Samvinnan - 01.08.1969, Síða 26
Anna Sigurðardóttir:
Að mannréttindaárinu
liðnu
Hinn 30. desember 1968 undir-
ritaði ambassador íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum, Hannes
Kjartansson, mannréttindasátt-
málana tvo, sem voru tilbúnir til
undirskrifta og fullgildingar fyr-
ir mannréttindaárið. Sameinuðu
þjóðirnar höfðu samþykkt, að
árið 1968 yrði helgað mannrétt-
indum um heim allan í tilefni
þess, að á því ári væru 20 ár
liðin frá því að mannréttinda-
yfirlýsingin var samþykkt á Alls-
herjarþinginu í París.
Árið 1968 fékk heitið Mann-
réttindaár. Meðal þeirra þjóða,
sem undirrituðu mannréttinda-
sáttmálana, voru Norðurlanda-
þjóðirnar, sem munu ætla að
hafa samvinnu um fullgildinguna.
En það geta þær ekki fyrr en
þær eru m. a. þess umkomnar
að skuldbinda sig til þess að
tryggja jafnan rétt karla og
kvenna til þess að njóta allra
þeirra réttinda, sem sáttmálarnir
fela í sér, eins og komizt er að
orði í 3. grein hvors þeirra.
Annar sáttmálinn heitir al-
þjóðasáttmáli um borgaraleg og
pólitísk réttindi. 4. málsgrein 23.
greinar hljóðar svo: „Þau ríki,
sem aðild eiga að sáttmála þess-
um, skulu gera viðeigandi ráð-
stafanir til þess að tryggja hjón-
um jafnstöðu (enska = equality,
danska = ligestilling) gagnvart
réttindum og skyldum við gift-
ingu, á meðan hjúskapur varir
og við slit hjúskapar. Við slit
hjúskapar, ef um börn er að
ræða, skal þess gætt, að þeim
verði veitt nauðsynleg vernd.“
Þrátt fyrir fullyrðingar um
jafnrétti í hjúskaparlögunum frá
1923, er þar ekki Um að ræða
jafnrétti og jafnstöðu hjóna,
heldur er jafnrétti karla og
kvenna alrnenn meginregla. Að
vísu er meginreglan við skilnað
jöfn skipti á eignum (vafasamt
réttlæti í sumum tilfellum), en
á meðan hjúskapur varir er
tekjuaflandi maki eftir lögunum
einráður að kalla. Skv. mannrétt-
indayfirlýsingu Sameinuðu þjóð-
anna 1948 virðast menn hafa
álitið jafnrétti milli karla og
kvenna vera sama og jafnrétti
milli hjóna. Af sáttmálanum er
hins vegar auðsætt, að skilning-
ur hefur vaknað á því, að jafn-
rétti milli karla og kvenna al-
mennt er harla lítilvægt, ef það
nær ekki til að skapa jafnstöðu
þeirra tveggja einstaklinga, karls
og konu, sem eru stofnendur
fjölskyldunnar, frumeiningar
þjóðfélagsins. Um pólitísku rétt-
indin, sem ísl. konur fengu fyrir
rúmri hálfri öld, er áreiðanlega
engin goðgá að segja, að aðstaða
kvenna til að njóta kjörgengis-
réttindanna hefur ekki verið söm
og karlmanna.
Hinn mannréttindasáttmálinn
— alþjóðasáttmáli um efnahags-
leg, félagsleg og menningarleg
réttindi — minnir mann vel
á (7. og 13. gr.), að enn hefur
ekki tekizt að tryggja konum að-
stöðu til að njóta þeirra réttinda,
sem ýmis lög fela í sér, svo sem
skólalöggjöf og lög um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins.
íslenzkum konum er ekki búin
jafnstaða við karlmenn í mennt-
unar- og atvinnumálum.
Áður en mannréttindaárið
gekk í garð, var samþykkt á Alls-
herjarþingi SÞ yfirlýsing um af-
nám misréttis gagnvart konum.
Að slík yfirlýsing skuli þykja
nauðsynleg jafnhliða mannrétt-
indasáttmálunum, er sönnun þess,
við hve alvarlegt misrétti konur
eiga að búa víða um heim.
Meira að segja er í undirbún-
ingi sérstakur sáttmáli um rétt-
indi kvenna. (Sáttmálar eru laga-
lega bindandi fyrir þær þjóðir,
sem fullgilda þá).
í yfirlýsingunni um afnám mis-
réttis gagnvart konum er lögð
mikil áherzla á nauðsyn þess að
breyta almenningsáliti, afnema
gamlar venjur og siði og uppræta
þann hugsunarhátt, að konur séu
körlum síðri. En sá hugsunar-
háttur á rót sína að rekja til
þess tíma, er spekingar fornald-
ar og kirkjufeðurnir efuðust um,
að konur hefðu sál, og álitu vafa-
samt að telja þær með mannkyn-
inu, og sömuleiðis til þeirrar
skoðunar Platóns, að fengju kon-
ur aðgang að andlegum verkefn-
um, yrðu þær skilyrðislaust að
afsala sér móðurhlutverkinu.
Það eimir talsvert eftir af þess-
ari skoðun: Stúlkum er oft ráð-
lagt að fara ekki í langskóla-
nám, af því að þær muni senn
giftast og eignast börn. Platón
var uppi á árunum 427 til 347
fyrir Kristsburð.
Uppeldisáhrif hafa oft
úrslitaþýðingu
Þrátt fyrir ýmis lög, sem skv.
orðanna hljóðan gera engan
greinarmun á mönnum eftir kyn-
ferði, er reyndin önnur. Jafn-
staða kynjanna er í raun og veru
aðeins á fyrsta æviskeiði manns-
ins og við dauða hans: Meðferð
ungbarna er söm, hvort drengur
er eða stúlka, og jarðarfararsiðir
eru samir. Börn eru ekki komin
langt á legg, þegar farið er að
mismuna þeim: „Vertu ekki að
gráta út af þessu, eins og stelpa“,
er sagt við litla drenginn í fyrir-
litningartón, og við telpuna er
sagt: „Vertu ekki að príla, eins
og strákur". Þvílíkar uppeldis-
aðferðir eru sennilega margfalt
skaðsamlegri drengjum en stúlk-
um frá sjónarmiði geðheilsu.
Hve mörg slys, andleg og líkam-
leg, ætli megi rekja til kröfunn-
ar á hendur drengjum um hug-
rekki og hetjuskap?
Síðan kemur skólinn með mis-
munandi handavinnu, sem bein-
línis miðar að því að sannfæra
unglingana um það, að önnur
störf henti konum en köi'lum
(sjá Námsskrá fyrir nemendur á
fræðsluskyldualdri, bls. 53—60).
Hver áhrif þessi mismunur hef-
ur á starfsval og framhaldsmennt-
un unglinga, ætti að vera öllum
ljós. Stúlkurnar fara í „kvenna-
störf“ og piltarnir í „karlmanns-
störf“.
Menntun kvenna og störf
utan heimilis
Árið 1904 fengu konur fullan
aðgang að Menntaskólanum í
Reykjavík, og frá stofnun Há-
skóla íslands hafa þær átt þar
fullan rétt. Skv. lögum frá 1911
eiga konur „sama rétt eins og
karlar til að njóta kennslu og
ljúka fullnaðarprófi í öllum
menntastofnunum landsins". —
Til eru skólar, sem með lagabók-
staf meina karlmönnum aðgang.
Konur hafa að þessu leyti meiri
rétt að lögum en karlar, og í
stað þess að leiðrétta þetta, eru
fram komnar óskir um að stofna
menntaskóla, sem konur einar
fái aðgang að.
Þótt konur eigi rétt á inn-
göngu í alla skóla landsins, er
það í mörgum tilfellum aðeins
pappú'sréttur. Meistarar í ýms-
um iðngreinum vilja ógjarnan
hleypa konum inn í sína stétt.
Stúlkur komast því yfirleitt ekki
í iðnskólana nema í „kvenlegu"
iðnirnar. Pyrir uppeldisáhrif
sækja stúlkurnar að vísu flestar
í þær greinar, og sömuleiðis
vegna uppeldisáhrifa geta meist-
ararnir og stéttarbræður þeirra
ekki unnt konum betur launuðu
iðnirnar.
Meginþorri kvenna í atvinnu-
lífinu er í láglaunastörfum, en
þau virðast ætluð konum, þrátt
fyrir launajafnaðarlögin og lög
um réttindi og skyldur og skyld-
ur starfsmanna ríkisins, sem
kveða á um jafnan rétt til launa
og hækkunar í starfi.
Hvar sem litið er, er sama sag-
an, og eins þar sem starfsmennt-
un er söm fyrir konur og karla,
eins og t. d. í verzlunarstéttinni.
Þar mun ástandið vera einna
verst. Enda var í samningum
verzlunarmanna, áður en launa-
jafnaðarlögin fengu fullt gildi,
skráð með skýrum stöfum í yfir-
skrift 4 eða 5 efstu launaflokk-
anna, að þeir væru fyrir karla.
Rifbeinið hans Adams og
iðnbyltingin
Það á sér djúpar rætur, að
konur afla sér ekki eins stað-
góðrar menntunar og karlar. Or-
sakakeðjan er löng og margslung-
in: Rifbeinið hans Adams og
þörf hans fyrir meðhjálp, kenn-
ingar Aristótelesar um konuna
sem ófullgerðan karlmann, fyrir-
litning spekinga fornaldar á
hjónabandi og konum, sálsýkis-
legur hugsanagangur einlífis-
munka og kirkjufeðra, skoðanir
Luthers á notagildi og heimsku
kvenna og síðast en ekki sízt
iðnbyltingin, sem hóf innreið
sína í Evrópu á 18. og 19. öld.
Iðnbyltingin gjörbreytti hög-
um giftra kvenna almennt. Hús-
móðirin var ein vinnandi fólks
heima, þegar iðnaðurinn kallaði
húsbóndann og hitt fólkið út í
verksmiðjurnar. Einhver varð að
gæta barnanna og elda matinn.
Þá var gott að geta gripið til
lofsins um móðurástina, sem öllu
vill fórna. Móðurástin var hafin
í æðra veldi. Faðirinn vann fjarri
heimili sínu langan vinnudag og
hafði umráð yfir vendinum á
kvöldin.
Áður en iðnbyltingin hófst,
framleiddi húsmóðirin ýmis selj-
anleg verðmæti og hafði umsjón
með vinnu fjölskyldunnar. Hér á
landi var húsmóðirin verkstjóri
innivið (fram á 14. öld voru
heimagerð vaðmál aðalútflutning-
ur íslendinga og á 17., 18. og 19.
öld var prjónles flutt út í mjög
ríkum mæli), en húsbóndinn var
verkstjóri útivið.
Nú eru flestar húsmæður að-
eins vinnukonur sjálfra sín.
Heimilisiðnaður og verkstjórn er
ekki lengur í þeirra verkahring.
Mömmur, ömmur og
krabbamein
Meiri hluti giftra kvenna hér
á landi nú eru tekjulausar eða
tekjulitlar húsmæður. Tiltölu-
lega lítill hluti þeirra er í fullu
atvinnustarfi. Sá hópur giftra
kvenna, sem hefur einhver störf
26