Samvinnan - 01.08.1969, Blaðsíða 27

Samvinnan - 01.08.1969, Blaðsíða 27
á hendi utan heimilis, fer að vísu stækkandi, enda eru ýmis tæki til, sem létt geta heimilisstörfin, og auk þess fjölgar þeim heim- ilisfeðrum, sem er orðið það ljóst, að heimilisstörfin eru þeim ekki óviðkomandi. Þrátt fyrir það hafa margar húsmæður eins langan og oft lengri starfsdag en fólk í atvinnustarfi, a. m. k. á þeim árum sem börnin eru ung og á meðan þau eru í skólum á ýmsum tímum dagsins. Og oft og tíðum síðar, er barnabörnin eru fengin þeim í hendur eða sjúklingur eða gamalmenni er á heimilinu. Margar „framfærðar" konur, sem hættar eru að stoppa í há- leista og bæta gallabuxur, eru önnum kafnar við alls konar stopp og bætingar á götóttum galla þjóðfélags, sem karlar ein- ir stjórna, t. d. eru þær núna um land allt að safna peningum, til þess að undinn vei'ði að því bráður bugur að bægja frá því neyðarástandi, sem ríkir nú á kvensjúkdómadeild Landspítal- ans, en þar er fjöldi kvenna á biðlista eftir rannsóknir á krabbameinsleitarstöð Krabba- meinsfélags íslands. Ráðskona og húsmóðir Aðalatvinnuvegir þjóðarinnar skiptast í átta aðalgreinar, t. d. landbúnað, fiskveiðar, iðnað og þjónustustörf. Þjónustustörf eru víða um lönd orðin langstærsta atvinnugreinin, en hún skiptist aftur í marga flokka og smærri undirflokka. Einn flokkurinn heitir persónuleg þjónusta og undirflokkur heimilisstörf. Nú mætti ætla að flestar giftar kon- ur væri þar að finna. Nei, hús- mæður eru þar alls ekki. Hins vegar fylla þennan flokk ráðs- konur, vinnustúlkur og heimilis- hjálparkonur. í hagskýrslum og manntölum er ráðskonan fullgildur þátttak- andi í atvinnulífi þjóðarinnar. Ráðskona er sjálfstæður fram teljandi og skattgreiðandi. Ráðs- kona er sjálfstæður eigin fram- færandi. Störf ráðskonu auka þjóðartekjurnar. Húsmóðir er að vísu frá sjón- arhóli ýmissa laga eigin fram- færandi og barna sinna einnig, en það segir lítið, því hún er m. a. bara eiginkona framteljanda, eiginmannsins, og eins þó hún hafi meiri tekjur en hann. (Heimild er þó fyrir gifta konu að telja fram tekjur sínar sér- staklega, en alls ekki eignir, ekki einu sinni séreignir, þær eiga að vera á framtali eiginmannsins. Skattfrjálsu 50 prósentin af tekj- um giftrar konu er hagsmuna- mál heimilisins, ekki jafnréttis- mál). Húsmóðir telst alls ekki taka þátt í atvinnulífi þjóðarinnar, hversu mörg börn, nýja þegna þjóðfélagsins, sem hún elur upp. Vinni hún aftur á móti við land- búnaðarstörf eða að gistihúsa- rekstri ásamt manni sínum, kall- ast hún í hagskýrslum og mann- tölum fjölskyldumeðhjálp. Störf húsmóður við uppeldis-, hreinlætis- og matreiðslustörf eru ekki tekin með í reikninginn, þegar reiknaður er út fram- færslukostnaður á meðalheimili. (Afleiðingarnar koma m. a. í ljós, þegar framfærsla og uppeldi barna eiga að skiptast milli föð- ur og móður, sem ekki búa sam- an. Sbr. grein Margrétar Mar- geirsdóttur). Dæmi um mat þjóð- arbúsins á störfum húsmóður og ráðskonu: Ráðskona er hjá tog- araskipstjóra, ekkjumanni með barnahóp. Einn góðan veðurdag giftist hún húsbónda sínum. Störf hennar breytast ekki, nema ef börn kynnu að bætast í búið. En hvað gera hagskýrsluvélarn- ar? Ráðskonan er flutt úr þjón- ustustarfsdálkinum sínum sem sjálfstæður framfærandi og full- gildur þátttakandi í atvinnulífi þjóðarinnar yfir í atvinnugrein- ina fiskveiðar. Þar er hún fram- færð persóna á vegum eigin- mannsins og fiskveiðanna. Á meðan hún var ráðskona átti hún rétt á slysabótum, hefði hún skaðað sig við eldhússtörfin, sömuleiðis fulla sjúkradagpen- inga. Sem gift kona á hún alls engan rétt á slysabótum, og að- eins takmörkuðum sjúkradagpen- ingum. Þó borgar hún alveg eins hátt sjúkrasamlagsgjald og áður. Hversu lítils starf húsmóður er metið, þrátt fyrir öll eftirmæl- in og annan lofsöng, má glögg- lega sjá á því, að deyi móðir frá ungum börnum — innan 16 ára — er aðeins heimild fyrir því, að barnalífeyrir sé greiddur ekkjumanninum, þ. e. a. s. „ef fráfall eiginkonu veldur tilfinn- anlegri röskun á afkomu hans“, eins og lögin orða það. Hér er ekki aðeins um vanmat á störf- um móðurinnar að ræða, heldur er þetta alvarlegt misrétti gagn- vart einstæðum feðrum og börn- um þeirra. Ekkjur fá barnalíf- eyri með börnum sínum án tillits til efnahags. Þetta er brot á al- mennum mannréttindum. Einstæðar mæður og almannatryggingar Vissulega ber að viðurkenna, að einstæðum mæðrum og börn- um þeirra er nú sýnd meiri mannúð en áður var, t. d. þegar ekkjur og börn þeirra voru flutt sveitarflutningi úr heimasveit sinni til fjarlægrar sveitar, þar sem hinn látni faðir hafði átt sveit (þá voru menn 10 ár að vinna sér sveitfesti), eða barns- hafandi ógift kona var nauðug flutt á sína sveit til þess að barn- ið fæddist þar. Almannatrygg- ingarnar hafa bætt kjör þeirra, en minni væru þær bætur, ef kvennasamtökin í landinu, með Kvenréttindafélag íslands í broddi fylkingar, hefðu ekki sí- fellt verið að minna á rétt þeirra til mannsæmandi kjara og sama réttar og hjónafólk nýtur. Lengi þurfti t. d. að berjast fyrir því, að fjölskyldubætur væru greidd- ar með föðurlausum börnum og börnum þeirra foreldra, sem búa ekki saman með börnum sínum. Eftir lagabreytingar 1963 voru fjölskyldubætur „greiddar með öllum börnum yngri en 16 ára“. Þær eru nú kr. 4.356,00. Tryggingastofnun ríkisins hef- ur milligöngu um meðlagsgreiðsl- ur vegna barna ógiftra mæðra og fráskilinna kvenna, en aðeins lágmarksmeðlag, sem er sama upphæð og barnalífeyrir með barni látins föður, skv. 16. gr. alm.tr.laga: „Barnalífeyrir er greiddur með börnum yngri en 16 ára, ef faðirinn er látinn eða er örorkulífeyrisþegi... Árlegur barnalífeyrir með hverju barni skal vera kr. 18.876,00.“ 17. grein alm.tr.laga: „Mæðra- laun skulu greidd ekkjum, ógift- um mæðrum og fráskildum kon- um, sem hafa börn undir 16 ára aldri á framfæri sínu. Árleg mæðralaun skulu vera sem hér segir: Með einu barni kr. 3.780,00 Með tveimur börnum — 20.496,00 Með þrem b. eða fl. —40.992,00 Feðralaun eru ekki til. Til þess að gera gleggri grein fyrir þessum bótum almanna- trygginganna tökum við dæmi: 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.