Samvinnan - 01.02.1972, Blaðsíða 67
— Og hvar eru Egyptarnir?
— Þeir drukknuðu allir.
Hogarth hafði málað andlits-
mynd af aðalsmanni, sem var
svo lík fyrirmyndinni, að
aðalsmaðurinn var sárlega
móðgaður og neitaði að taka
við eða greiða málverkið. Þá
sagði Iíogarth:
— Ef þér hafið ekki látið
sækja málverkið innan þriggja
daga, þá mála ég á það skott
og læt selja það undir heitinu
„Hærða manndýrið“.
Daginn eftir var myndin
borguð, sótt og — eyðilögð.
Oliver Wendell Ilolmes (1841
—1935), hinn nafntogaði
bandaríski lögfræðingur og
hæstaréttardómari, var eitt
sinn þegar hann var á áttug-
asta og sjötta aldursári á gangi
niðureftir Pennsylvania Ave-
nue ásamt yngri starfsbróður
sínum og var djúpt sokkinn í
samræður. Skyndilega stanz-
aði öldungurinn í miðri setn-
ingu og starði orðlaus á gull-
fallega unga stúlku sem var að
ganga yfir götuna.
— Æ, bara að maður væri
nú orðinn áttræður aftur,
muldraði hann og varp önd-
inni.
Formaður í einhverju félagi
sneri sér til Holmes og spurði,
um hvaða efni gamli maður-
inn kynni að geta hugsað sér
að tala í félagi hans og hvaða
borgun hann mundi fara
framá.
— Ráði ég sjálfur efninu,
sagði Holmes, — tek ég 150
dollara, en velji félagið það,
tek ég 250 dollara; í báðum til-
vikum verður um sama fyrir-
lestur að ræða.
Þegar Holmes var kominn
yfir nírætt, lækkaði Banda-
ríkjaþing — af einhverjum
flokkspólitískum ástæðum —
eftirlaun gamla mannsins. I
þessu sambandi skrifaði Hol-
mes vini sínum bréf:
„Ég hef ævinlega verið spar-
samur maður, og af þeim sök-
um mun lækkunin, sem sam-
þykkt var, ekki snerta mig. En
mér gremst eigi að síður, að nú
get ég ekki lengur lagt jafn-
mikið fyrir til elliáranna.“
David Hume (1711—1776),
enski heimspekingurinn, hafði
um 1000 sterlingspunda árs-
tekjur, að nokkru leyti í eftir-
laun og að nokkru fyrir vís-
indastörf sín. Hann var oft-
sinnis hvattur og jafnvel var
hans freistað til að halda
áfram með hina stóru Eng-
landssögu sína, þannig að hún
næði framtil samtímans. En
Hume afsakaði sig stöðugt
með eftirfarandi hætti:
— Tilboð yðar er ákaflega
skjallandi og freistandi, en ég
get fært fram fjórar röksemdir
fyrir því að skrifa ekki meira:
1) ég er of gamall, 2) of feitur,
3) of latur og 4) of ríkur!
Dag nokkurn, þegar Hume
var á leið yfir Ermarsund, skall
á mikið óveður. Hefðarfrú ein,
lafði Wallace, leitaði huggun-
ar lijá heimspekingnum, sem
lýsti því yfir áhyggjulaus, að
brátt yrðu þau bæði tvö fiski-
fæða.
— Og hvort okkar verður þá
étið fyrst? spurði lafði Wallace.
— Atvöglin munu háma mig
í sig, en sælkerarnir munu sjá
u m yður.
Thomas Huxley (1825—
1895), enski náttúruvísinda-
maðurinn sem var samstarfs-
maður Darwins og eldheitur
varnarmaður framþróunar-
kenningarinnar, kom fram með
þá óvæntu kenningu, að Eng-
land gæti þakkað piparmeyj-
um fyrir sína heilbrigðu og
þróttmiklu íbúa. Röksemda-
færsla hans var svona:
„Enska þjóðin sækir þrótt
sinn í kjötið af hinum frábæra
nautpeningi landsins. En gæði
nautpeningsins velta á því, að
hann sé fóðraðnr með rauð-
smára. Rauðsmárinn getur
hinsvegar því aðeins dafnað,
að býflugurnar stundi sína ó-
þreytandi iðju scm postillons
d’amour (boðberar ástarinn-
ar). En því miður sitja haga-
mýsnar um líf býflugnanna.
Og hver er það sem étur haga-
sunna 1 ferðaskrifstofa bankastræti7 símar 16400 12070
i j Q Almenn
travel
ferðaþjónusta
FeríSaþjónusta Sunnu um allan heim fyrir hópfa, fyrirtaeki og einstaklinga er
viðurkennd af þeim fjö|mörgu er reyr.t hafo. Reynið Telex ferðoþjónustu
okkar. Aldrei dýrori en oft ódýrari en annars stoðor:_______________
sunnal __________________ ierdirnar sem íólkid velnr
Utanlandsferðir
með íslenzkum fararstjórum 1972
1. Mallorca/London 19 dagar. Brottför hálfsmánaðar-
lega frá 29. marz. Verð frá kr. 11.800,00
Mallorca 3 vikur, ágúst og september.
2. Kaupmannahöfn 8 til 28 dagar. Brottför vikulega
frá 29. júní — 21. sept. Verð frá kr. 9.950,00.
3. París, Sviss, Rínarlönd. Brottför 29. ágúst. 16 dagar.
4. Norðurlandaferð, Kaupmannahöfn/Rínarlönd,
Kaupmannahöfn - Róm - Sorrento, 2—3 vikur, —
júní, júlí, ágúst. Verð frá kr. 22.500,00.
5. Sigling með glæsilegu skemmtiferðaskipi í gríska
hafinu. Brottför 7. sept. Verð frá kr. 34.700,00.
6. Austurlönd fjær. Brottför 27. október.
Verð kr. 67.600,00.
FJÖLDI ANNARRA UTANLANDSFERÐA.
SkrifiS eða hringið og biðjið um ferðaáætlun.
ferðaskrifstofa bankastræti 7 símar 16400 12070
Einstaklingsferðir
.Höfum ó boðstólum og skipuleggjum einstoklingsferðir um ojlan heim. Reynið
Telex ferðaþjónustu okkar. örugg ferðaþjónusta: Aldrei dýrari enoft ódýrari
en annars staðar
ferðirnar sem fólkið velur
63