Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1914, Blaðsíða 36
ekki í kaupfjelaginu. Jeg gerði mjer far um að komast að
því, hvernig orð fjelagið hefði, e'n allir luku upp einum
munni um það, að kaupfjelagsskapur væri »a very, very
good thing« og að »Leiths Cooperative Society« kollsigldi
fleiri og fleiri kaupmenn í samkeppninni með ári hverju.
Skozku kaupfjelögin hafa heildsölu í Glasgow, en fje-
lögin á Englandi eru sjer um heildsölu. Bæði þessi sam-
bandsfjelög framleiða sjálf mikið af þeirri vöru, sem þau
selja meðlimum sínum, en þau selja líka utanfjelagsmönn-
um og gefa þeim part í ágóðanum. Englendingar urðu
fyrstir til að koma upp samvinnufjelagsskap, enda er
hann hvergi nándar hærri eins langt kominn og á Bret-
landi. Á síðari árum hefur fjelögunum ekki fjölgað til
muna, því það er komið kaupfjelag í hverja borg. En
kaupfjelögin stækka því meir, og mörgum kaupfjelögum
er slegið saman í eitt, þar sem fjarlægðin er ekki of mik-
il. Með þessu þykjast menn spara reksturskostnað og
síður sje hætt við því, að óheppilegir menn veljist til for-
stöðu, m. fl. Á allra síðustu tímum virðast kaupfjelögin
vera að sækja sig í ensku sveitunum. Væntanlega eiga
þau þar mikið óunnið starfssvið í framtíðinni.
í samvinnufjelagsskap ættum við að taka okkur Eng-
lendinga til fyrirmyndar, engu síður en Dani. Danir bera
af öðrum þjóðum í þeirri samvinnu sem snertir meðferð
og sölu landbúnaðarafurða. Englendingar aptur á móti f
flestum öðrum greinum. Ensku fjelögin úthluta ólíkt meiri
ágóða, og leggja þó meira fje í sjóði, og til menningar-
starfsemi. Dönsk samvinnufjelög eru mest rekin fyrir lán
í bönkum og of lítið er gert til þess að safna eigin rekst-
ursfje. Slíkt verðum við íslendingar að varast, þegar við
neyðumst til að taka lán. Sparsemi er ein grundvallar-
regla samvinnufjelaganna og sje hún slitin úr hugsjóna-
keðju þeirra, missir samvinnufjelagsskapurinn mikið afá-
gæti sínu. Með því að spara, eykst þjóðarauðurinn, því
sá auður, sem samvinnufjelög safna, safnast ekki á fáar
hendur, heldur skiptist niður á alla starfandi fjelagsmenn,