Samvinnan - 01.02.1972, Page 9
1
HangíKiöt er
hátíðamatur
Fjölskyldan
byrjar ánœgð hátíðina
með hangikjöti frá okkur
REYKHÚS (M
o6l
iÐo
Já, þarna var það nú heilagur
andi, og mér dettur ekki i hug
að gera lítið úr honum. En hafa
prestarnir hann við altaris-
hornið, eða þá hugljómun, sem
sumir telja að trúin sé? 'Eða
er trúin ruglingslegt ofstæki,
sem þá, ef til vill, er hægt að
berja inn í unglingana? Og ef
svo er, þá er náttúrlega gott að
ná unglingunum á því skeiði,
þegar hugurinn er auðmótað-
astur. Og biskupinn segir:
„Vandræðin eru bara hagur
fyrir kirkjuna." Já. Neyð er
engin, kaupmaður! Vandræði
og neyð er líklega í sama flokki
og „blessað stríðið." Og biskup-
inn spyr: „Hafið þlð ekki lesið
nýlega Jóhannes 17?“ í þeim
kafla, sem annars er víst að
dómi sumra viturra manna
mjög merkilegur, kannski eitt
það merkilegasta í Biblíunni,
eru þessi orð: „Ég bið ekki fyrir
heiminum." Ég held að sumir
hafi túlkað þessi orð og þessa
grein — kapítula — á þann
veg, að einungls þeir, sem trúa
á Jesúm sem frelsara, verði
hólpnir eða lifi. Hinir annað
hvort þurrkast út eöa fara eft-
ir dómsdaginn, ja, segjum
norður og niður. Og þá þarf
áreiðanlega meira pláss þar
heldur en á stað þeirra útvöldu.
En það er nú sennilega þeirra
höfuðverkur þarna í neðri
byggðunum, fyrst hinir skipta
sér ekki af. Páfinn hefur þó
hreinsunareldinn fyrir suma,
en ekki veit ég hvort sálumess-
urnar ná lengra niður.
Það er þó tvennt, sem mér
finnst hafa vantað í þessar um-
ræður, og það voru Passíusálm-
arnir og svo náttúrlega sjálfur
hornsteinn byggingarinnar,
Horngrýtið. Eða er það kannski
oltið úr hleðslunni? Passíu-
sálmamir eru lesnir á hverjum
vetri í útvarpinu — náttúrlega
af tilvöldum mönnum. Þar er
þó minnzt á Horngrýtið og eig-
inlega ekki með neinni tæpi-
tungu. Þeir voru líka ortir á
sjálfri galdrabrennuöldinni, og
séra Hallgrímur sagði meðal -
annars:
„Jesús vill að þín kenning klár
kröftug sé, hrein og opinskár,
lik hvellum lúðurhljómi.
Launsmjaðran öll og hræsnin
hál
hindrar Guðs dýrð og villir sál;
straffast með ströngum dómi.“
mokarinn
mikli frá
BM VOLVO
Stór hjól; drif á tveim eða fjórum
hjólum; mismunadrifslás; 80 ha.
dieselvél með beinni innspýtingu;
rúmgott og hljóðeinangrað örygg-
ishús með Volvosæti; vökvastýring;
liðlegur og kraftmikill í ámokstri;
lyftir, staflar, dregur, ýtir.
Allar upplýsingar um LM 621, LM
641, og aðrar ámokstursvélar frá
BM Volvo eru ávallt til reiðu.
ámokstursvél
LM 641-621
5