Samvinnan - 01.08.1969, Side 11
4 '”* SAM
VINNAN
EFNI: HÖFUNDAR:
3 Lesendabréf og smælki
10 Ritstjórarabb
12 MENN SEM SETTU SVIP Á ÖLDINA: Marie Curie
17 KONAN OG ÞJÓÐFÉLAGIÐ 17 Um endurreisn mæðraveldis 19 Konan — nýtt sögulegt fyrirbæri 21 Máttur vanans — menntun kvenna 23 Hin ósýnilega stétt. ,,Æ, hvað kemur mér þetta við?“ 26 Að mannréttindaárinu liðnu 28 Einstæðar mæður 31 Réttindi barnsins samkvæmt yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna 32 Fyrirvinnuhugtakið og goðsagnirnar Jóhann Hannesson prófessor Aase Eskeland húsmóðir Vigdís Finnbogadóttir menntaskólakennari Bryndís Schram Anna Sigurðardóttir húsmóðir Margrét Margeirsdóttir féiagsráðgjafi Hólmfríður Gunnarsdóttir kennari
34 Ásthildur (Ijóð og teikning) Jónas Svafár
34 Á Húsavík og Apríl (Ijóð) Anna María Þórisdóttir
35 SMÁSAGAN: Spegill (Teikning: Peter Behrens) Fríða Sigurðardóttir
38 Fjörefnaskortur íslenzkra smásagna Amalía Líndal
40 Amerískur harmleikur Wolfgang Fischer
42 Nokkrar athugasemdir um lífið og listina Þuríður Kvaran
44 Isadora Gerd Haugen
46 ERLEND VÍÐSJÁ: Þríveldakerfi í mótun Magnús Torfi Ólafsson
49 Um myndlist Einar Hákonarson
50 SAMVINNA: íslenzk verzlun í vanda stödd Erlendur Einarsson
52 Leikhússpjall Sigurður A. Magnússon
54 í leiksmiðju (Ijóð) Vilborg Dagbjartsdóttir
55 Fjögur Ijóð María Karlsdóttir
55 Þegar skýjaborgirnar hrundu. Um stríðsmarkmiðin í heimsófriðnum 1914—18 Sverrir Kristjánsson
60 Heimilisþáttur Bryndís Steinþórsdóttir
TIL ÁSKRIFENDA
Einsog frá var skýrt í síðasta hefti, efnir Samvinnan til áskrifenda-
happdrættis á þessu ári, þar sem í boði er 17 daga ferð fyrir tvo til
Mallorca með tveggja daga viðdvöl í Lundúnum á heimleið. Verður
þeim, sem vinninginn hreþpa, séð fyrir séríbúð með baði og svölum
á Mallorca, og má velja um ferðir þangað 8. og 23. október eða fyrstu
ferðir á næsta ári (vorferðirnar) með Ferðaskrifstofunni Sunnu. Allir
áskrifendur Samvinnunnar, gamlir og nýir, sem greitt hafa áskriftar-
gjald yfirstandandi árs fyrir 30. september, eru sjálfkrafa þátttakendur
í þessu hapþdrætti. Númeraðir reikningar hafa nú verið sendir öllum
áskrifendum ásamt upplýsingum um hvar inna megi af hendi greiðslur
ó suðvestanverðu landinu. Verður dregið um ferðina þann 30. sept-
ember og að sjálfsögðu aðeins úr númerum þeirra kaupenda, sem
greitt hafa áskriftargjaldið fyrir þann tíma. i fyrra fóru hjón á Húsavík
í vinningsferð Samvinnunnar og rómuðu mjög allan aðbúnað og fyrir-
greiðslu.
Um höfunda þessa heftis, sem hafa ekki verið kynntir í fyrri heftum,
má taka fram, að Aase Eskeland er eiginkona forstjórans í Norræna
húsinu, Vigdis Finnbogadóttir hefur allmikið verið viðriðin leiklistar-
mál auk kennslustarfa. Bryndís Schram er kunn fyrir dans og leik á
sviði, auk frumsaminna greina og þýðinga. Anna Sigurðardóttir er einn
helzti leiðtogi kvenréttindahreyfingarinnar á íslandi. Margrét Margeirs-
dóttir hefur unnið að merkilegum félagsrannsóknum auk starfa sinna
að barnaverndarmálum. Hólmfríður Gunnarsdóttir hefur kynnt sér kven-
réttindi í Svíþjóð og skrifað talsvert um þau mál hérlendis.
Fríða Sigurðardóttir er bókavörður í Háskólabókasafni. Anna María
Þórisdóttir hefur einkum fengizt við þýðingar smásagna. Þuríður Kvaran
hefur stundað háskólanám og kennslu. Einar Hákonarson er einn af
eftirtektarverðustu myndlistarmönnum íslendinga af yngri kynslóð og
hefur stundað nám í Svíþjóð. Vilborg Dagbjartsdóttir hefur gefið út
tvær Ijóðabækur sem vöktu athygli. María Karlsdóttir er vistmaður á
Reykjalundi.
Gerd Haugen er blaðakona við norska samvinnublaðið „Várt blad“,
og Wolfgang Fischer er norskur blaðamaður af þýzkum ættum, sem
starfar sjálfstætt.
Júlí—ágúst 1969 — 63. árg. 4.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður A. Magnússon.
Blaðamaður: Eysteinn Sigurðsson.
Afgreiðsla og auglýsingar: Reynir Ingibjartsson.
Uppsetning: Teiknistofa Torfi Jónsson, Peter Behrens.
Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga.
Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, sími 17080.
Verð: 350 krónur árgangurinn; 75 krónur í lausasölu.
Gerð myndamóta: Prentmyndagerðin Hverfisgötu 4.
Prentverk: Prentsmiðjan Edda hf.