og Noregs. Munu fá hlutverk hafa orðið þjóðinni öllu hugstæðari en þessi listræna persónusköpnn Arndísar. Meðal annarra hlutverka hennar eru mér einkum minnis- stæð May Tyrine í „Húmar hægt að kvöldi“ eftir O’Neill og Ása í „Pétri Gauti“ eftir Ibsen, sem var síðasta stóra hlutverk hennar. Gestur Pálsson andaðist 27. marz, 64 ára gamall. Hafði hann þá verið í þjónustu Þalíu tæp 45 ár, kom fyrst fram hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1924, þá nýorðinn stúdent. Hann lauk lögfræðiprófi 1929 og starfaði síðan hjá ýmsum fyrirtækjum, en leiklistin átti hug hans allan frá fyrsta fari, og á leiksviðinu skilaði hann sínu eigin- lega lífsverki. Gestur starfaði hjá Leikfélagi Reykjavíkur þartil hann var ráðinn að Þjóðleikhúsinu 1950, en þar var hann í átta ár. Síðan kom hann aftur til Leikfélagsins og lék þar til hinztu stundar, þó oft væri hann þungt haldinn síðustu árin. Hlutverk Gests Pálssonar voru legíó og enginn vegur að rekja þau hér. Sökum fríðleika, glæsilegrar framgöngu og kliðmjúkrar raddar voru honum gjarnan falin hlutverk elskhuga og glæsimenna, en hann átti einnig auðvelt með að túlka raunamenn lífsins, einsog síðustu hlutverk hans leiddu í ljós: holdsveiki maðurinn í „Fjalla Eyvindi" og 111 í „Sú gamla kemur í heimsókn" eftir Diirrenmatt, en fyrir þá túlkun hlaut hann Skálholtssveininn. Ég man Gest fyrst í hlutverki Blinda Jónasar í „Jónsmessudraumi á fátækraheimilinu“ eftir Lagerkvist veturinn 1946—47, og hafði sú túlkun djúpstæð áhrif á mig. Af öðrum hlutverkum hans ber hátt Kára í „Fjalla-Eyvindi“, Hoederer í „Flekkuðum höndum" eftir Sartre, Hjalmar Ekdal í „Villiöndinni“ eftir Ibsen, Sigurð í „Manni og konu“, Magnús Sigurðsson í Bræðratungu í „íslandsklukkunni", Hómer í „Á yztu nöf“ eftir Wilder og prófessorinn í „Vanja fi'ænda" eftir Tsékhov. Hér er einungis fátt eitt talið frá seinni árum, og verður það að nægja að sinni, en nafn Gests Pálssonar verður án efa skráð gullnu letri í leiklistarsögu íslendinga þegar stundir líða. 4 Vilborg Dagbjartsdóttir: í LEIKSWilÐJU Af aflinum hrynur sindur orða gneistandi atkvæðin lyfta sér á fiug líkt og sveimur fiðrilda kitlandi andlit og hendur er þau tylla sér andartaksstund og vekja hríslandi gleði en smiðurinn kveður við raust meðan hann tekur rauðglóandi setningarnar og beygir þær í skeifur undir áttfættan fákinn sem stendur frýsandi fyrir utan í grænu túni í sumargrænu túni á þessu ísavori. 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.