Samvinnan - 01.02.1972, Qupperneq 60

Samvinnan - 01.02.1972, Qupperneq 60
Berrigan-brœö- urnir, Daniel og Philip, banda- rískir prestar, rómversk- kaþólskir, sem fangelsaðir voru fyrir baráttu sína gegn Víetnamstríðinu. Samuel Beckett kristnir menn koma saman í hans nafni. Frá öndverðu hafa þeir gert það, fyrst og fremst á upprisudegi Drottins síns, fyrsta degi vikunnar, sunnudegi. Kirkjan er ákveðið föruneyti í samfylgd hins upp- risna. Vikuleg upprisuhátíð varð frá byrjun sjálfsagður burðarþáttur i lifi hennar. Þar lifðu kristnir menn páskana æ að nýju. Þeir komu saman til þess að hlusta hver með öðrum eftir rödd Krists og glæða vitundina um nánd hans. Og svo gengu þeir saman til borðs samkvæmt því, sem hann hafði sjálfur fyrir mælt. Hvergi verður það áþreifanlegra, að Kristur hinn upprisni, Guðs eilífi sonur, hefur helgað sér þessa jörð og vill láta orð sitt, anda sinn, riki sitt verða likam- legan veruleik í þessum heimi. Lífsins brauð og bikar lífsins úr hendi hans, líf hans sjálfs í skuggsjá og hjúpi jarðneskr- ar fæðu, ríki upprisunnar seilist yfir mærin og gerir mennskt duft að bústað sínum — þetta er altarisgangan. Frá borði Krists ganga menn út í hið daglega líf í endurnýjaðri meðvitund þess, að þeir eiga ekki sjálfir hugi sína og hendur, heldur hann, og að það er frelsið að vinna honum, þjóna honum. Og hvenær sem kristinn söfnuður, stór eða smár, neytir þeirra ávaxta akurmoldar og vínviðar, sem Kristur hefur gert að líking þeirrar staðreyndar, að hann „varð hold á jörð og býr með oss“ og vill láta helgan vilja sinn holdgast í lífi mannanna, þá lifir hann jafnframt morgunskin þess dags, þegar lífið af moldu vaxið er endurfætt inn í ríki upprisunnar, þegar börn jarðar sitja öll að sama borði sem systkin. Yfir hverju altari kristinnar kirkju bjarmar fyrir þeirri dögun. Ég gat ekki neitað mér um að gripa hér á fáeinum atriðum úr stafrófskveri krist- ins barnalærdóms. Það heyrist oft, að menn skilji ekki það mál, sem kirkjan talar né neina hennar aðferð. Enginn skilur neitt mál, ef hann kann ekki staf- rófið eða leggur aldrei á sig að hlusta á neitt, sem talað er. Kirkja, sem hlustar sljó á raddir samtímans, bregzt hrapal- lega. En kirkja, sem verður viðskila við sitt eigið líf, hlustar hvorki né talar nein- um til gagns. Tíðarandi, sem hefur enga eirð til að líta við kirkjunni eða ljá henni eyra, hefur veikar forsendur fyrir því að dæma um hana. En sjálf má kirkjan íhuga þær forsendur, sem tilvera hennar byggist á. Það er alvörumál, ekki sízt fyrir þjóðkirkju íslands. Ytra skipulag kirkju og þjóðfélagsleg staða eru minni háttar atriði, þótt þau séu ekki einskis varðandi fremur en ann- að, sem lýtur að umgjörðum lífsins. Þjóð- kirkja eða ekki þjóðkirkja er engin grundvallarspurning, ef með henni er átt við tiltekin tengsl við ríkið. Kirkjan er ekki ákveðinn trúarlegur þjóðbúningur, þó að þjóðareinkenna gæti að sjálfsögðu i trúarlífi. En að þvi leyti er hún alltaf þjóðkirkja, að hún á erindi og köllun við þjóðarheild. Hún er ekki send til einangr- aðra einstaklinga. „Gjörið allar þjóðirnar að lærisveinum", sagði Kristur við menn sína. Og hann likti ríki sínu m. a. við það súrdeig, sem sýrir allt mjölið. Kirkj- an stefnir alltaf til áhrifa á þjóðlíf og þjóðfélag. Hvernig hún reynir eða megnar að gegna þeirri köllun, er breytilegt eftir aðstæðum. En riki getur aldrei verið hlutlaust um hana. Ef það telur kristin- dóm vera jákvætt afl i þjóðlifi, hlýtur það að hvetja og styðja kristna kirkju til starfa og áhrifa. Að öðrum kosti öfugt. Öll form þarfnast endurskoðunar, ekki sízt þau, sem hafa þúsund ára sögu að baki sér. Ég sleppi þvi hér að ræða kosti og galla þess skipulags, sem kirkjan býr við hér á landi. Ég læt nægja að benda á einn neikvæðan arf, sem löng fortíð hef- ur skilað nútímanum: Kirkjan var sjálf- sögð, tilvera hennar og boðskapur höfð- aði ekki til persónulegrar aðildar eða viðbragða hjá fjöldanum, menn voru óvirkir meðlimir kristinnar kirkju á sama hátt og þeir voru í mannfélaginu og gengust þar undir skyldur og kvaðir án þess að vera að neinu spurðir. Ég skal síðastur manna viðurkenna, að trúarleg einlægni og sannfæring hafi ekki verið til, því það væri í fullri mótsögn við allt, sem ég veit um veig og gildi þeirrar guð- rækni, sem ég hef kynnzt hjá fulltrúum gamla timans á íslandi. Trúariðkun var venja að vísu, en jafnframt persónuleg þörf, runnin af þeim rótum, sem mótuðu allt viðhorf til lífsins. En hættan var samt sú, að kristinn dómur væri öðrum þræði félagslegur vani og jafnvel frem- ur það en innri sannfæring, að kirkjan væri svo samfléttuð félagslegum munstr- um, að hún hyrfi meira eða minna inn í þau og biði verulegan hnekki, þegar þau breyttust eða hurfu. 56
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.