Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Síða 45
183
<enda sýriir verðlag þeirra, þar sem engin kaupfélög eru
-itil að halda verði þeirra niðri, allhátt verð (sbr. t. d.
verðlag í Þórshöfn, sjá Lögréttu, febrúar 1918), sem
ekki er heldur nema eðlilegt.
Að endingu vil eg sérstaklega beina máli mínu til
þeirra, sem bæði eru hlyntir mentamálum og kaupfé-
iögum, og þá sérstaklega til þeirra, sem starfa við skóla
þá, sem nú hafa heimavistir, hvort heldur það eru
skólastjórar, kennarar eða nemendur. Eg vil biðja þá
að athuga rækilega samanburð á vei ði kaupmanna og
þess kaupfélags, sem þar er næst, og taka þá tillit til
þess hluta af vöruverði kaupfélagsins, sem kemur fram
i árságóðanum. Eg vil biðja þá að athuga, hverja
þýðingu það mundi hafa, ef við skólann væri sjóður,
sem gæfi af sér vexti, sem verja mætti til eins og ann-
ars i skólans þágu eftir því sem þörf krefði í þetta
eða hitt sinnið.
Og eg vil biðja þá að athuga að þvi búnu, hvort
• <ekki mætti mynda slíkan sjóð.
Ka upfí'dags vinur.