Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1914, Qupperneq 12
6
miliónir manna. Til að koma þessari framleiðslu í verð,
þurfti markaði í öðrum löndum. Stóriðnaðarþjóðirnar urðu
um Ieið verzlunarþjóðir. Þær leituðu uppi hvern krók og
kima, þar sem mannabyggð var, til að kaupa, selja og
græðá. Þjóðir, eins og íslendingar, sem fyr höfðu lifað á
heimaframieiðslu og fremur lítinn kaupskap átt, vöndu
sig á ótal nýjar þarfir, sem síðan varð að fullnægja.
Heimsverzlun þessi tengdi saman lönd öll; hver varð
öðrum háður. Þar var samvinna á háu stigi, en nauð-
ungarsamvinna. Verksmiðjueigendur og kaupmenn eru
nú harðstjórarnir. Verkbönn þeirra og hringar. sýna hið
sanna innræti þeirra. Steinolíufjelagið er eitthvert kunn-
asta dæmi hjer, hversu verzlunarsamvinna þessi kúgar
smælingjana. Og svo hefur talizt til, að til Dana einna
gjöldum við, að óþörfu, jafnmikið fje í verzlunargróða
árlega, eins og tekjur landssjóðs nema. Og þó eiga fleiri
en Danir hjer spón í aski sínum.
Peir menn, sem mest græddu á iðnaðarbyltingunni, sem
nú hefur verið drepið á, eru bórgararnir, efnamenn í bæj-
unum. Að fornu fari undir einvaldsstjórn 17. og 18. ald-
ar hafði þeirra gætt fremur lítið og hlutur þeirra, á marg-
an veg, verið fyrir borð borinn. Nú, er þeir höfðu auðg-
ast á iðnaði og verzlun, óx þeim hugur og dugur.
Oengust þeir þá fyrir að brjóta sundur gömlu fjötrana:
sjerrjettindi aðals og kirkju og verndartolla, er hindruðu
erlenda verzlun, o. sv. frv. Gamla valdið: konungur, að-
all og prestar tóku á móti í fyrstu, en urðu undan að
láta fyrir mætti peninganna. Einna hörðust var deila
þessi á Frakklandi í lok 18. aldar og nefnd er stjórnar-
byltingin mikla. * Borgararnir sigruðu oghafafylgt þeim
* Menningarsögufræðingar nú á tírrium hallast meir og meir á þá
sveif, að rekja upptök auðvaldsins og yfirdrottnun borgarastjett-
arinnar, eins og það gerist nú á tímuni, til vjelavinnunnar og stór-
iðnaðarins, sem var hreinn og beinn afspringur iðnaðarbyltingar-
innar. Þeim hugsunarhætti er fylgt hjer, en rúmið leyfir ekki frek-
ari útskýringar.