Samvinnan - 01.12.1973, Blaðsíða 68
Handavinna yngstu lesendanna
Jólasveinafjölskylda
EFNI:
Eggjabakki
vattkúlur eða
herslihnetukjarnar
rauður kreppappir
bómull
garn
Klippið eggjahólfin úr eggjabakkanum, þannig að þau standi stöðug á
borði. Málið þau t. d. með þekjulitum og skreytið með hnöppum úr filti,
mislitum pappír eða bólum, sem notaðar eru til að festa saman blöð
með. Málið augu og munn á vattkúlurnar eða hnetukjarnana og limið
með galdragripi. Pestið einnig hár úr garni (ef til vill fléttinga) á
kvenfólkið í fjölskyldunni en skegg á karlana (sjá mynd). Búið síðan
til húfur. Klippið aflanga ferninga úr rauðum kreppappír 7x5 sm (hœð-
in er 7 sm). Límið saman í hæfilega víðar húfur, búið til uppbrot og
kögur. Pestið síðan húfurnar á jólasveinafjölskylduna.
Aðventukrans
Aðventukrans úr mjóum trélistum eða blómastöngum er auðtilbúinn
og getur hvort sem er hangið í lofti eða staðið á borði. Sagið tré-
listana jafnlanga, um 30—40 sm, og málið þá rauða með þekjulit eða
málningu og staflið þeim síðan þannig að hólf myndist fyrir eitt kerti
í hverju horni (sjá mynd). Leggið stengurnar tvær og tvær saman og
fallegast er að hafa raðirnar þrefaldar, en til þess þarf 24 stengur.
Festið hornin með basti eða þræði. Hafið álpappírshólka eða kerta-
hlífar undir kertunum og skreytið með greni og berjum eða kúlum.
HEIMIUSS*
g a
h-J Bryndís
Steinþórsdóttir CJ
^sniwmH
Auðveld jólaskreyting
Falleg jólaskreyting er ætíð til ánægju hvort sem er til gjafa eða
heimilisprýði. Veljið fremur grunna skál t. d. leirskál og látið leir eða
blómafrauð (það fæst í blómabúðum) í botninn á skálinni. Stingið
síðan blómakertum með jöfnu millibili í leirinn eða frauðið (sem
betra er að láta liggja í bleyti áður) og komið greni, könglum og kúlum
fallega fyrir á milli kertanna.
Uppskriftir
Síld með sýrðum rjóma og eggjum
1-2 dósir sýrður rjómi
2 laukar
4 kryddsildarflök (uppvafin)
2 msk söxuð steinselja, graslaukur eða dill
Saxið laukinn smátt og blandið honum saman við sýrða rjómann. Sjóð-
ið eggin í 5-6 mín. Látið sósuna á fatið. Raðið síldarrúllunum og sundur-
skornum, volgum eggjum yfir. Skreytið með steinselju, graslauk eða
dill. Berið síldina fram með rúgbrauði t. d. sem fyrsta rétt til mið-
degisverðar eða smárétt á kvöldborðið.
68