Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Page 30
168
vinnukraft með kerleiðingu og þrælaverzlun, eru nii'
hinar kvítu þjóðir á veg komnar að hagnýta sér vinnu-
kraft litaðra þjóðflokka Asíu og Afríku með sem minst-
um kostnaði. Með þeim hætti, að taka af þeim öll
jarðarráð eða leggja á þá skatta, setn greiða skuli í
peningum, verða þeir neyddir til að vinna í námum
eða á búgörðum.
Því var það stórfeld villa af öðrum eins djúphygl-
ismönnum eins og Cobden, Bright og Spencer, að halda,.
að núverandi fyrirkomulag fríverzlunar og atvinnu-
frelsis mundi leiða til alþjóðafriðar og frjálsrar sam-
vinnu. Síðan England kom fríverzluninni á fyrir rúmri
hálfii öld, hefir alþjóðaverzlunin einmitt mátt heita
driffjöðrin í yfirgripsmesta landráni og þjóðkúgun, sem
sögur geta.
En í eigin löndurn livítra þjóða hefir það komið í
ljós betur og betur, að i þjóðhags-ráðsmensku vorra
tíma býr eyðandi frumþáttur baráttu og kúgunar. Það
kemur líkt í ijós i okkar eigin löndum og hinum und-
irokuðu heimsálfum, að þessi ránhernaðarfrumþáttur
hefir í för með sér tvöfalt tjón, tvöfalda eyðingu mann-
gildisins, sem dýrast er alls verðmætis.
Bæði sigurvegararnir og hinir, sem lægra lúta,
rýrna að manngildi vegna þess þegnfélagslega sníkju-
lifnaðar, sem hlýtur að fylgja öllum ránhernaði,
Og þessi þegnfélagssýki, shíkjulifnaðurinn og af-
leiðingar hans, ægir nú hinum hvíta mannflokki hraðri
hnignun og missi heimsvalds síns.
Allar hinar fyrri menningarþjóðir, er stund lögðu
á landvinninga, hefir tekið að hnigna eftir nokkra
blómaöld, og orðið að rýma fyrir nýjum menningar-
þjóðum. Norðurálfuþjóðirnar hafa að minsta kosti eitt
fram yfir fyrirrennara sína: þroska vísindanna, þar
með vísindanna um þegnfélagið og sjúkdóma þess. I
því einu felst öll vor von: að finna orsakir þeirra