Samvinnan - 01.08.1969, Side 13
Þegar María steig útúr lestinni á braut-
arstöðinni í París andaði hún í fyrsta sinn
að sér andrúmslofti frjálsrar þjóðar. Af
eðlislægri áfergju kastaði hún sér þegar útí
nám og starf. Hún sótti kennslustundir í
stærðfræði og efnafræði og þjálfaði sig af
mikilli kostgæfni til þeirra miklu nákvæmn-
isstarfa sem vísindalegar tilraunir útheimta.
Brátt naut hún þeirrar fullnægju að fá að
bera ábyrgð á ákveðnum tilraunum, sem
voru í fyrstu ekki sérlega veigamiklar, en
gáfu henni færi á að sanna leikni sína og
hugkvæmni.
Hún hafði ástríðublandinn áhuga á til-
raunastofum og kunni hvergi betur við sig
en innan veggja þeirra, þar sem þögn og
einbeiting sköpuðu alveg sérstakt andrúms-
loft. Henni fannst ekki nóg að fá eina há-
skólagráðu og ákvað að taka meistarapróf
í eðlisfræði og stærðfræði.
María hafði gert sér eigin heim, þar sem
vísindaástríðan drottnaði yfir öllu öðru. Ást
hennar á ættingjum og ættlandi átti líka
rúm í þessum heimi, en annarskonar ást,
sem áður hafði fært henni vonbrigði og
auðmýkingu, var þar útlæg. Hjónaband kom
einfaldlega ekki til mála.
Meðan María lét sig dreyma heima í Var-
sjá um að komast einhverntíma til Sor-
bonne-háskólans í París, var Pierre Curie
orðinn kunnur kennari við þann sama skóla
og hafði getið sér orð fyrir uppgötvanir
sínar í eðlisfræði. Eitt kvöld þegar hann
kom heim frá skólanum trúði hann dagbók
sinni fyrir þessum hugsunum: „Konur elska
hið lifandi líf í miklu ríkara mæli en við
gerum: konur með snilligáfu eru sjaldgæfar.
Við verðum að berjast við konurnar, þegar
við erum knúðir af einhverri „dularfullri“
ástríðu til að fara einhverja leið sem er
gagnstæð náttúrunni, vinna einhver verk
sem gera okkur viðskila við þær manneskj-
ur sem eru okkur nákomnastar og kær-
astar.“
Pierre var annar sonur læknis að nafni
Eugéne Curie og hafði aldrei hlotið „form-
lega“ menntun. Hann gekk aldrei í skóla.
Hann naut tilsagnar föður síns í öndverðu
og síðar einkakennara. Þessi háttur hafði
sína ótvíræðu kosti. Sextán ára gamall tók
Pierre kandídatsgráðu í vísindum og tveim-
ur árum síðar meistaragráðu. Nítján ára
gamall var hann orðinn aðstoðarmaður De-
sains prófessors við vísindadeild háskólans
og gegndi því starfi í fimm ár. Hann stund-
aði rannsóknir og tilraunir með bróður sín-
um, Jacques. Þessir tveir ungu vísindamenn
gátu brátt skýrt frá uppgötvun sinni á
,.niezo-rafmagni“.
Árið 1883 var Jacques skipaður prófesso’-
við háskólann í Montpellier, en Pierre
varð forstöðumaður rannsóknastofu Eðlis-
og efnafræðiskóla Parísar. Endaþótt hann
helgaði mikið af tíma sínum nemendum.
hélt hann áfram fræðilegum rannsóknum
sínum á eðlisfræði kristalla. Þessar rann-
sóknir leiddu til skilgreiningar hans á sam
svörunar-lögmálinu, sem orðið hefur ein af
undirstöðum nútímavísinda. Hann fann upn
og bjó til ákaflega næma vísindavog. Curie
vogina. Hann hóf að kanna segulaflið og
gerði í því efni mjög merka uppgötvun.
þegar hann fann Curie-lögmálið svonefnda.
Þetta var maðurinn sem María Sklod-
owska kynntist í fyrsta sinn í ársbyrjun
1894. „Mér virtist hann mjög ungur,“ skrif-
aði hún síðar, „þó hann væri þá orðinn 35
ára gamall. Seinmælt, íhugul orð hans,
einfaldleiki hans og bros, í senn alvarlegt
og unglegt, vakti allt traust á honum. Við
hófum að ræða saman og urðum vinir: um-
ræðuefnið var eitthvert vísindavandamál
sem mér þótti gleðiefni að geta lagt undir
dóm hans.“
Pierre Curie minntist fyrsta fundar þeirra
síðar með þessum orðum: „Ég lýsti fyrir
henni fyrirbæri kristallamælinga, sem ég
var að fást við. Það var undarlegt að tala
við konu um verkefni sem áttu hug manns
allan, að nota tækniorð og flóknar formúl-
ur, og sjá þessa konu, eins ung og töfrandi
og hún var, lifna við, skilja og jafnvel ræða
tiltekin smáatriði af furðulegri glögg-
skyggni.
mjúklyndu pólsku stúlku, sem gat verið
barnaleg og háfleyg í sömu andrá: því hún
var vinur og eiginkona, ástkona og vísinda-
maður.
í júlí 1897 fæddist fyrsta barn þeirra,
Iréne Curie, sem átti eftir að feta í fótspor
móður sinnar. Hún lagði útá vísindabraut-
ina, giftist öðrum vísindamanni, eðlisfræð-
ingnum Erederic Joliot, og tók við forstöðu
Radíumstofnunarinnar í París af móður
sinni 1932. Árið 1935 hlutu þau hjón Frede-
ric og Iréne Joliot-Curie Nóbelsverðlaunin
í efnafræði.
í árslok 1897 hafði Marie Curie tekið tvær
háskólagráður, hlotið kennarastöðu og samið
vísindaritgerð um segulmögnun herts stáls.
Næsta rökrétt skref á framabraut hennar
var doktorsgráða. Þegar hún fór yfir skýrsl-
ur um síðustu vísindatilraunir, vaknaði
María Sklodowska árið
1892. Hún var 24 ára
gömul og hafði aðeins
verið í París nokkra
mánuði. Tíu árum síð-
ar fann hún radíum
og var hyllt sem einn
mesti vísindamaður
nútímans.
Ég starði á hár hennar. á hátt ávalt ennið
og hendurnar, sem voru þegar skemmdar
af sýrum rannsóknastofunnar og ýfðar af
húsverkum. Ég gróf í huga mér eftir öllu
sem mér hafði verið sagt um þessa stúlku.
Hún var pólsk. Hún starfaði árum saman í
Varsjá áður en hún gat tekið lestina til
Parísar; hún var févana; hún bjó alein í
þakherbergi...“
í júlí 1895 voru Pierre og Marie Curie
gefin saman, og um leið hófst eitt merki-
legasta samstarf sem um getur í sögu vís-
indanna. Þau hjón voru svo frábærlega sam-
hent í einkalífi jafnt og vísindastörfum, að
orð var á gert. Eve Curie segir í ævisögu
móður sinnar, að hún hefði ekki getað gifzt
neinum manni öðrum en þessum mikla
eðlisfræðingi, þessum vitra og göfuga
manni, og hann hefði ekki getað kvænzt
neinni konu annarri en þessari bjartleitu og
áhugi hennar á ritgerð sem franski vísinda-
maðurinn Henri Becquerel hafði gefið út.
Hann hafði rannsakað sölt sjaldgæfs málms,
úraníums. Eftir að Röntgen hafði fundið
geislana sem við hann eru kenndir, hafði
franska vísindamanninum Henri Poincarré
komið til hugar að kanna, hvort geislar á-
þekkir Röntgen-geislum köstuðust frá flúr-
lýsandi hlutum fyrir áhrif ljóss. Með
sama vandamál í huga kannaði Becquerel
sölt úraníums. í stað fyrirbrigðanna, sem
hann hafði gert ráð fyrir, veitti hann at-
hygli öðru gagnólíku fyrirbæri sem var
honum með öllu óskiljanlegt. Ánþess áhrif-
um ljóss væri til að dreifa, stöfuðu sölt
úraníums sjálfkrafa frá sér einhverjum
geislum sem hann kunni engin skil á. Úra-
níumblanda, sem sett var á ljósmyndaplötu
umvafin svörtum pappír, gerði mark á plöt-
una gegnum pappírinn.
13