Samvinnan - 01.08.1969, Qupperneq 36
— Heldurðu ég viti allt eða hvað? Hann
bara setur hana þarna.
— Svona eins og þegar tannlæknar setja
falskar tennur í fólk?
— Já, það hugsa ég.
— Þú verður áreiðanlega að vita, hvar
sálin í þér er, ef þú ætlar að verða trúboði.
Pá trúboðar mikið kaup?
— Það veit és ekki...
— Iss, ég vil miklu heldur vera eins og
dýrlingurinn. Sástu hvað hann sló bófana
flott kalda í gærkvöldi. Fimm á móti einum
og rotaði þá alla.
— Nei, ég mátti það ekki.
— Af hverju ekki?
— Mamma vildi það ekki, hún er svo
vond út í sjónvarpið.
— Ætlar pabbi þinn ekki að kaupa sjón-
varp bráðum? Pabbi minn keypti sjónvarp
um leið og það kom.
— Pabbi vill það alveg. Hann ætlar að
gera það bráðum, það er bara mamma ...
Mamma, hún vill nefnilega ekki fá sjón-
varp, og í gærkvöldi...
— Hvað þá?
— Þau fóru að rífast. Þau eru alltaf að
rífast núna.
— Af hverju eru þau að rífast?
— Það veit ég ekki. Þau eru bara alltaf
reið. Pabbi fór að tala um þetta, þegar ég
bað um að fá að fara til ömmu, og hann
sagði, að þetta væri nú ekki hægt lengur.
þau yrðu að fara að fá sér sjónvarp. Af því
það eru nefnilega allir kallarnir á skrif-
stofunni með sjónvarp nema hann — og
það er ekkert skemmtilegt fyrir hann, þeg-
ar hinir eru með það — finnst þér það?
— Nei, heyrðu, kannski getur pabbi lán-
að honum fvrir því, ha?
— Þau eiga alveg pening fyrir því, það
er bara mamma . .. hún vill það ekki. Hún
sagði, að ef hann kæmi með þennan bölv-
aðan imbakassa — hún kallar sjónvarpið
alltaf imbakassa — inn á heimilið, þá gæti
hann náð í nýja konu um leið.
— Af hverju vildi hún fá nýja konu?
— Nei, hún meinti það ekki — og svo
rifust þau og rifust...
— Um hvað?
— Um allt — uppþvottavélina — mubl-
urnar — íbúðina — allt.
— Hva, er mamma þín vitlaus? Vill hún
þetta kannski ekki heldur?
— Hún er ekkert vitlaus — hún bara
vill ekki sjónvarp, af því ... af því... af
því bara hún vill það ekki. Heldurðu
mamma mín sé eitthvað vitlaus? Hún er
bara fullorðin. Allt fullorðið fólk er svona
.. . Ég vildi bara, að hún og pabbi hættu a*
vera a'ltaf svona reið. Ég sá svo eftir bví
að biðja um að fara til ömmu að horfn á
sjónvarnið. Þau fara alltaf að rífast, þeg-
ar . . . Heyrðu, veiztu hvað mamma sagði?
— Nei, hvað?
— Hún sagði við værum ekki til.
— Við?
— Já. við — íslendingar. Við værum
bara apakettir, sem gerðum allt eins og út-
lendingar...
— Já, en þeir eru líka miklu sniðugri en
við. Búa til eldflaugar og kafbáta og allt.
Heyrðu. kannski vill hún heldur amríska
sjónvarpið?
— Ertu vitlaus! Hún er langverst út í
það. Hún vill ekki einu sinni herinn.
36
— Vill hún ekki herinn? En hver á þá
að slást fyrir okkur ef það verður stríð?
— Það veit ég ekki. Ég botna ekkert í
því, af hverju hún er svona vond út í her-
inn og sjónvarpið — pabbi var líka alveg
öskuvondur og sagði, að hún vildi alltaf
öllu ráða — veiztu hann sagði að hún væri
bara bölv ... bara kommúnisti.
— Er mamma þín kommúnisti?
— Hún er bara mamma mín! Heldurðu
mamma mín sé bölv... kommúnisti? Hún
er bara mamma mín! Og svo fóru þau að
tala um öskuhauga ...
— Öskuhauga?
— Já, ég skildi það nú ekki almennilega
— en mamma fór að tala um einhverja
kalla, sem gengju í öskuhaugana hjá Kön-
unum á Vellinum. En svo lokuðu víst Kan-
arnir öskuhaugunum og vildu ekki leyfa
köllunum að taka draslið úr þeim, og þá
urðu kallarnir svo svakalega vondir og vildu
að Kanarnir opnuðu öskuhaugana aftur —
mér finnst nú líka, að Kanarnir hefðu ekk-
ert þurft að vera að loka þeim, þetta var
hvort sem er drasl, sem þeir voru búnir að
kasta. — En ég get nú ekki skilið, hvers
vegna þau fóru allt í einu að tala um ösku-
haugana hjá Könunum, þegar þau voru að
tala um sjónvarpið.
— Nei, ég skil það nú ekki heldur —
fullorðið fólk er svo vitlaust — hættu þau
svo að rífast?
— Nei, pabbi varð bara ennþá reiðari og
sagði, að þetta væri allt annað mál — og
það finnst mér líka — en mamma mín er
samt enginn kommúnisti! Og þá sagði
mamma, að þessir kallar — þú veizt í ösku-
haugunum — væru áreiðanlega frændur
pabba og þeirra, sem hefðu kysst á lapp-
irnar á Dönunum, þegar þeir voru að
sparka í þá.
— Ha ha, kysst á lappirnar á þeim —
hver heldurðu kyssi á lappirnar á þeim, sem
sparkar í mann? Er það nú! Heyrðu, hvaða
Dönum?
— Nú Dönunum — þeir réðu einu sinni
yfir okkur.