Samvinnan - 01.02.1972, Qupperneq 41

Samvinnan - 01.02.1972, Qupperneq 41
Jóhanna Kristjónsdóttir: Börn einstæðra foreldra Á íslandi eru einstæðir for- eldrar með forræði barna sinna rösklega fjögur þúsund; þar af eru karlmenn tæplega þrjú hundruð. Á framfæri þessara foreldra eru á sjöunda þúsund börn innan sextán ára aldurs. Það er ekki lítil prósentutala af heildarbarnafjölda, þegar að er gáð. Því þarf engan að undra, þótt einstæðir foreldrar tækju loks höndum saman fyrir rösk- um tveimur árum og stofnuðu félag með sér. Það var raunar vonum seinna að þeir vöknuðu til vitundar um samtakamátt sinn, en engu að síður kom fé- lagsstofnunin á mjög heppileg- um tíma; umræður um stöðu einstaklingsins og sérstaklega konunnar í þjóðfélaginu höfðu þá verið ofarlega á baugi. Þjóð- félagið okkar er f jölskylduþjóð- félag, byggt upp af einingunum faðir-móðir-börn. Annað er ó- eðlilegt, til slíkrar fjölskyldu var naumt tillit tekið. Engu að síður eru fjögur þúsund heimili hérlendis þannig samansett að þar er aðeins eitt foreldri plús börnin. Þegar félagið var stofnað var sagt að tilgangur þess væri „að bæta uppeldisaðstöðu þeirra barna, sem ekki njóta þess að vera samvistum við báða for- eldra sína — og tryggja að hag- ur þeirra (þ. e. barnanna) verði ekki fyrir borð borinn, bæði gagnvart hinu opinbera og öðr- um aðilum“. Þegar var hafizt handa, og mun ég gera í stuttu máli grein fyrir þeim málum, sem félagið tók á stefnuskrá sína þegar í upphafi, svo og öðrum þeim, sem siðan hafa komið til. Hækkun meðlags Við félagsstofnunina var meðlag með barni um 1500 krónur á mánuði, þ. e. fram- færslukostnaður barns var met- inn á krónur 3.000, þar sem foreldrar skulu leggja fram jafnan skerf til framfærslu barna sinna. Aftur á móti voru um þær sömu mundir greiddar sjö þúsund krónur á mánuði með barni, sem komið var í einkavistun, t. d. af félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar. Því lá í augum uppi, að þarna var mikið ósamræmi. Einhverjir voru beittir órétti, að líkindum framfærendur barnanna, eða hvað? Lagðar voru fram óskir um hækkun meðlags og barnalíf- eyris, þannig að greiðslan næði fullum helmingi af eðlileg- um framfærslukostnaði barns. Reynt var og að hefja áróður fyrir því að vekja ógifta og frá- skilda feður til ábyrgðar gagn- vart börnum sínum, og bent á hversu lágt margir þeir karl- menn legðust, sem teldu eftir sér greinda hungurlús til bama sinna. Hvatt var óspart til að feður gerðust áhrifameiri um uppeldi barna sinna, menntun o. þ. u. 1. enda þótt þeir væru ekki lengur samvistum við börnin að staðaldri. Barnalífeyrir og meðlag hef- ur síðan verið hækkað til stórra muna, enda þótt deildar mein- ingar séu um hvort upphæðin hafi náð því að vera helmingur núverandi framfærslukostnað- ar barns. Upphæðin losar nú þrjú þúsund krónur og verður það alténd að teljast mikil hækkun. Farið var fram á, að barna- lífeyrir og meðlag yrði greitt til átján ára aldurs í stað sextán ára. Næsta auðvelt var að rökstyðja þessa frómu ósk, þar sem nánast er óhugsandi að unglingur hafi lokið námi og hafið þátttöku í atvinnulif- inu sextán ára gamall. Venju- lega eru unglingar þá rétt að hefja nám og fráleitt með öllu að hugsa sér, að það foreldrið, sem forræðið hefði, ætti eitt að bera byrðarnar af námskostn- aði unglingsins. Að vísu hefði félagið óskað eftir að sett yrði í lög að foreldrar yrðu skyld- aðir til að hlaupa undir bagga, unz námi væri lokið, a. m. k. stúdentsprófi eða einhverju hliðstæðu námi. Ekki var farið inn á þá braut, enda kom í ljós að þetta atriði áttu margir ákaflega erfitt með að sætta sig við, og róðurinn var þungur, þegar félagið reyndi að koma þessu fram. Sú breyting hefur þó orðið eftir japl og jaml og fuður, að lengingin varð eitt ár. Að vísu þykir mér ekki annað koma til greina en að frekari lenging verði gerð, og það fyrr en síðar. Mér finnst það sann- kallað réttlætismál þess for- eldris, sem ekki hefur barnið (venjulega faðirinn), að það fái að koma barni sínu til hjálpar við nám, svo fremi fjáihagsaðstæður leyfi það. Ekkjumenn fá barnalífeyri Óskað var eftir að ekkju- menn fengju greiddan barna- lífeyri, og ráku margir upp stór augu, þegar félagið tók að hafa uppi raddir um slíkt, enda var þar svo hróplegt ranglæti að undirtektir urðu samstundis á eina lund. í ljós kom sem sé að ekkjumaður, sem missti eigin- konu sína fékk því aðeins greiddan barnalifeyri, að hann ætti þ~jú börn — og þá sem svaraði aðeins með einu barni. Auk þess varð hann að færa rök fyrir því, að andlát eigin- konunnar hans hefði valdið „tilfinnanlegri röskun á stöðu hans og högum.“ Við síðustu endurskoðun tryggingarlög- gjafarinnar var þessu breytt, og sitja ekkjumenn nú við sama borð og ekkjur hvað þetta snertir. Þeir hafa nú einnig fengið rétt til þeirra bóta sem ekkjur njóta við missi maka í eitt ár. Er það vel. Skattamál Skattamálin voru þá ekki síður mál, sem gersamlega höfðu verið afrækt. Lá ekki ljóst fyrir, að það heimili hlýtur að vera verr á vegi statt þar sem framfærandi er aðeins einn og verður auk þess að inna af hendi uppeldis- og heimilis- störf? Giftar konur sem vinna úti mega eins og alkunna er fá helming tekna frádreginn frá tekjuskatti. Komi til þess að „fyiirvinnan" hverfi, er konan síðan skattlögð sem einstakl- ingur, og ekki nóg með það, hún fær aðeins hálfan frádrátt fyrir hvert barn. Það verður að segjast eins og er, að skatta- málin hafa orðið einna erfiðust viðureignar og tiltölulega lítið þokazt þar til betri vegar. Vonir standa til, að einhver leiðrétt- ing verði nú gerð á, og hefur félagið farið fram á og rökstutt þá beiðni, að einstætt foreldri með börn á framfæri sínu fái hjónafrádrátt og sömuleiðis fullan frádrátt fyrir hvert barn. Strax varð ljóst að ekki væri raunhæft að setja fram kröfur um að einstæðir foreldrar mættu draga helming tekna frá skatti, sbr. giftar konur, en jafnan verið lögð áherzla á að leiðrétting fengist í formi hækkaðs heimilisfrádráttar, til- lit yrði tekið til kostnaðar við barnagæzlu o. fl. Skóladagheimili Ég hef nú rakið litillega þau mál, sem aðallega snúast um peninga að meira eða minna leyti. Persónulega þykir mér þó eitt mál öðrum þýðingarmeira, þegar rætt er um bætta aðstöðu barna einstæðra foreldra. Er þar komið að skóladagheimil- 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.