Samvinnan - 01.08.1969, Qupperneq 61
Jarðarberjadrykkur.
2 dl mjólk
y2 dl jaröarberjasaft eða 100 g jarðarber
2 tsk sykur
þeyttur rjómi
Þeytið mjólk og jarðarberjasaft saman. Ef notuð eru ný jarðarber
eru þau fyrst látin bíða nokkra stund með sykrinum. Frosin eða
ný jarðarber eru einnig mjög góð í drykkinn.
Ein til tvær tsk af rjóma eru látnar ofaná safann í glösunum og
jarðarber, séu þau notuð.
Sólberjadrykkur.
1 msk vanilluís
1 dl sólberjasaft
2 dl mjólk
Þeytið vanilluísinn með sólberjasaftinni og mjólkinni. í stað mjólkur
er gott að hafa súrmjólk og er þá bætt í sykri sé þess þörf.
Súkkulaðidrykkur.
Hellið V3 af súkkulaði, kakói eða kókómalti í hvert glas.
Látið 2—3 skeiðar af vanilluís yfir.
Skreytið með rjómatoppi og rifnu súkkulaði ef vill.
ískaffi.
Hálffyllið glösin með köldu eða volgu sterku kaffi. Látið 2—3 msk
af vanilluís yfir, síðan rjómatopp og rifið súkkulaði.
Mokkadrykkur.
1 msk vanilluis
2 tsk neskaffi
1 tsk sykur
1 msk kókósmjöl
2 dl mjólk
Þeytið eða blandið allt saman.
íste.
Búið til sterkt te og kælið. Hellið hálf glösin af teinu og látið
ísmola saman við (vatnsís). Látið sítrónusneið í hvert glas og
berið sykur með.
Súkkulaðidrykkur, ískaffi og íste er oft bragðbætt með rommi eða
konjaki.
Hrá grænmetissalöt.
Allir sem eiga þess kost að hafa eigin matjurtagarð, skapa sjálfum
sér ánægjulega tómstundavinnu og heimili sínu fjölbreytta, verð-
mæta og litríka fæðu.
Gleymum samt ekki að á vorin og fyrri hluta sumars eru villtu
jurtirnar svo sem hvönn, súra, smári, arfi, njóli, fjallagrös, skarfa-
kál og söl þær grænmetistegundir sem auðvelt er að afla sér til
matar.
Verðmætast er grænmetið vegna C-vítamíninnihalds, en einnig
inniheldur það A- og B-vítamín og steinefnin kalk og járn. Það
gefur tiltölulega fáar hitaeiningar (inniheldur 70—95% vatn) en
seður og hefur góð áhrif á meltinguna.
Vítamíninnihald í grænmeti minnkar við geymslu og þurrkun, en
vítamínauðugast er það grænmeti sem er litsterkast eins og t. d.
gulrætur, grænkál, spínat, salat og tómatar. Bragðefnin eru ilm-
olíur sem gefa hverri grænmetistegund sinn sérstaka keim. Lítið
er af eggjahvítuefni í grænmeti nema í ertum og baunum.
Sjálfsagt er að neyta grænmetisins meðan það er nýtt en öruggasta
geymsluaðferðin á káltegundum og rótargrænmeti nema kartöílum
og gulrófum er hraðfrysting.
Blaðsaiat er ekki hægt að hraðfrysta og þarf því að neyta þess jafn-
óðum og það vex. Hér koma nokkrar tegundir af blaðsalatupp-
skriftum:
Athugið að þvo salatblöðin vel og klippa þau hvorki eða skera,
heldur rifa niður.
Raðið heilum salatblöðum í skál eða djúpt fat. Nokkuð af blöð-
unum er rifið niður ef vill. Bragðbætt með t. d.
1. Einni til tveim gulrótum, rúsínum, sítrónusafa og hunangi. Hreinsið
gulræturnar og rífið niður. Blandið síðan varlega saman við niður-
rifin salatblöð og bragðbætið með rúsinum, sítrónusaía og hunangi.
2. Tveim til þrem tómötum sem skornir eru i báta eða sneiðum af
grænum pipar, gúrkusneiðum, klipptri steinselju eða karsa. Biandið
siðan saman 1 msk af sítrónusafa eða borðediki, 3 msk af matar-
olíu, salti, pipar og 1 tsk af púðursykri. Látið grænmetið með sal-
atinu í skálina og hellið leginum yfir.
3. Nýjum eða frosnum ribsberjum og ostbitum.
4. Appelsínu- og eplabitum, ávaxtasafa og hunangi eða púðursykri.
5. Skyri sem hrært er með mjólk eða vatni, sykri og rúsínum.
6. Þeyttum rjóma, bláberjum eða niðurskornum vínberjum og sykri.
7. Tómatsneiðum og laukhringjum.
Amerískt salat.
1 salathöfuð
4 sneiðar ananas
150 g rœkjur
1 grœnn pipar (spánskur piparj
1 msk saxaður graslaukur eða blaðlaukur
Ostasósa.
1 góðostur (smurostur)
2 msk matarolía
sítrónusafi, salt og paprika
Raðið þvegnum saltablöðunum í skál eða fat og hellið ostasósunni
yfir. (Osturinn er hrærður með matarolíu og kryddi, rjóma bætt í
ef vill). Piparinn er þveginn og skorinn niður í sneiðar sem raðað
er yfir salatið ásamt hálfum ananashringjum og rækjum. Gras-
lauknum stráð yfir. Borið fram vel kalt, bezt er að láta fatið á
ísblokk eða ílát með ísteningum í.
Hvítkálssalat
150 g hvítkál
1—2 epli
100 g olíusósa
1—2 dl þeyttur rjómi
Rífið hvítkálið á grófu rifjárni eða skerið í mjóar ræmur. Skerið
eplið í smáa bita. Kryddið olíusósuna, blandið rjómanum saman við
og síðan eplunum og hvítkálinu. Látið salatið í skál og skreytið með
salatblöðum og eplabátum. Borið fram með steiktu kjöti.
Fylltir tómatar.
Tómata má fylla með margskonar jafningum og salötum. Þvoið
tómatana og skerið sneiðarþykkt af þeim og holið innan með skeið,
fyllið síðan með grænmetisjafningi, t. d. sveppa-, grænbauna- eða
káljafningi.
Á sama hátt má fylla þá með grænmeti í olíusósu (ítölsku salati),
piparrótarrjóma eða salati sem búið er til úr olíusósu (mayonnaise),
því sem skorið er innan úr tómötuunm, söxuðum pikles og söx-
uðum eplum.
Tómatarnir eru ýmist bornir fram með kjötréttum eða sem smá-
réttur, t. d. á kvöldborðið. Einnig er gott að skera kross í tómatana,
stinga ostbita í hvern tómat og baka í ofni. Borið fram með steiktum
kjötréttum.
Keisaratómatar.
Tómatarnir eru fylltir með grænbaunajafningi eða piparrótarsalati
og muldum kartöfluflögum stráð yfir (frönskum kartöfium).
Fatið er skreytt með steinselju eða salatblöðum, þegar það er
fyrir hendi.