Samvinnan - 01.08.1969, Síða 14
Iréne og Frederic Joliot-
Curie, sem hlutu Nóbelsverð-
launin í ejnafrœði 1935. Var
það í þriðja sinn sem kona
hlaut Nóbelsverðlaun jyrir vís-
indastörf. Tvö fyrri skiptin hafði
Marie Curie hreppt þau. Siðan
hafa einungis þrjár konur hlotið
Nóbelsverðlaun fyrir vísinda-
afrekrek: Gerty T. Cori frá
Bandaríkjunum í lœknisfrœði
1947, Maria Goeppert Mayer frá
Bandaríkjunum í eðlisfrœði 1963
og Dorothy Crowjoot-Hodgkin
frá Bretlandi í efnafrœði 1964.
Eftir að Maria Sklodowska »_>.
hafði stundað nám við Sor-
bonne-háskóla í fjögur ár giftist
hún Pierre Curie árið 1895.
Uppgötvun Becquerels hreif Curie-hjónin.
Þau veltu fyrir sér, hvaðan sú orka kæmi
sem úraníumblöndur gáfu stöðugt frá sér
í mynd geislunar. Og hvers kyns geislunin
væri. Hér var sannarlega efni sem vert væri
að kanna og semja um doktorsritgerð.
En eftir var að ákveða hvar Marie ætti
að gera tilraunir sínar. Eftir allmikla erfið-
leika og eftirgangsmuni var henni fengin
til afnota lítil vinnustofa með glerveggjum
á neðstu hæð Eðlisfræðiskólans. Hér var
um að ræða nokkurskonar geymsluherbergi,
þvalt af raka, þar sem aflóga vélum og
verkfærum var komið fyrir ásamt timbri.
voru vantrúaðir. „Sýnið okkur radíum,“
sögðu þeir, „og þá munum við trúa yður.“
Til að sýna efasemdamönnum póloníum
og radíum, til að sanna heiminum að þessi
nýju frumefni væru fyrir hendi, og til að
staðfesta sínar eigin sannfæringar unnu
Pierre og Marie Curie í heil fjögur ár til
viðbótar í hrörlegum timburkofa, sem stóð
handanvið garðinn fyrir framan upphaflega
vinnustofu Marie. Þessi skúr hafði eitt sinn
verið notaður til krufninga af læknadeild-
inni, en hafði ekki um árabil verið talinn
hæfur til líkgeymslu, hvað þá meira.
„Við áttum enga peninga, höfðum enga
tilveru radíums, sem Marie lánaðist loks
að búa til eitt desígramm af hreinu radíum.
Hún gerði fyrstu útreikninga á kjarnaþyngd
þess — 225.
Nú voru efasemdamennirnir — og enn
voru allmargir þeirra til — ekki lengur í
efa. Þeir urðu að beygja sig fyrir stað-
reyndum og nálega ofurmannlegri þrákelkni
konu sem unnið hafði eitt mesta vísinda-
afrek aldarinnar. Nú var radíum opinber-
lega til.
Marie og Pierre áttu enn saman fjögur
góð ár. Á þessum árum varð radíum meiri-
háttar iðngrein; það var notað í læknis-
Áriö 1903 voru Pierre og Marie Curie veitt Nóbels-
verðlaunin í eðlisfrœði ásamt franska
vísindamanninum Henri Becquerel.
Hún var fyrsta konan sem hlaut Nóbelsverðlaun
og einnig önnur konan, því árið 1911 voru
henni veitt Nóbelsverðlaunin i efnafrœði.
Rannsóknartækin voru eins frumstæð og
hugsazt gat, og þægindi voru alls engin.
Endaþótt Marie hefði hvorki nægilegt raf-
magn né önnur þau gögn sem venjulega
eru fyrir hendi, þegar hefja skal vísinda-
rannsóknir, þá lét hún engan bilbug á sár
finna. Henni tókst með mikilli fyrirhöfn
og talsverðri hugkvæmni að gera fátækleg-
an tækjabúnað sinn þannig úr garði, að
tilraunir hennar gátu hafizt.
Við þessar afarfrumstæðu aðstæður á
götuhæð Eðlisfræðiskólans í Lhomond-
stræti í París voru tvö ný frumefni upp-
götvuð: póloníum og radíum.
En enginn hafði séð radíum. Enginn
þekkti kjarnaþyngd þess. Efnafræðingar
rannsóknastofu og fengum enga hjálp við
að vinna að þessu mikilsverða og torvelda
verkefni,“ sagði Marie síðar. „Það var eins-
og að skapa eitthvað úr engu. Mér er óhætt
að segja, alveg ýkjulaust, að fyrir manninn
minn og mig var þetta tímabil „hetjuskeið-
ið“ í lífi okkar. Og samt var það í þessu
auma kofaskrifli sem við áttum beztu og
hamingjuríkustu ár ævinnar — ár sem voru
algerlega helguð vinnu. Stundum eyddi ég
heilum degi í að hræra sjóðandi bikblendi
með járnstöng sem var næstum eins stór
og ég sjálf. Á kvöldin var ég venjulega úr-
vinda af þreytu."
Það var árið 1902, eða 45 mánuðum eftir
að Curie-hjónin höfðu kunngert sennilega
fræði til að lækna bólgur og æxli og ákveðn-
ar tegundir krabbameins. Önnur dóttir, Eve,
fæddist. Árið 1903 voru Curie-hjónunum
veitt Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði ásamt
Henri Becquerel. Nafnið Curie var orðið
frægt um allan heim.
Svo var það einn rigningarmorgun í apríl
1906, að Pierre var á leið heim til sín eftir
Dauphine-stræti. Þegar hann gekk yfir
strætið, varð hann fyrir hestvagni og týndi
lífinu þegar afturhjól vagnsins fór yfir höf-
uð hans. Á þeim degi varð Marie Curie ekki
einungis ekkja, heldur einnig brjóstum-
kennanlegur einstæðingur, sem aldrei síðan
fékk unnið bug á einmanaleik sínum.
Hvað átti nú að verða um hana? Hvað
14