Samvinnan - 01.02.1972, Page 30
einkamálum nemenda utan
skólans. Kennari getur gagn-
rýnt nemendur einhliða; hann
hefur óskorað málfrelsi, en
nemendur ekki. Hann getur
yfirheyrt nemendur, auðmýkt
þá og verið hundleiðinlegur.
Hann ræður framferði og
þroska þrælanna, en þeir hafa
aðeins eitt leiðarljós: Hlýðni.
Þetta er ófögur mynd, en
sönn.
Hver eru réttindi nemenda
gagnvart kennurum og skóla-
stjórn?
Hver verður að rétta upp
hönd og biðja „kurteislega“?
HúsnæSið
Nemendum er raðað i hópa,
stundum eftir vafasamri
greindarvísitölu.
Hver hópur fær til umráða
einn ferhyrndan steypuklefa
með hörðum stólum og töflu
ásamt kennarapúlti. Nokkrir
salir eru sameiginlegir hópun-
um.
Oft mega nemendur skreyta
stofuna sína svolítið með
myndum eða efni úr námsefn-
inu. Yfirleitt eru þó húsakynni
fremur óvistleg ungu fólki,
iburður áberandi í nýrri skóla-
húsum. Nemendur ráða engu
um innréttingu vinnustaðar
síns og eru vændir um van-
þakklæti þegar þeir gagnrýna
námsaðstöðu eða kennsluhætti.
Svo situr þetta fólk í óum-
breytanlegri grámálaðri stof-
unni 4—6 klst. á dag, snýr bök-
um hvert af öðru og er í óða
önn að hlýða skipunum og
láta undan verunni í hásætinu
og fræðsluyfirvöldum.
Námsefni
Námsefni er að finna í bók-
um, sumum áratuga gömlum.
Þvi verða menn að kunna
skil á til prófa, og það er ákveð-
ið án samráðs við nemendur,
en þeir eru hins vegar neyddir
til að læra það, hvort sem
þeim líkar betur eða verr. Ef
ekki, koma til óbeinar refsing-
ar, svo sem eftirsetur, klögur til
foreldra og lágar prófseinkunn-
ir. Námsefnið er ákaflega
brotakennt og minnst af því
varðar mannleg samskipti eða
þroskar vitræna hæfileika
nemandans. Allra sízt verður
hann gagnrýninn á umhverfi
sitt.
Námsefnið er staðlað og
mælikvarði þjóðfélagsins á
þroska og þekkingu, þ. e. ótelj-
andi skyndipróf, miðsvetrar-
próf, vorpróf og lokapróf eru
stöðluð, þannig að allir nem-
endur eru settir undir einn
hatt. Fyrstu skólaárin er náms-
efni lestur, skrift og einfaldur
reikningur, ásamt föndri. Áður
fyrr leysti fólk úr 500 samlagn-
ingardæmum, las meiningar-
lausar lestrarbækur, sem oft
höfðu mjög vafasaman boðskap
að flytja. Þá hét föndur átt-
hagafræði eða leiktímar. Eftir
nokkurra ára bælingu, skipanir
og stundum allt að því heraga,
þóttu börnin hæf til að læra
náttúrufræði, landafræði, sögu,
biblíufræði o. s. frv. Slíkt efni
var þurrt staðreyndastagl, og
fólk náði töluverðri leikni í ut-
anbókarlærdómi.
Kerfið síaði miskunnarlaust
úr alla „tossana" og alla þá
„miður hæfu“ og „óþekku“.
Stundum var reynt að gera
„kennsluna“ lifandi með sýni-
kennslu og föndurvinnu. Fólk
vann tímabækur, sem dæmdar
voru upp á einn aukastaf. Það
lærði sömu þuluna mörgum
sinnum á ný, þegar skólaveran
lengdist. í sögu t. d. las fólk
um sömu atburði í 12 ára bekk,
í 2. bekk gagnfræðaskóla og
landsprófi; aðeins var farið ná-
kvæmar í sakirnar í hvert
skipti.
Allt þetta hefur lítið breytzt.
Val námsefnis er nákvæm-
ara, fólk byrjar fyrr á „erfið-
um“ greinum, málakennsla
hefur færzt neðar í aldursstig-
ann og mengjafræði er komin
að nokkru leyti í staðinn fyrir
plús- og mínusstærðfræðina
með þríliðunni góðu. Kerfið er
það sama og áður.
Nemendur eru enn dæmdir
ófærir til þess að taka þátt í
vali námsefnis, svo ekki sé
minnzt á stjórnun skólans.
Kennarafundir eru enn lokað-
ir; drengir læra smíðar og
stúlkur matreiðslu.
Staglið tröllríður fólki eftir
sem áður.
Kennsla
Aðalkennsluformið er yfir-
heyrsla. Fólk er „tekið upp“.
Samkeppni er aflvakinn fyrir
námsárangri.
Nemendum er settur fyrir
ákveðinn blaðsíðnafjöldi í
nokkrum bókum á hverjum
degi, nokkur reiknidæmi eða
forskriftarblöð. Eina skylda
kennarans gagnvart nemanda
er að yfirfara námsefnið með
honum fyrir próf.
Sumir kennarar hafa mikið
dálæti á föndri og telja að með
því síist námsefnið fyrr inn til
prófa. Skyndipróf eru höfð „til
að halda fólki við efnið“ og
sýna því, hver staða þess er
og kunnátta i námsefni. Einn
kennari eða fámenn nefnd býr
til próf handa hundruðum og
þúsundum nemenda.
Kennarinn svarar spurning-
um þegar hann er spurður;
hann talar oftast og prédikar
siði og hegðunarreglur, en
nemendur þegja, nema þegar
þeir eru spurðir eða hafa leyfi
til þess að tala. Hann vegur og
metur nemendur, ekki aðeins
kunnáttu heldur einnig fram-
komu og verðlaunar jafnvel þá
sem honum eru að skapi.
Kannski er sungið einu sinni,
farið á eitt jólaball, einu sinni
í Þjóðminjasafnið eða horft á
myndir frá Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna. Hver dagur er
öðrum líkur og alltaf eru næg
heimaverkefni, líka um helgar.
Öll börn eru sammála um að
kennslan sé yfirleitt leiðinleg
og skólinn allur „alveg svaka-
lega ógeðslegur“.
En hvers virði er gagnrýni
nemenda?
í fáum orðum sagt
Skólinn er leiðinleg en á-
hrifamikil uppeldisvél; þar
kemur valdið allt að ofan.
Námsefni er yfirborðskennt og
ekki fallið til alhliða þroskun-
ar. Nemanda er ekki hjálpað til
að verða gagnrýninn á um-
hverfið og sjálfstæður í at-
höfnum og skoðunum.
Honum er sýnd takmarkalítil
lítilsvirðing.
Menntakerfið er verk þjóð-
félagsins, mótast af skoðunum
þegnanna og er til trausts og
viðhalds núverandi valdastétt.
Um úrlausnir
Það er ekki hægt að breyta
núverandi fræðsluskipulagi
nema því aðeins að fólk komi
auga á það þaulhugsaða en
óréttláta kerfi og viðurkenni
þau mistök, sem valda því, að
skólinn gegnir alls ekki eigin-
legu hlutverki sínu. Það er erf-
itt að loka aígjörlega augunum
fyrir göllum skólanna, en það
er algeng leið til þess að leiða
vandamálin hjá sér. Öruggt er
að almenningur veit lítið um
það mikla frumvarp til laga í
sambandi við breytingar á
skyldunámi, grunnskólafrum-
varpið. Það er ekki venja að
nægilega sé rætt um mikilvæg
málefni á íslandi.
Grunnskólafrumvarpið verð-
ur ekki tekið til meðferðar hér,
en taka má fram að breyting-
arnar, sem verða með frum-
varpinu, ef lög verða, yrðu að-
allega á stjórnun skólakerfisins
og námsaðstöðu. Hvort tveggja
jákvæðar breytingar. Nægir í
því sambandi að nefna, hve
hörmulega hefur til tekizt með
skólamál dreifbýlisins, þar sem
sums staðar hefur jafnvel
nokkuð vantað upp á að
fræðsluskyldunni sé sinnt.
Hvað um það, við verðum
að bylta öllu skólakerfinu (og
meiru til).
Fyrir utan jöfnun námsað-
stöðu og tryggingu fyrir fullu
námi þarf að endurskipuleggja
26