Samvinnan - 01.02.1972, Page 42

Samvinnan - 01.02.1972, Page 42
Margrét Margeirsdóttir: Áróður og sefjun unum. Ekki þarf að orðlengja, hversu mikið öryggi það barn býr við, sem þarf að meira eða minna leyti að sjá um sig sjálft meðan foreldri vinnur úti. Ell- egar reika á milli ættingja, eft- ir því hverjar aðstæður eru. Með skóladagheimilum eru vandamál þessara barna leyst á raunhæfan og ákaflega já- kvæðan hátt. Auk þess að börn- in njóta þess öryggis sem þeim er brýn nauðsyn á, fá þau leið- beiningar við heimanám, snæða máltíðir á réttum og regluleg- um tímum, en fá jafnframt frelsi til leikja og útivistar, þó innan þess ramma sem reglur heimilisins mæla fyrir um. Fé- lagið tók þegar upp viðræður við Reykjavíkurborg um þetta efni, eftir að það hafði verið stofnað. Undirtektir voru á all- an hátt ágætar, og með fyrir- greiðslu og velvilja margra að- ila tókst að koma fyrsta skóla- dagheimili á laggirnar fyrir rúmu ári. Ekki lét árangurinn lengi á sér standa; samdóma álit kennara þessara barna var að námsárangur þeirra hefði stórbatnað eftir að þau tóku að sækja skóladagheimilið, svo og hegðan þeirra og önnur líð- an. Reykjavíkurborg til verðugs lofs er Ijúft að geta þess, að hún lét ekki þar við sitja; ann- að skóladagheimili tók til starfa í borginni nú fyrir ára- mótin, og mun ætlunin að koma upp a. m. k. einu nýju heimili á ári, unz þau verða komin í öll skólahverfi borgar- innar. Þá hefur félagið einnig beitt sér fyrir að breytingar verði á opnunar- og lokunartíma leik- skóla og dagheimila i borginni, og hefur það borið nokkurn ár- angur. Óskað hefur verið eftir við borgina, að hún kæmi á fót fastri heimahj álp við heimili einstæðra foreldra, þegar veik- indi barna ber að höndum, svo að foreldri þurfi ekki að taka sér frí úr vinnu, þegar barnið er veikt. Það mál mun vera í athugun, og er þess að vænta að einnig þar verði ráðin bót á. Mér hefur í þessu rabbi orðið tíðrætt um helztu mál, sem Félag einstæðra foreldra hefur á stefnuskrá sinni og hefur átt hlut að því að þoka áleiðis. Það er augljóst að enda þótt kannski hafi hér verið oftar minnzt á foreldrið en barnið, hlýtur þó hverjum heilvita manni að skiljast, að hagsmun- ir barna og foreldra eru ekki fjarlægir, andstæðir pólar, heldur hljóta þeir og eiga að haldast í hendur og hvor að styðja annan. Jóhanna Kristjónsdóttir. Hugtakið áróður (propa- ganda) hefur í málvitund okk- ar hlotið fremur neikvæða merkingu. Þegar talað er um að reka áróður fyrir einhverju býður manni í grun, að ekki sé allt sannleikanum samkvæmt. Þessvegna hefur orðunum áróð- ur og hlutlausar upplýsingar verið stillt upp sem tveimur andstæðum. Áróður er ein öfl- ugasta baráttuaðferð, sem unnt er að beita til að ná valdi yfir hugarfari og móta skoðanir fólks. Áróður er vitaskuld hægt að reka bæði í jákvæðum og neikvæðum tilgangi. Menn greinir vissulega á um gildi áróðurs hverju sinni. Slík mis- munandi viðhorf hljóta að byggjast meira eða minna á gildismati samfélagsins á þeim markmiðum, sem áróðrinum er ætlað að ná. Hér mætti nefna sem dæmi áróður i þágu bættr- ar umferðarmenningar; trúlega myndu flestir vera sammála um, að markmiðið væri já- kvætt. Aftur á móti yrði senni- lega annað uppi á teningnum, ef rekinn væri áróður fyrir aukinni almennri áfengis- neyzlu; líklegt er að meirihluti fólks hefði neikvæða afstöðu til þesskonar áróðurs. Ekki verða þessum síðast- nefndu atriðum gerð nein við- hlítandi skil í þessu greinar- korni, heldur er ætlunin að varpa nokkru ljósi á fáein grundvallaratriði, sem sefjun og áróður hvíla á, hvert svo sem markmiðið er. Skýrgreining á hugtakinu á- róður hefur að vonum verið sett fram á fleiri en einn veg, eftir því i hvaða heimshlutum menn móta kenningar sínar. Merking orða hlýtur að helg- ast öðrum þræði af notagildi þeirra. Hér verður stuðzt við skýrgreiningu Lunners, en hann útskýrir orðið áróður á eftirfarandi hátt: 1. Áróður er markviss tilraun i þá átt að ná athyglinni og beina henni inn á ákveðna braut. 2. Hafa áhrif á hugarfar við- takanda þannig að hann til- einki sér skoðanir fyrir- stöðulaust, án gagnrýni, eða knýja hann til að skipta um skoðun. 3. Tilgangurinn með þessu tvennu er að fá móttakanda til að haga gerðum sínum í samræmi við boðskap áróð- ursins. Áróður og sefjun eru tvö ná- skyld hugtök. Menn láta sefjast af markvissum áróðri. Sefjun er viðfangsefni félagssálfræð- innar, en samkvæmt skýrgrein- ingum hennar þýðir sefjun, að við ákveðnar aðstæður varpi fólk frá sér skoðunum sínum og gangist viljalaust inn á þau sjónarmið sem haldið er að því. Það er með öðrum orðum ekki rétt að líta á sefjun sem áskap- að afl eða þróun í sálarlífi ein- staklingsins; sefjun á sér vart stað nema fyrir tilverknað ut- anaðkomandi áhrifa. Fræðimenn í félags- og sál- vísindum hafa gert fjölda rannsókna i því skyni að kom- ast að niðurstöðu um skilyrði til sefjunar svo og hvaða skap- gerðareiginleikum þeir eru gæddir, sem ánetjast fyrir- stöðuminnst skoðunum ann- arra. Áhrifavald meirihlutans Bandaríski sálfræðingurinn S. Asch er þekktur fyrir rann- sóknir sínar á þessu sviði og skal hér tilfært eitt dæmi. Til- raun hans fólst í því að átta manna hópur skyldi meta stærð ólikra hluta. Öllum í hópnum að einum undanskild- um voru gefin ákveðin fyrir- mæli um, hvernig þeir ættu að haga sér. Fyrst áttu þeir að meta hlutina samkvæmt stærð þeirra, en síðan skyldu þessir sjö breyta áliti sínu og halda fram alröngum skoðunum; höf- uðatriðið var að þeir væru allir sammála. Við tilraunina kom í ljós að samstaða meirihlutans gagnvart þeim áttunda hafði þau áhrif, að hann féllst á nið- urstöður meirihlutans að lok- um, enda þótt hann hefði kom- izt að hárréttum niðurstöðum i upphafi. Þegar þessi tilraun var endurtekin í fleiri hópum, kom í ljós að af 217 svörum 30 einstaklinga reyndist liðlega þriðjungurinn rangur, þ. e. a. s. í samræmi við niðurstöður meirihlutans. Ytri aðstæður í umhverfi manna geta leitt til hugar- ástands sem er einkar móttæki- legt fyrir sefjun. í því sam- bandi má benda á yfirvofandi hættu sökum náttúruhamfara eða styrjaldar eða annað sem ógnar öryggi og vekur ótta. Börn móttækileg Vissir hópar í samfélaginu eru taldir móttækilegri fyrir sefjun en aðrir. Einn þessara hópa eru börn. Rannsóknir hafa leitt í Ijós að börn hafa tilhneigingu til að taka gagn- rýnislaust við ýmiskonar áróðri sem hafður er í frammi. Stafar þetta skiljanlega af lítt þrosk- aðri dómgreind og reynsluleysi barna; þau hafa ekki öðlazt grundvöll til að vega og meta. Auglýsingaáróður nútímans hagnýtir sér þessa staðreynd í ríkum mæli víða um heim. Til fróðleiks má geta þess hér, að í brezkum sjónvarpsauglýsing- um er bannað með lögum að auglýsa vörur, sem álitið er, að hafi áhrif á börn þannig að þau relli og nauði í foreldrum sínum og valdi þeim óþarfa uppeldiserfiðleikum. Er hér einkum átt við auglýsingar á sælgæti og leikföngum. Full- orðið fólk með takmarkaða sjálfsvitund, fólk sem er haldið vanmáttarkennd, eða fólk sem býr við félagslegt öryggisleysi er allajafna móttækilegra fyrir sjónarmiðum annarra. Fólk með þessa eiginleika á erfitt með að mynda sér sjálfstæðar skoðanir og þorir ekki að láta þær i ljós af hræðslu við, að öðrum muni ekki geðjast að því. Fleira mætti benda á í sambandi við skilyrði til sefj- unar, en þetta verður látið nægja að sinni. Ætlunin var að fjalla lítið eitt um nokk- ur grundvallaratriði áróðurs, hvernig hann er „tæknilega“ séð byggður upp og nær svo takmarkalausum árangri sem raun ber vitni. Á grundvelli fræðilegra kann- ana, sem gerðar hafa verið á þessu fyrirbæri í þjóðfélaginu, er með nokkurri vissu hægt að greiða þræðina sundur og kom- ast að kjarnanum. Það fer víst ekki milli mála, að sálfræðileg og félagsfræðileg þekking hef- ur verið hagnýtt ríkulega í á- róðursskyni. Þetta á ekki hvað sízt við í viðskipta- og verzl- unarlífi, en einnig á sviði stjórnmála, trúmála og víðar. Þrjú veigamikil atriði Eins og nefnt var hér að framan, er fyrsta skref áróðurs að ná athyglinni og halda henni vakandi. Frá sálfræði- legu sjónarmiði er þrennt talið veigamikið. Það er i fyrsta lagi framsetning, í öðru lagi end- 38

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.