Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 6

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 6
144 tullnægði almenningaheill. Skulu nú nánar athuguð þe8si tvö atriði: Gott slápulag, mikil útbreiðsla. Fyrir fáum árura var svo ástatt, að samvinnufélög- in hér á landi voru lítið meir en sundurlausar byrj- anir. Menn byrjuðu víða. En ávextirnir urðu eins og til var sáð. I þeim héruðum, þar sem almenningur hafði andlegan áhuga, blómguðust félögin dável. Ein- lægur vilji og mikil fórnfýsi bætti venjulegast úr ónógri sérþekkingu. 'En þar sem fólkið var hugsunarlaust nema um augnabliksgróðann, lenti öll framkvæmdin i fálmi og basli. Stundum enduðu samtökin með hruni og fjártapi. Og hvergi var nema um byrjun að ræða, neðstu tröppuna, smásöluna. Kaupfélögin öll, bæði þau heil- brigðu og hin sjúku, urðu að skifta við stórkaupmenn, bæði um innkaup á erlendri vöru og sölu á islenzkum ■varningi erlendis. Svona liðu mörg ár. Menn sættu sig við þessa byrjun. Menn skildu tæplega yfirleitt, hve skrefið var stutt. Stórkaupmaðurinn var langt í burtu, en smá- kaupmaðurinn nærri. Þess vegna gleymdist sá aðilinn, sem fjar var. Eða svo reyndist það í framkvæmdinni. Þetta var skipulagsins sök. Stefmina skorti í einu nógu stórar hugsjónir og nógu milcla framkvœmd. Hið siðara var afleiðing hins fyrra. Þar sem það er stað- Teynd, að óþarfur stórkaupmanna- og umboðsmanna- gróði, sem íslenzka þjóðin borgar nú árlega, nemur miljónum króna, þá hefir skortur á hugsjónum og fyr- irmyndum orðið okkur nokkuð dýr. Árangurinn minni nú en vera ætti, af því að svo seint var hafist handa. Byrjun annars skrefsins var stigin með stofnun Sambandsins. Sú mikilvæga framkvæmd leiddi af sér sameiginlegan erindrekstur erlendis. En þá fyrst var skrefið fullkomnað, þegar erindrekinn flutti frá Kaup- mannahöfn til Keykjavíkur, og sambandsfélögin mynd- uðu heildsölu sína þar. Nú er svo komið, að íslenzkir

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.