Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Síða 32

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Síða 32
w 170 þjóðh]úkrunarfræðinnar, sem einkum hefir lagt stund á’ að rannsaka, hvort þjóðkyninu færi fram að lífsþróttÉ eða hnignaði, kveður svo að orði, að »úrkynjunin með- al þjóðar vorrar sé nú ískyggileg orðin, og virðist geta haldið áfram að magnast takmarkalaust«. Aðgætandi er, að þetta er sagt um eina hina þróttmestu þjóð, sem nokkru sinni hefir lifað. Og þróttur brezku þjóðarinn- ar kemur ekki hvað sizt fram í æ harðari baráttu gegn þessari yfirvofandi hættu og nákvæmri rannsókn á eðli hennar. Munurinn á hættu þeirri, er vofir yfir menn- ingarþjóðum nútímans (kannske þeim fyrst, sem fremst- ar eru) og þjóðmeinum þeim, er hrifu menningarþjóðir fyrri alda, er sá, að vér erum farnir að þekkja eðli veikinnar: einskonar sníkjulifnaður, sem leiðir af hags- munaundirokun þeirra, er meira mega, á lítilmagnanum. Feikna efling hernaðarhyggju síðasta mannsaldurs er nátengd óleysanlega landráninu mikla í hitabeltinu og tempraða beltinu norðlæga, og færslu fjárstólsins til þessara landa, er enn hafa gnægð nýrra einokunar- hlunninda og kanske nóg af ódýrum vinnukrafti. Naumast er nokkur atburður aldar vorrar mark- verðari en sívaxandi straumur sparifjár Ameríku og. Norðurálfu til landa litaðra þjóða, auðvitað með öfiugri vernd og gæzlu vopnanna. Ýms tákn sýna, að þessi merkilega hreyfing er að sumu leyti a. m. k. ekki óskyld því, sem dýrafræðingar nefna fóstursskifti sníkju- dýra og jurta á fátækara og meinsamara fóstri og öðru feitara og auðsveipara. Er auðsafnið mætir vaxandi mótspyrnu hjá stjórnfrjálsum verkalýð Norðurálfu gegn sníkjuplágunni, og æ meiri örðugleikum á því, að ná undir sig nýjum einkaleyfum, flytur það sig til annara landa, þar sem nóg er að fá af nýjum einkaleyfis- hlunnindum, annaðhvort keypt eða tekið með hervaldi,. og hinn litaði verkalýður er ómyndugur stjórnarfars- lega, og verður kannske ekki andlega fær um að bíta frá sór fyr en seint og síðar. Þó gæti verið, að menn

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.