Samvinnan - 01.08.1969, Síða 12
MENN
8EM SETTU SVIP
Á OLDINA
Marie Curie
Vetrarnótt eina árið 1891 var pólsk stúlka
að nafni María Sklodowska á leið um Þýzka-
land til Parísar í lestarvagni fjórða farrým-
is, þar sem hún varð að gera sér að góðu
harðan hjarabekk alla leiðina. Draumur sem
hún hafði lengi alið með sér um æðra nám
í París var í þann veginn að rætast. Hún
hafði orðið að leggja hart að sér til að afla
farareyris, og viðskilnaðurinn við föður-
land og ættingja hafði verið sár. En hún
huggaði sig við það, að eftir nokkur ár
mundi hún snúa aftur heim til Póllands og
finna sér góða kennarastöðu í þeim fræðum
sem stóðu hjarta hennar næst. María var
24 ára gömul þegar hún lagði útí óvissuna,
sem nokkrum árum síðar átti eftir að færa
henni heimsfrægð undir nafninu Marie
Curie.
María Sklodowska fæddist í Varsjá árið
1867, fjórum árum eftir að síðasta stórupp-
reisn Pólverja var bæld niður af rússneska
keisarahernum. Móðir hennar rak lítinn
einkaskóla og faðir hennar, Wladyslaw Sklo-
dowski, var menntaskólakennari í stærð-
fræði og eðlisfræði. Foreldrar Maríu voru
af pólskum lágaðli, en lítt efnum búin.
Börnin voru fimm, fjórar dætur og sonur.
Faðirinn var ákaflega víðlesinn og fjöl-
menntaður maður. Þráttfyrir erfiðar efna-
hagsástæður fylgdist hann mjög vel með
öllum nýjungum í vísindum, einkanlega í
efnafræði og eðlisfræði. Hann kunni latínu
og grísku ekki síður en ensku, frönsku,
þýzku og rússnesku. Hann þýddi verk er-
lendra skálda í bundnu og óbundnu máli á
pólsku.
Fjölskyldan varð að hafa tíð vistaskipti
vegna fátæktar, en menntun barnanna gekk
fyrir öllu. María sótti pólskan einkaskóla
þar sem hún var bezti nemandi bekkjarins.
En til að fá inngöngu í háskóla urðu pólskir
nemendur að sækja menntaskóla, þar sem
öll kennsla fór fram á rússnesku, en pólska
var stranglega bönnuð. Hún lauk mennta-
skólanámi með prýði 17 ára gömul og hlaut
gullpening fyrir frammistöðu sína, en fékk
ekki inngöngu í háskóla, þareð rússneskir
háskólar voru lokaðir kvenfólki. Sárafáir
Pólverjar sóttu þessa háskóla, og árið 1905
hættu þeir algerlega að sækja alla ríkisskóla
og þá einnig háskólana. í stað þess skipu-
lögðu þeir eigin skóla með leynd, og stúd-
entar beittu sér fyrir því að mennta verka-
lýðinn. Tíðarandinn einkenndist af miklum
vísindaáhuga. Heimspekingar einsog Aug-
uste Comte og Herbert Spencer og vísinda-
menn einsog Darwin og Pasteur voru í há-
vegum hafðir. María smitaðist af þessum
anda og las meðal annars bækur Spencers á
frönsku.
María var 18 ára, þegar eldri systir henn-
ar, Bronía, fór til læknisfræðináms í París,
þar sem hún giftist síðar pólska lækninum
Dluski. Þau stofnuðu hið fræga Zakopane-
heilsuhæli eftir heimkomuna. Faðir þeirra
systra treysti sér ekki til að kosta nám
Broníu í París nema að litlu leyti af hinum
lágu kennaralaunum, þannig að María
bauðst til að hlaupa undir bagga. Hún réðst
sem einkakennari til Zurawski-fjölskyldunn-
ar. í sumarleyfinu kom elzti sonurinn,
Karol, heim frá háskólanum þar sem hann
lagði stund á stærðfræði. Ástir tókust með
þeim Maríu og Karol, en foreldrar hans
lögðust gegn hjónabandi þeirra þareð dóttir
menntaskólakennara þótti enganveginn jafn-
kosta syni landeiganda. Karol varð síðar
háskólakennari í stærðfræði og lifði fram-
yfir seinni heimsstyrjöld. Hann var góður
stærðfræðingur og ein kenning í vatnsorku-
fræði er kennd við hann.
Áhugi Maríu á stærðfræði hófst um svip-
að leyti og hún kynntist Karol, og vera má
að kynni þeirra hafi opnað augu hennar
fyrir töfrum stærðfræðinnar.
Eftir að María kom aftur til Varsjár starf-
aði hún um skeið í Iðnaðar- og landbúnaðar-
safninu, þar sem hún gerði fyrstu tilraunir
sínar í eðlis- og efnafræði undir handleiðslu
frænda síns, Jósefs Bógúskis. En ástarraunir
hennar, áhugi á vísindum og lokaðar dyr
háskólanna í heimalandinu urðu þess vald-
andi, að hún afréð að halda til Parísar 1891.
Hún ætlaði að fullnuma sig sem kennari í
stærðfræði og eðlisfræði. En forlögin gripu
1 taumana og breyttu þeirri fyrirætlun.
12